Fréttir

Allar helstu fréttir frá starfi TR:

Daði byrjar vel á Evrópumóti ungmenna

Daði Ómarsson (2091) byrjar vel á Evrópumóti ungmenna sem fram fer í Fermo á Ítalíu.  Daði, sem teflir í flokki drengja 18 ára og yngri, gerði jafntefli við spænska alþjóðlega meistarann, Jorge Trujillo Cabrera (2410), í fyrstu umferð sem fram fór í gær. Í annari umferð, sem hófst kl. 13, hefur Daði svart gegn rúmenska Fide meistaranum, Anton Teodor (2379). ...

Lesa meira »

Haustmót T.R. hefst sunnudaginn 20. september

Sunnudaginn 20. september hefst Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2009. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót T.R. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti T.R. og er það flokkaskipt. Mótið er öllum opið. Teflt verður í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12, á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum og eru góð verðlaun í ...

Lesa meira »

Þrír efstir í áskorendaflokki

Þrír skákmenn eru efstir og jafnir að lokinni þriðju umferð áskorendaflokks Skákþings Íslands sem fram fór í dag.  Hjörvar Steinn Grétarsson (2320), Magnús Magnússon (2055) og alþjóðlegi meistarinn, Sævar Bjarnason (2171) eru allir með fullt hús vinninga.  Fimm skákmenn koma næstir með 2,5 vinning.  Bjarni Jens Kristinsson (1985), sem hefur verið í mikilli uppsveiflu að undanförnu, gerði jafntefli við Þorvarð ...

Lesa meira »

Úrslit eftir bókinni í 2. umferð áskorendaflokks

Annari umferð áskorendaflokks Skákþings Íslands lauk nú rétt í þessu.  Ekkert jafntefli leit dagsins ljós og ekki er hægt að tala um nein óvænt úrslit.  Tíu skákmenn eru efstir með fullt hús, þar á meðal T.R.-ingarnir, Eiríkur K. Björnsson (2034) og hinn hárprúði, Kristján Örn Elíasson (1982). Þriðja umferð fer fram á morgun, sunnudag, og hefst kl. 13 en þá ...

Lesa meira »

Áskorendaflokkur hófst í dag

  Taflmennska í áskorendaflokki Skákþings Íslands hófst í dag þegar fyrsta umferð var tefld í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni.  Upphaflega stóð til að mótið færi fram í félagsheimili Hellis en vegna mjög góðrar þátttöku var ákveðið að færa mótið í T.R.   45 keppendur eru skráðir til leiks, þeirra stigahæstur, Hjörvar Steinn Grétarsson (2320), sem hlýtur að teljast sigurstranglegur.  ...

Lesa meira »

T.R. úr leik í hraðaskákkeppninni

Taflfélag Reykjavíkur mætti ofjarli sínum þegar það beið lægri hlut fyrir Taflfélagi Bolungarvíkur í undanúrslitum hraðskákkeppni taflfélaga sem fram fóru í Faxafeninu síðastliðið miðvikudagskvöld.  Leikar fóru þannig að Bolungarvík vann 48,5-23,5 en í hálfleik var staðan 27-9. Hinn grjótharði hraðskáksnillingur, Arnar E. Gunnarsson, stóð sig best T.R.-inga með 8 vinninga af 12 en Bragi Þorfinnsson stóð sig best hjá Bolvíkingum ...

Lesa meira »

Undanúrslit Hraðskákkeppni taflfélaga fara fram í kvöld

Í kvöld fara fram undanúrslit í hraðskákkeppni taflfélaga en að þessu sinni verða báðar viðureignirnar tefldar í einu og verður teflt í félagsheimili T.R. að Faxafeni.  Taflfélag Reykjavíkur, sem hefur titil að verja, mætir Íslandsmeisturunum í Taflfélagi Bolungarvíkur, en í hinni viðureigninni mætast Taflfélagið Hellir og Skákfélag Akureyrar. Það má búast við góðri stemningu og harðri baráttu þar sem klukkur ...

Lesa meira »

Sigurður Daði genginn til liðs við T.R.

Sigurður Daði Sigfússon (2335) gekk á dögunum til liðs við Taflfélag Reykjavíkur á nýjan leik en hann hefur undanfarin misseri verið liðsmaður Hellis.  Sigurður Daði er uppalinn hjá T.R. og var formaður félagsins á árunum 2001-2002. Stjórn Taflfélagsins fagnar endurkomu Sigurðar Daða, sem er einn af sterkari skákmönnum þjóðarinnar, og er ekki í vafa um að endurkoma hans muni styrkja ...

Lesa meira »

Fimmtudagsmótin hefjast 17. september

Hin margrómuðu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur hefjast á ný eftir sumarfrí fimmtudagskvöldið 17. september kl. 19.30.  Nánara fyrirkomulag auglýst síðar.

Lesa meira »

Laugardagsæfingar hefjast 12. september nk.

Barna- og unglingaæfingar Taflfélags Reykjavíkur hefjast á ný eftir sumarfrí laugardaginn 12. september næstkomandi.  Æfingarnar verða að mestu með hefðbundnu sniði en fyrirkomulag þeirra verður auglýst nánar þegar nær dregur. Verðlaunahafar barna- og unglingaæfinga T.R. veturinn 2008-2009.

Lesa meira »

Skákþing Íslands 2009

Landsliðsflokkur Skákþings Íslands fer fram á Bolungarvík dagana 1.-11. september.  Að þessu sinni tekur einn skákmaður úr T.R. þátt en það er hinn nýbakaði alþjóðlegi meistari, Guðmundur Kjartansson.  Mjög spennandi verður að fylgjast með gengi hans en Guðmundur hefur farið hamförum við skákborðið að undanförnu.  Guðmundur etur kappi við 11 aðra skákmenn í lokuðum 12 manna flokki þar sem meðalstigin ...

Lesa meira »

Hjörvar Steinn sigraði á Árbæjarmótinu

Hin árlega skákhátíð Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fór fram í einmunablíðu sl. sunnudag, 16. ágúst.   Venju samkvæmt fór fyrst fram lifandi tafl, en þar öttu kappi Halldór Garðarsson og Kristján Örn Elíasson og lauk skákinni með sigri þess síðarnefnda.   Að loknu hinu velheppnaða lifandi tafli hófst hið árlega Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur.  Þar kom, sá og sigraði ...

Lesa meira »

Stórmót Árbæjarsafns og T.R. fer fram í dag

Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram í dag, sunnudag 16. ágúst. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl.14. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 7 mín. á skák. Á undan, eða kl.13, fer fram lifandi tafl og stefnir í að það muni fara fram í einmunablíðu. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í Stórmótinu, 10.000 kr., 5.000 ...

Lesa meira »

Guðmundur gerði jafntefli í síðustu umferðinni

Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2356), gerði jafntefli við rússneska stórmeistarann, Alexander Potapov (2461), í níundu síðustu umferð Czech Open , sem fram fór í fyrradag. Guðmundur fékk 5,5 vinning og hafnaði í 46.-83. sæti en miðað við stigaútreikning varð hann efstur í þeim í hópi.  Árangur hans samsvarar 2536 skákstigum og græðir hann 33 stig.  Ekki vantaði mikið upp á ...

Lesa meira »

Guðmundur tapaði í 8. umferð á Czech Open

Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2356), tapaði fyrir tyrkneska alþjóðlega meistaranum, Mert Erdogdu (2463), í áttundu umferð á Czech open sem fram fór fyrr í dag.  Þar með er klárt að Guðmundur nær ekki sínum öðrum áfanga að stórmeistaratitili að þessu sinni.  Árangur hans á Czech Open er engu að síður glæsilegur og samsvarar hann 2550 skákstigum og stigagróða upp á ...

Lesa meira »

Guðmundur tapaði í 7. umferð á Czech Open

Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2356), tapaði fyrir Azerbaijanum, Rauf Mamedov (2645), í sjöundu umferð á Czech open sem fram fór fyrr í dag. Guðmundur, sem hafði svart, sá lítið til sólar í skák þar sem stórmeistarinn kom honum sjálfsagt á óvart með því að beita Vínarbragði í byrjuninni.  Guðmundur átti í vök að verjast mestalla skákina og gafst að lokum ...

Lesa meira »

Guðmundur vann í 6. umferð Czech Open

Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2356), var ekki lengi að komast aftur á beinu brautina eftir tap í fimmtu umferð á Czech Open því í þeirri sjöttu lagði hann þýska alþjóðlega meistarann, Michael Thorsten Haub (2483). Guðmundur hafði hvítt og Þjóðverjinn svaraði 1. e4 með g6 sem hefur ekki komið Guðmundi á óvart enda sá þýski þekktur fyrir fátt annað en ...

Lesa meira »

Rombaldoni tókst að stöðva sigurgöngu Guðmundar

Það kom í hlut ítalska alþjóðlega meistarans, Denis Rombaldoni (2465), að leggja alþjóðlega meistarann, Guðmund Kjartansson (2356), loks af velli en Guðmundur tapaði gegn Ítalanum í fimmtu umferð Czech Open sem fram fór í dag. Guðmundur stýrði svörtu mönnunum og tefld var Nimzo-indversk vörn.  Eins og Guðmundar er von og vísa hleypti hann skákinni fljótt upp og snemma tafls var ...

Lesa meira »

Er Guðmundur ósigrandi?

Svo virðist sem alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2356), geti ekki tapað skák þessa dagana því í dag vann hann enn einn sigurinn þegar hann lagði tékkneska alþjóðlega meistarann, Stepan Zilka (2466), í fjórðu umferð Czech Open. Í skákinni í dag þar sem Guðmundur stýrði svörtu mönnunum kom upp drottningarindversk vörn og opnaðist staðan tiltölulega fljótt.  Guðmundur sótti stíft að Tékkanum ...

Lesa meira »

Guðmundur óstöðvandi – orðinn alþjóðlegur meistari

Guðmundur Kjartansson (2356) rauf í dag 2400 stiga múrinn þegar hann sigraði rússneska alþjóðlega meistarann, Egor Krivoborodov (2442), í þriðju umferð Czech Open 2009.  Hann hefur þarmeð uppfyllt síðasta skilyrðið til að vera formlega útnefndur alþjóðlegur meistari. Stjórn Taflfélags Reykjavíkur óskar Guðmundi innilega til hamingju með titilinn. Í skák Guðmundar í dag, þar sem hann stýrði hvítu mönnunum, var tefldur ...

Lesa meira »