Stórmót Árbæjarsafns og T.R. fer fram í dag



Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram í dag, sunnudag 16. ágúst.

Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl.14.

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 7 mín. á skák.

Á undan, eða kl.13, fer fram lifandi tafl og stefnir í að það muni fara fram í einmunablíðu.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í Stórmótinu, 10.000 kr., 5.000 kr. og 3.000 kr.

Þátttökugjöld í Stórmótinu eru kr.600 fyrir 18 ára og eldri, en ókeypis fyrir yngri en 18 ára og eru þátttökugjöld jafnframt aðgangseyrir í safnið.

Ekkert kostar að taka þátt fyrir þá sem taka þátt í lifandi taflinu.