Fimmtudagsmót hjá TR í kvöld klukkan 19:30



Hraðskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru 10 skákir og tímamörkin eru 3 mínútur á skákina að viðbættum 2 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Guðlaugur Gauti Þorgilsson og Þorsteinn Magnússon. Þátttökugjald eru eftirfarandi:

Félagsmenn TR 18 ára og eldri: 500kr.

Félagsmenn TR 17 ára og yngri: Ókeypis

Utanfélagsmenn 18 ára og eldri: 1000kr.

Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.

Utanfélagsmenn: 10 skipta klippikort: 7500kr.

Veitt eru verðlaun fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance). Nánari útfærsla á verðlaunum ákveðin fljótlega.