Þriðjudagsmót í kvöld fellur niður



Þriðjudagsmót sem hefði átt að vera í kvöld, 1. mars, fellur niður vegna undirbúnings TR fyrir Íslandsmót skákfélaga sem verður næstkomandi helgi.

Næsta Þriðjudagsmót verður því 8. mars, klukkan 19:30 stundvíslega í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Telfdar eru fimm umferðir með tímamörkunum 10 mín og 5 sekúndna viðbót fyrir hvern leik. Mótinu lýkur yfirleitt um eða upp úr 22:00.