Undanúrslit Hraðskákkeppni taflfélaga fara fram í kvöld



Í kvöld fara fram undanúrslit í hraðskákkeppni taflfélaga en að þessu sinni verða báðar viðureignirnar tefldar í einu og verður teflt í félagsheimili T.R. að Faxafeni.  Taflfélag Reykjavíkur, sem hefur titil að verja, mætir Íslandsmeisturunum í Taflfélagi Bolungarvíkur, en í hinni viðureigninni mætast Taflfélagið Hellir og Skákfélag Akureyrar.

Það má búast við góðri stemningu og harðri baráttu þar sem klukkur verða ákaft barðar og taflmönnum leikið fram og aftur með miklum látum.  Heitt verður á könnunni og eru áhorfendur hvattir til að mæta en taflmennskan hefst kl. 20.