Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson gerði jafntefli við Fide meistarann Arian Gonzalez Perez (2466) og sigraði spænska alþjóðlega meistarann Alfonso Jerez Perez (2376) í fjórðu og fimmtu umferð alþjóðlegs móts sem fer fram í Sabadell á Spáni. Guðmundur hefur 3,5 vinning og er í 4.-8. sæti. Þrír keppendur eru efstir og jafnir með 4 vinninga. Sjötta umferð hefst í dag kl. ...
Lesa meira »Author Archives: Þórir
Guðmundur með 2 af 3 í Sabadell
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson tapaði fyrir venezúelska alþjóðlega meistaranum Jose Rafael Gascon (2268) í annari umferð alþjóðlegs móts sem fer fram í Sabadell á Spáni en vann síðan stigalágan (2092) keppanda, einnig frá Venezuela, í þriðju umferð sem fram fór í dag. Guðmundur hefur því 2 vinninga að loknum þremur umferðum en tveir keppendur hafa fullt hús vinninga, armenski stórmeistarinn ...
Lesa meira »Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2013
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2013 hefst sunnudaginn 15. september kl.14. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og jafnframt meistaramót T.R. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti og er það flokkaskipt. Mótið er öllum opið. Mótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12. Sú nýbreytni verður að teflt er tvisvar í viku. Alls ...
Lesa meira »Guðmundur teflir í Sabadell
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson heldur áfram för sinni um Katalóníuhérað og tekur nú þátt í opnu alþjóðlegu móti í Sabadell sem er skammt frá Barcelona. Fyrsta umferð fór fram í gær og sigraði Guðmundur stigalágan (2067) heimamann. Önnur umferð fer fram í dag og hefst kl. 15 en þá hefur Guðmundur svart gegn ungum alþjóðlegum meistara frá Venezuela, Jose Rafael ...
Lesa meira »Góður lokasprettur hjá Guðmundi í Barcelona
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2434) sigraði í síðustu tveimur umferðunum í opnu alþjóðlegu móti sem var að ljúka í Barcelona. Í níundu umferð vann hann heimamann með 2234 stig og í þeirri síðustu Bandaríkjamann með 2310 stig. Guðmundur hlaut 7 vinninga og hafnaði í 14.-26. sæti. Árangur hans samsvarar 2406 stigum og lækkar hann um 2 stig. Sigurvegari mótsins með ...
Lesa meira »Laugardagsæfingarnar hefjast 7. september
Laugardagsæfingarnar, barna- og unglingaæfingar Taflfélags Reykjavíkur, hefjast næstkomandi laugardag. Fyrirkomulag verður með svipuðum hætti og í fyrra. Aðgangur að æfingunum er ókeypis hvort sem er fyrir félagsmenn eða utanfélagsmenn en félagsmenn fá aukna kennslu og þjálfun. Þjálfun og kennsla á laugardagsæfingunum er í höndum þaulreyndra og sterkra skákmanna og er aðgangur ókeypis. Æfingarnar henta byrjendum jafnt sem lengra komnum ...
Lesa meira »Tap hjá Guðmundi í áttundu umferð
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson tapaði fyrir heimamanni (2327) í áttundu umferð alþjóðlegs móts sem fer fram í Barcelona. Guðmundur er með 5 vinninga í 45.-84. sæti og mætir öðrum heimamanni (2259) í níundu og næstsíðustu umferðinni sem hefst í dag kl. 14.30. Mikil spenna er á toppnum þar sem sjö stórmeistarar og einn alþjóðlegur meistari eru efstir og jafnir með ...
Lesa meira »Guðmundur vann í sjöundu umferð
Lokaspretturinn er framundan hjá alþjóðlega meistaranum Guðmundi Kjartanssyni (2434) í Barcelona þar sem hann tekur þátt í fjölmennu alþjóðlegu móti. Í gær fór sjöunda umferð fram og sigraði Guðmundur heimamanninn og Fide meistaranum Jordi Ayza Ballester (2226) og hefur hann því 5 vinninga og situr í 20.-47. sæti. Þrír stórmeistarar eru efstir og jafnir með 6 vinninga, þeirra á meðal ...
Lesa meira »Guðmundur með jafntefli í sjöttu umferð
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2434) gerði jafntefli í gær við franska Fide meistarann Julien Lamorelle (2311) í sjöttu umferð alþjóðlegs móts í Barcelona. Guðmundur er í 36.-77. sæti með 4 vinninga. Stórmeistararnir Eduardo Iturrizaga og Vladimir Burmakin eru efstir og jafnir með 5,5 vinning en þrettán keppendur koma næstir með 5 vinninga. Sjöunda umferð hefst í dag kl. 14.30 og ...
Lesa meira »Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2013
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2013 hefst sunnudaginn 15. september kl.14. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og jafnframt meistaramót T.R. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti og er það flokkaskipt. Mótið er öllum opið. Mótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12. Sú nýbreytni verður að teflt er tvisvar í viku. Alls ...
Lesa meira »Guðmundur tapaði í fimmtu umferð
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2434) beið lægri hlut gegn þýska stórmeistaranum Jan Gustafsson (2619) í fimmtu umferð alþjóðlegs móts í Barcelona sem fram fór í gær. Guðmundur hefur 3,5 vinning og er í 36.-63. sæti. Efstur með fullt hús vinninga er stórmeistarinn Anton Filippov (2630) frá Uzbekistan. Í sjöttu umferð, sem hefst í dag kl. 14.30, hefur Guðmundur svart gegn ...
Lesa meira »Þriðji sigur Guðmundar í röð
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson er kominn á gott flug í alþjóðlegu móti í Barcelona sem fram fer þessa dagana. Í fjórðu umferð vann hann sinn þriðja sigur í röð, nú gegn heimamanni með 2216 stig. Guðmundur hefur 3,5 vinning í 5.-23. sæti en fjórir keppendur hafa fullt hús vinninga. Í fimmtu umferð, sem hefst á morgun kl. 14.30, hefur Guðmundur ...
Lesa meira »Sigur hjá Guðmundi í þriðju umferð
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson sigraði franskan andstæðing sinn í þriðju umferð alþjóðlegs móts sem fer fram í Barcelona. Guðmundur hefur því 2,5 vinning og er kominn á þær slóðir í tölfunni þar sem honum bera að vera. 21 keppandi hefur fullt hús vinninga. Fjórða umferð hefst á morgun kl. 14.30 og þá hefur Guðmundur svart gegn sautján ára heimamanni með ...
Lesa meira »Stórmeistaramót Taflfélags Reykjavíkur – Keppendur
Frá 1. til 8. október næstkomandi mun alþjóðlegt lokað 10 manna stórmót verða haldið í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur. Þá fer fram í fyrsta sinn Stórmeistaramót Taflfélags Reykjavíkur sem stefnt er að, að verði árviss viðburður í framtíðinni. Mótið verður geysiöflugt og meðal þátttakenda eru þrír stórmeistarar og fimm alþjóðlegir meistarar. Aðstæður verða eins og best verður á kosið, bæði fyrir ...
Lesa meira »Sigur hjá Guðmundi í annari umferð
Eftir óvænt jafntefli í fyrstu umferð kom alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson sterkur til baka í annrri umferð sem fram fór í dag í Barcelona þar sem hann lagði króatískan keppanda með svörtu. Guðmundur hefur því 1,5 vinning að loknum tveimur umferðum en í þriðju umferð, sem fer fram á morgun, hefur hann hvítt gegn franska skákmanninum Samuel Malka (2170). Viðureignin ...
Lesa meira »Guðmundur byrjar með jafntefli í Barcelona
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson heldur ótrauður áfram taflmennsku sinni á Spáni og tekur nú þátt í opnu alþjóðlegu móti í Barcelona. Fyrsta umferð fór fram í gær og gerði Guðmundur jafntefli gegn stigalágum (2045) heimamanni. Önnur umferð fer fram í dag og þá mætir Guðmundur króatískum keppanda með 2096 stig. Tefldar eru tíu umferðir sem allar hefjast kl. 14.30 ...
Lesa meira »Harpa gengur í T.R.
Skákdrottningin Harpa Ingólfsdóttir Gígja er gengin til liðs við Taflfélag Reykjavíkur. Harpa varð Íslandsmeistari stúlkna árið 1995 og sama ár Íslandsmeistari með sveit Árbæjarskóla í sveitakeppni stúlkna. Hún hefur tekið þátt í heimsmeistaramótum ungmenna, þremur ólympíumótum, norðurlandamótum og evrópumeistaramótum. Harpa hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari kvenna, árið 2000 og 2004. Þá hefur hún hefur setið í stjórn Skáksambands Íslands, í stjórn ...
Lesa meira »Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2013
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2013 hefst sunnudaginn 15. september kl.14. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og jafnframt meistaramót T.R. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti og er það flokkaskipt. Mótið er öllum opið. Mótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12. Sú nýbreytni verður að teflt er tvisvar í viku. Alls ...
Lesa meira »Guðmundur í 7.-13. sæti í Figueres
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson heldur för sinni áfram á Spáni þar sem hann heldur sig enn við Katalóníu-hérað því dagana 11.-18. ágúst tók hann þátt í opnu alþjóðlegu móti í Figueres sem er einna helst þekkt fyrir að vera fæðingarborg Salvador Dali. Tefldar voru níu umferðir í þremur flokkum og tefldi Guðmundur í sterkasta flokknum þar sem hann var ...
Lesa meira »Róbert og Hallgerður sigruðu á Stórmótinu
Hin árlega skákhátíð Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fór fram í dag, en hátíðin hefur fyrir löngu unnið sér sess sem óopinbert upphaf skákvertíðarinnar. Dagskráin hófst á útitafli, venju samkvæmt. Að þessu sinni var teflt með taflmönnunum frá útitaflinu á Lækjartorgi, en hin fyrri ár hefur jafnan verið teflt lifandi tafl. Fráfarandi formaður TR, Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir, stýrði hvítu ...
Lesa meira »