Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2013



Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2013 hefst sunnudaginn 15. september kl.14. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og jafnframt meistaramót T.R. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti og er það flokkaskipt.  Mótið er öllum opið.

Mótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12. Sú nýbreytni verður að teflt er tvisvar í viku.  Alls eru níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi.

Skráning fer fram á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur.

Hægt er að fylgjast með skráningu hér.

Skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 14. september kl. 18.

 

Lokaumferð fer fram föstudaginn 18. október en mótinu lýkur með verðlaunaafhendingu sunnudaginn 20. október ásamt Hraðskákmóti T.R.

Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Daði Ómarsson.

 

Dagskrá:

1. umferð: Sunnudag 15. september kl.14.00
2. umferð: Miðvikudag 18. september kl.19.30

3. umferð: Sunnudag 22. september kl.14.00
4. umferð: Miðvikudag 25. september kl.19.30

5. umferð: Sunnudag 29. september kl.14.00

6. umferð: Miðvikudag 2. október kl.19.30
7. umferð: Sunnudag 6. október kl.14.00

—Hlé vegna Islandsmóts skákfélaga—
8. umferð: Miðvikudag 16. október kl. 19.30
9. umferð: Föstudag 18. október. kl.19.30

Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000
2. sæti kr. 50.000
3. sæti kr. 25.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2014

Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 20.000
2.-3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2014

Verðlaun í C-flokki:
1. sæti kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2014

Verðlaun í opnum flokki:

1. sæti kr. 10.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2014

 

Ef fjöldi lokaðra flokka eykst, verða verðlaun í þeim þau sömu og í C-flokki.

Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu.

 

Verði keppendur jafnir í efstu sætum verður peningaverðlaunum skipt en stigaútreikningur látinn ráða lokaröð keppenda.

Tímamörk:

1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik.

Þátttökugjöld:

3.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 16 ára og eldri (5.000 kr. fyrir aðra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 15 ára og yngri (2.500 kr. fyrir aðra).