Skákmót öðlinga hefst miðvikudaginn 12. febrúar



Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 12. febrúar kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Haraldur Haraldsson.

Dagskrá:
1. umferð miðvikudag 12. febrúar kl. 19.30
2. umferð miðvikudag 19. febrúar kl. 19.30
3. umferð miðvikudag 26. febrúar kl. 19.30
4. umferð miðvikudag 04. mars kl. 19.30
5. umferð miðvikudag 11. mars kl. 19.30
6. umferð miðvikudag 18. mars kl. 19.30
7. umferð miðvikudag 25. mars kl. 19.30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað 30 mínútum eða meira eftir upphaf umferðar.

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

Hraðskákmót öðlinga fer fram fimmtudaginn 26. mars kl. 19:30 og að því loknu fer þar fram verðlaunaafhending fyrir bæði mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

Tímamörk
90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik

Verðlaun
1. sæti kr. 40.000
2. sæti kr. 20.000
3. sæti kr. 10.000

Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks).

Oddastig: 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart

Þátttökugjald (greiðist með reiðufé við upphaf móts)

kr. 5.000 – Innifalið er frítt kaffi allt mótið ásamt rjómavöfflum og öðru góðgæti á lokakvöldi

Skákstjórn: IA Ólafur S. Ásgrímsson (s. 895 5860) & FA Jon Olav Fivelstad (s. 897 1864)

Skráningarform

Skráðir keppendur