KORNAX mótið 2012 – Skákþing Reykjavíkur hefst á morgun



KORNAX mótið 2012 – Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. janúar kl. 14. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1½ klst. á alla skákina auk 30 sek. á leik. Umferðir fara fram á miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30 og á sunnudögum kl. 14. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Verðlaun:

1. sæti kr. 100.000

2. sæti kr. 50.000

3. sæti kr. 25.000

Besti árangur undir 2000 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir 1800 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir 1600 skákstigum – bókaverðlaun (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir stigalausra – bókaverðlaun

Sigurvegarinn hlýtur auk þess nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur 2012 og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Björn Þorfinnsson.

Þátttökugjöld:

kr. 4.000 fyrir 16 ára og eldri

kr. 2.000 fyrir 15 ára og yngri

Dagskrá:

1. umferð sunnudag 8. janúar kl. 14

2. umferð miðvikudag 11. janúar kl. 19.30

3. umferð föstudag 13. janúar kl. 19.30

4. umferð sunnudag 15. janúar kl. 14

5. umferð miðvikudag 18. janúar kl. 19.30

6. umferð föstudag 20. janúar kl. 19.30

7. umferð sunnudag 22. janúar kl. 14

8. umferð miðvikudag 25. janúar kl. 19.30

9. umferð föstudag 27. janúar kl. 19.30

Skákþingið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Skráning fer fram á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur, www.taflfelag.is
Hægt er að fylgjast með skráningu hér.

Athugið að skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. kl. 13.45.