Sigur hjá Guðmundi í annari umferð



Eftir óvænt jafntefli í fyrstu umferð kom alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson sterkur til baka í annrri umferð sem fram fór í dag í Barcelona þar sem hann lagði króatískan keppanda með svörtu.  Guðmundur hefur því 1,5 vinning að loknum tveimur umferðum en í þriðju umferð, sem fer fram á morgun, hefur hann hvítt gegn franska skákmanninum Samuel Malka (2170).  Viðureignin hefst kl. 14.30 að íslenskum tíma.

  • Heimasíða mótsins
  • Chess-Results