Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 21. nóvember



JólamotLogo_simple 2021

Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkur verður haldið í húsnæði TR að Faxafeni 12 sunnudaginn 21. nóvember. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.

Tefldar verða 6 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur fyrir hverja skák og bætast 3 sekúndur við eftir hvern leik (5+3). Allir grunnskólar Reykjavíkurborgar eru hvattir til þess að senda skáksveitir í mótið. Engar takmarkanir eru á fjölda skáksveita og er skáksveitum hvers skóla styrkleikaraðað með bókstöfum (a-sveit, b-sveit, c-sveit og svo framvegis). Í hverri skáksveit tefla 4 keppendur og má hver sveit hafa 0-2 varamenn. Keppanda er heimilt að tefla í eldri flokki en aldur hans segir til um, en þó má einungis tefla í einum flokki (sem dæmi þá má keppandi í 3.bekk tefla í flokki 4.-7.bekkjar, en hann getur þá ekki teflt í flokki 1.-3.bekkjar). Mikilvægt er að liðsstjóri fylgi liðum hvers skóla og er æskilegt að hver liðsstjóri stýri ekki fleiri en þremur liðum.

Dagskrá mótsins:

  • Sun 21. nóv kl. 09:30 – 12:00 – 1.-3. bekkur.
  • Sun 21. nóv kl. 12:30 – 15:00 – 4.-7. bekkur
  • Sun 21. nóv kl. 15:30 – 18:00 –  8.-10. bekkur

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Einnig verða veitt þrenn verðlaun fyrir efstu stúlknasveitir hvers flokks .

Skráning fer fram í gegnum skráningarform sem finna má í gula kassanum á skak.is. Skráningu lýkur laugardaginn 20. nóvember klukkan 20:00. Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað. Fylgjast má með skráningu hér.

Skráningarform 

Skráð lið 

Mælst er til þess að liðsstjórar og keppendur mæti tímanlega svo mótahald geti hafist á tilsettum tíma.

Meðan á mótinu stendur ber liðsstjórum og skákstjórum að bera grímu. Hverju liði má að hámarki fylgja einn liðsstjóri. Við hvetjum foreldra og aðra forráðamenn til að skilja við börn sín við innganginn í Faxafeni 12 og sækja þau þangað að móti loknu. Ef ástæða er til þess að fylgja börnum inn ber viðkomandi að bera grímu. Engin veitingasala verður meðan á mótinu stendur en keppendum er heimilt að koma með nesti.