ALÞJÓÐABOÐSMÓT T.R. 2007
Reykjavik Invitation Intl. 2007
Chess results
Boðsmót T.R. 2007 hefur verið haldið nærri því eins lengi og elstu menn muna. Fyrirkomulagið var lengst af þannig, að sigurvegurum fyrri ára var boðið sérstaklega á hvert mót, en sá siður datt smám saman upp fyrir. Boðsmótið varð með tímanum "hefðbundið skákmót", sem varð að nokkru leyti einskonar olnbogabarn, þar eð það féll í skuggann af stærri mótum Taflfélagsins.
Boðsmótið 2006 var eitt hið sterkasta í fjölda ára og var teflt í tveimur flokkum. Sigurvegari í sterkum a-flokki var Lenka Ptacnikova, stórmeistari kvenna, en Patrekur Maron Magnússon sigraði í b-flokki, sem var opinn skákmönnum undir 1700 eló-stigum.
Að þessu sinni ákvað Torfi Leósson, sem hefur haft umsjón með mótinu hin síðustu ár, að breyta Boðsmótinu í alþjóðlegt skákmót, sem einkum hefði það að leiðarljósi, að gefa ungum og upprennandi skákmönnum færi á að keppa við sér sterkari skákmenn. Þessi breytta tillögun hlaut stuðning stjórnar T.R. á fundi í júlí síðastliðinn.
Í a-flokki var Daða Ómarssyni og Matthíasi Péturssyni, liðsmönnum hinnar sigursælu skáksveitar Laugalækjarskóla, sérstaklega boðið til mótsins af hálfu T.R.
Til baka