My System eftir Nimzowitsch var í raun fyrsta skákfræðibókin sem tók á þeim breyttu áherslum, sem voru að eiga sér stað í skákinni. Skákin var ekki aðeins list eða afþreyting, heldur fræði, þar sem lögmál og reglur stýrðu gangi skákarinnar. My System er umdeild en þó margt það, sem Nimzowitsch heldur þar fram, hafi ekki staðist tímans tönn, er þar að finna undirstöðuatriði skákfræða nútímans. En til viðbótar við fræðin í ofangreindri bók, vil ég lauma með bókinni Hypermodern Chess, sem hægt er að lesa hér að neðan.
|






