Í dag hófst í 85. sinn Skákþing Reykjavíkur en teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni. Björn Jónsson formaður félagsins setti mótið og í kjölfarið hófu keppendur leik á reitunum köflóttu. Mótið er vel skipað keppendum á öllum aldri og af öllum getustigum. Hátt í tuttugu keppendur hafa meira en 2000 Elo-stig, þeirra stigahæstur stórmeistarinn Stefán Kristjánsson (2471). Næstir ...
Lesa meira »Tag Archives: skákmót
Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 3. janúar
Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 3. janúar kl. 14. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1½ klst. á 40 leiki auk 30 sek. á leik. 15 mínútur bætast við eftir 40 leiki auk 30 sek. á leik. Umferðir fara fram tvisvar í viku, á miðvikudögum kl. 19.30 og á sunnudögum kl. 14. Teflt er í húsnæði Taflfélags ...
Lesa meira »Haraldur sigurvegari U-2000 mótsins
Haraldur Baldursson hefur tryggt sér sigurinn í U-2000 móti Taflfélags Reykjavíkur en hann hefur fullt hús vinninga að loknum sex umferðum og 1,5 vinnings forskot á næstu keppendur nægir til sigurs þar sem aðeins ein umferð lifir af móti. Sigur Haraldar er afar öruggur en hann hélt forystu frá fyrstu mínútu og það var aðeins vegna frestaðrar skákar sem hann ...
Lesa meira »Friðgeir efstur á U-2000 mótinu
Þegar fjórum umferðum af sjö er lokið á U-2000 móti TR er gamla brýnið, Friðgeir Hólm, efstur með 3,5 vinning. Næstir með 3 vinninga koma Arnaldur Bjarnason, Haraldur Baldursson og Björn Hólm Birkisson en Haraldur á inni frestaða skák og getur því náð efsta sætinu. Í fjórðu umferð sigraði Friðgeir unglingameistara TR, Aron Þór Mai, Björn Hólm lagði Gauta Pál ...
Lesa meira »U-2000 mótið hafið
U-2000 mót Taflfélags Reykjavíkur hófst í gær en það er nú endurvakið eftir tíu ára hlé. Mótið er opið öllum þeim sem hafa minna en 2000 Elo-stig og eru þátttakendur að mestu af yngri kynslóðinni en ásamt þeim taka þátt reyndir meistarar sem eru hvergi smeykir við að leggja stigin sín að veði gegn mörgum af efnilegustu skákmönnum landsins. Stigahæstur ...
Lesa meira »Barna- og unglingameistaramót TR fer fram sunnudaginn 25. október
Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 25. október í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Taflið hefst kl.14. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi með umhugsunartímanum 15 mín. á skák. Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum og þar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn ...
Lesa meira »Einar Hjalti sigurvegari Haustmótsins
Alþjóðlegi meistarinn Einar Hjalti Jensson er sigurvegari Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur 2015. Einar hlaut 7,5 vinning í skákunum níu og er vel að sigrinum kominn en hann fór taplaus í gegnum mótið. Í öðru sæti með 6,5 vinning var kollegi hans, Bragi Þorfinnsson, og þá var Oliver Aron Jóhannesson þriðji með 6 vinninga. Bragi var efstur TR-inga og er því Skákmeistari ...
Lesa meira »Æskan og Ellin fer fram laugardaginn 24. október
Skákmótið ÆSKAN OG ELLIN, þar sem kynslóðirnar mætast, verður haldið í tólfta sinn laugardaginn 24. október í Skákhöllinni í Faxafeni. Þetta er í þriðja sinn sem TAFLFÉLG REYKJAVÍKUR og RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu með stuðningi OLÍS standa saman að mótshaldinu til að tryggja það að myndarlega sé að því staðið. Fyrstu 9 árin var mótið verið haldið í ...
Lesa meira »Móðir allra skemmtikvölda fer fram á föstudagskvöld!
Lokaskemmtikvöld starfsársins hjá Taflfélagi Reykjavíkur fer fram á föstudagskvöld og hefst klukkan 20.00 Nú er mikið er undir, enda leiða saman hesta sína sigurvegarar allra skemmtikvöldanna í vetur í epískri baráttu um titilinn Skemmtikvöldakóngurinn 2015. En það verður einnig nóg af taflmennsku fyrir alla þá skákmenn sem ekki höfðu erindi sem erfiði við að tryggja sér sæti í úrslitunum, því ...
Lesa meira »Júlíus Hraðskákmeistari öðlinga
Júlíus L. Friðjónsson sigraði á Hraðskákmóti öðlinga sem fór fram í gær og er því Hraðskákmeistari öðlinga 2015. Athygli vekur að Júlíus er sjöundi skákmaðurinn sem hlýtur titilinn á jafnmörgum árum. Júlíus var í forystu allan tímann og setti tóninn í þriðju og fjórðu umferð þegar hann lagði helstu keppinauta sína, þá Þorvarð Ólafsson og Pálma Pétursson. Þegar upp var staðið hafði hann ...
Lesa meira »Fjöltefli og fjör á vorhátíðarskákæfingu TR
Laugardaginn 16. maí fór fram vorhátíðarskákæfing TR í taflheimili félagsins í Faxafeni. Um 40 skákkrakkar úr öllum skákhópum félagsins mættu á sameiginlega lokaæfingu. Þetta var sannkölluð uppskeruhátíð, þar sem einnig fór fram verðlaunaafhending fyrir ástund og árangur á æfingum félagsins í vetur. Skemmtilegt var hvað mæting var góð úr öllum skákhópunum: byrjendahópunum, laugardagsæfingahópnum, afrekshópnum og stelpuskákhópnum. Salurinn var uppraðaður fyrir ...
Lesa meira »Einar öruggur sigurvegari Skákmóts öðlinga
Skákmóti öðlinga lauk síðastliðið miðvikudagskvöld þegar sjöunda og lokaumferð mótsins fór fram. Fyrir umferðina hafði Einar Valdimarsson vinningsforskot og dugði því jafnteflil gegn Haraldi Baldurssyni en Einar gerði sér lítið fyrir og kórónaði frammistöðu sína með sigri og hlaut því fullt hús vinninga, tveimur vinningum meira en næstu keppendur. Viðlíka árangur í Öðlingamótinu hefur ekki sést hin síðari ár en ...
Lesa meira »Öðlingamótinu lýkur í kvöld – Einar enn einn efstur
Skákmóti öðlinga lýkur í kvöld þegar sjöunda og síðasta umferðin fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni. Mótið hefur verið sérlega skemmtilegt og hefur Einar Valdimarsson (1945) vakið athygli fyrir frammistöðu sína en hann er í kjörstöðu fyrir kvöldið með fullt hús vinninga, vinningi meira en Þorvarður Fannar Ólafsson (2222). Næstir með 4 vinninga eru Halldór Pálsson (2030), Ögmundur Kristinsson (2030), ...
Lesa meira »Hannes efstur fyrir lokaumferð Wow air vormótsins
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson en einn efstur fyrir lokaumferðina í Wow air vormóti Taflfélags Reykavíkur. Mikið var um frestanir í sjöttu umferðinni enda eru margir keppenda að þreyta próf um þessar mundir. Hannes sem sigraði Ingvar Þór Jóhannesson örugglega í frestaðri skák á miðvikudagskvöldið er með fimm vinninga eftir sex skákir, hálfum vinning á undan Davíð Kjartanssyni sem gerði jafntefli ...
Lesa meira »Mykhaylo sigurvegari lokamóts Bikarsyrpunnar
Í dag fóru fram tvær síðustu umferðirnar í fjórða og síðasta móti Bikarsyrpu TR þetta tímabilið og var loftið sannarlega lævi blandið í Skákhöll félagsins að Faxafeni. Upp úr klukkan tíu í morgun tóku keppendur að tínast á skákstað, enn á ný tilbúnir að murka líftóruna úr andstæðingum sínum, alltsvo á hinum mögnuðu 64-reita borðum. Fyrir fjórðu umferð leiddi Nikulás ...
Lesa meira »Nikulás efstur á lokamóti Bikarsyrpunnar – Rosaleg barátta
Slagsmál, bardagar og drápshótanir flugu út um allt í Skákhöllinni í dag en viðstaddir kipptu sér lítið upp við atganginn, jafnvel foreldrar og forráðamenn ungmennanna sem áttu í hlut gerðu ekkert til að stöðva brjálæðið. Enda var hér um að ræða hina blóði drifnu bardaga taflmannanna þrjátíu-og-tveggja á hinum dýrmætu svart-hvítu reitum, sem telja alls sextíu-og-fjóra, þegar önnur og þriðja ...
Lesa meira »Öðlingamótið: Einar vann eina enn – Einn á toppnum
Einar Valdimarsson (1945) fer mikinn á Skákmóti öðlinga og er nú einn efstur með fullt hús vinninga eftir sigur á Guðlaugu Þorsteinsdóttur (1943) í fimmtu umferð. Einar hefur vinningsforskot á þá félaga, Þorvarð F. Ólafsson (2222) og Halldór Pálsson (2030), sem höfðu betur gegn Haraldi Baldurssyni (1984) og Eiríki K. Björnssyni (1959). Athyglisvert er að skákirnar á fyrstu fjórum borðunum ...
Lesa meira »Hannes og Davíð efstir á Wow air vormóti TR
Hannes Hlífar Stefánsson og Davíð Kjartansson leiða A flokk Wow air mótsins með fjóra vinninga eftir fimm umferðir. Hannes gerði jafntefli við Braga Þorfinnsson meðan Davíð lagði Oliver Aron Jóhannesson í frestaðri skák sem tefld var í gærkvöldi. Einar Hjalti Jensson bar sigurorð af Þorvarði Fannar Ólafssyni, Dagur Ragnarsson sigraði Jóhann Ingvason og Hrafn Loftsson stýrði svörtu mönnunum til sigurs ...
Lesa meira »Björn Ívar Karlsson Íslandsmeistari í Fischer Random 2015!
Síðastliðið föstudagskvöld fór fram Íslandsmótið í Fischer Random á skemmtikvöldi Taflfélags Reykjavíkur. Margir sterkir skákmenn voru mættir til leiks og þeirra á meðal ríkjandi meistari frá síðasta ári, alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson. Hann sigraði þá með fádæma yfirburðum og fékk 11.5 vinninga úr 12 skákum. Fáir áttu von á því að það met yrði slegið í ár. Björn Ívar Karlsson ...
Lesa meira »Fjórða mótið í Bikarsyrpu T.R. hefst föstudaginn 1. maí
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur er nýjung í mótahaldi á Íslandi. Syrpan samanstendur af nokkrum kappskákmótum og er ætluð börnum á grunnskólaaldri (fædd 1999 og síðar) sem ekki hafa náð 1600 skákstigum. Þar með gefst þeim tækifæri til að næla sér í alþjóðleg skákstig á skákmótum sem sérhönnuð eru fyrir þau. Fjórða mótið í syrpunni hefst föstudaginn 1. maí og stendur til ...
Lesa meira »