1990
Taflfélag Reykjavíkur tók nú þátt í Meistaradeild Evrópu - Evrópumóti taflfélaga í annað skipti. Sterkasta lið félagsins mætti til leiks, en ekki aðeins sigurlið T.R. SA. frá Deildakeppni S.Í.
Það verður að segjast, að T.R. náði hér vísast besta árangri, sem íslenskt skáklið hefur nokkru sinni náð eða mun ná í komandi framtíð. Félagið komst þá í undanúrslit, en féll þar úr leik á stigatölu, eftir jafntefli við þýska stórliðið Solingen.
En athyglivert er, að hér tefldi T.R. við skákdeildir ríkra íþróttafélaga, þar sem peningar skipta engu máli og liðsmenn eru "keyptir", en ekki aldir upp hjá umræddu félagi, eins og í tilviki T.R. En úrslit urðu eftirfarandi:
1. umferð: T.R. - Anderlecht 7,5 - 4,5
2. umferð: T.R. - Bayern Munchen 6,5 - 5,5
3. umferð: T.R. - M.T.K. Budapest 8,5 - 3,5
4. umferð: T.R. - Solingen 6,0 - 6,0
Þetta var sárgrætilegt. T.R. virtist vera að landa sigrinum, en tap í síðustu skákinni gaf Solingen færi á að jafna og sigra á stigamun, þ.e. sigrar komu á hærri borðum. T.R. hafði því nú fallið út annað árið í röð á stigamun. En það jákvæða var, að félagið hafði enn ekki beðið ósigur í viðureign í Meistaradeild Evrópu.
Lið T.R. skipuðu:
En nú varð hlé á þátttöku Taflfélags Reykjavíkur í Meistaradeild Evrópu sökum féleysis.