Author Archives: Þórir

CCP færði T.R. veglega gjöf

Tölvuleikjafyrirtækið CCP sem framleiðir og rekur fjölspilunarleikinn Eve online færði Taflfélagi Reykjavíkur í gær að gjöf öflugan skjávarpa, fartölvu af nýjustu gerð auk peningastyrks. Það var Eldar Ástþórsson frá CCP sem afhenti búnaðinn á fjölmennri barna- og unglingaæfingu félagsins og mun hann nýtast einkar vel við þjálfun og kennslu í öflugu barnastarfi félagsins.  Vignir Vatnar Stefánsson Unglingameistari T.R. 2012, sem ...

Lesa meira »

Jólamót T.R. og Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur

Keppnisstaður:  Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12. Yngri flokkur (1. – 7. bekkur). Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda A, B, C o.s.frv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir.  Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara. Keppni í yngri flokki verður sunnudaginn  2. desember kl. 14:00. Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) ...

Lesa meira »

Glæsilegur hópur TR-krakka á Íslandsmóti unglingasveita.

Laugardaginn 24. nóvember fór fram Íslandsmót unglingasveita í Garðaskóla.  Taflfélag Reykjavíkur leggur metnað í að gefa sínum krökkum tækifæri á að taka þátt og sendi að þessu sinni 3 sveitir til leiks.  Hefði félagið raunar sent 1-2 fleiri sveitir ef ekki hefðu komið til forföll á síðustu stundu.   Fyrir krakkana er þetta mót mikil reynsla, en hér fá þau ...

Lesa meira »

Góður árangur Vignis Vatnars á Heimsmeistaramóti ungmenna

Lokaumferðin á Heimsmeistaramóti ungmenna í Maribor, Slóveníu, fór fram í gær og lauk Vignir Vatnar Stefánsson þátttöku sinni í flokki tíu ára og yngri með sigri á stigalausum heimamanni og tryggði sér þannig sæti í efri hluta töflunnar.  Hann hlaut 6 vinninga í ellefu skákum og hafnaði í 61.-83. sæti af tæplega 200 keppendum.  Vignir var númer 91 í stigaröðinni ...

Lesa meira »

Sverrir og Júlíus efstir á Vetrarmóti öðlinga

Á meðan börnin og unglingarnir sitja að tafli á Heimsmeistaramóti ungmenna í Slóveníu eru það öllu reynslumeiri skákmenn sem taka þátt í Vetrarmóti öðlinga hjá Taflfélagi Reykjavíkur þessar vikurnar.  Góður tími er tekinn í mótið, sem telur sjö umferðir, og er teflt einu sinni í viku.  Síðastliðið miðvikudagskvöld fór fram þriðja umferð og að henni lokinni eru tveir keppendur með ...

Lesa meira »

Vignir Vatnar tapaði í tíundu umferð

Fulltrúi Íslands á Heimsmeistaramóti ungmenna, hinn níu ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson, tapaði í tíundu og næstsíðustu umferðinni fyrir Frakkanum, Albert Tomasi.  Vignir, sem hefur átt mjög gott mót, er í 58.-82. sæti með 5 vinninga fyrir lokaumferðina sem hefst kl. 9 í fyrramálið.  Þá mætir hann Slóvenanum, Peter Krzan, en sá er stigalaus og hefur enn engar skákir skráðar ...

Lesa meira »

Tap hjá Vigni Vatnari í dag

Vignir Vatnar Stefánsson hefur verið á mjög góðu flugi á Heimsmeistaramóti ungmenna en varð þó að játa sig sigraðan í dag gegn Rússanum, Nikita Samsonov.  Að loknum níu umferðum hefur Vignir 5 vinninga og er í 54.-85. sæti sem telst mjög gott enda hefur hann teflt upp fyrir sig allt mótið.  Þegar tvær umferðir eru eftir af mótinu hefur Vignir ...

Lesa meira »

Vignir með jafntefli í 8. umferð – mætir enn Rússa

Vignir Vatnar heldur áfram að ná hagstæðum úrslitum gegn stigahærri andstæðingum því í áttundu umferð sem fór fram í dag gerði hann jafntefli við Rússann, Egor Sedykh, en hann er rúmlega 200 skákstigum hærri en Vignir.  Þegar þrjár umferðir eru eftir er Vignir í 31.-52. sæti með 5 vinninga.  Athygli vekur að Víetnaminn sem er efstur er með fullt hús ...

Lesa meira »

Vignir Vatnar og Rússarnir – sigur í 7. umferð

Fulltrúi Íslendinga á Heimsmeistaramóti ungmenna í Maribor, Slóveníu, Vignir Vatnar Stefánsson, sigraði enn einn Rússann í dag.  Vignir hafði svart og kemur sér aftur í efri hlutann með þessum góða sigri en andstæðingur hans hafði byrjað mjög vel í mótinu.  Það þarf vart að taka fram að enn eina ferðina var Vignir Vatnar að tefla upp fyrir sig en að ...

Lesa meira »

Tap hjá Vigni í sjöttu umferð

Vignir Vatnar tapaði fyrir Rússanum Vitaly Gurvich í sjöttu umferð HM ungmenna sem fór fram í dag.  Vignir hefur engu að síður byrjað mjög vel og þegar keppni er hálfnuð situr hann í 48.-81. sæti með 3,5 vinning en allir andstæðingar hans hafa verið töluvert hærri á stigum að undanskilinni fyrstu umferð.  Árangur Vignis hingað til í mótinu jafngildir 1801 ...

Lesa meira »

Vignir á flugi – sigraði í fimmtu umferð

Hinn níu ára TR-ingur, Vignir Vatnar Stefánsson, er heldur betur að finna sig á HM ungmenna sem fer fram í Slóveníu þessa dagana.  Vignir hefur teflt langt upp fyrir sig allt mótið ef frá er skilin fyrsta umferð og í fimmtu umferð, sem fór fram í morgun, lagði hann Rússann Ivan Kharitonov með svörtu.  Andstæðingur Vignis var að þessu sinni ...

Lesa meira »

Sigur hjá Vigni í fjórðu umferð

Fjórða umferð á Heimsmeistaramóti ungmenna fór fram í dag og okkar maður, Vignir Vatnar Stefánsson, gerði sér lítið fyrir og vann Rússann, Anton Sidorov, í hörkuskák sem taldi 70 leiki.  Flottur sigur hjá Vigni en rússneski strákurinn er um 250 stigum hærri.  Vignir er núna með 2,5 vinning, hefur byrjað mótið vel og er með ágætis stigagróða sem stendur.  Pörun ...

Lesa meira »

Tap hjá Vigni í dag

Vignir Vatnar beið í dag lægri hlut fyrir úkraínska skákmanninum, Kirill Shevchenko, í hörkuskák.  Vignir hafði svart en andstæðingur hans er greinilega enginn aukvisi og mjög efnilegur skákmaður en hann varð þriðji í flokki átta ára og yngri á Heimsmeistaramótinu 2010.  350 stigum munar á Vigni og þeim úkraínska svo okkar maður getur farið sáttur frá borði eftir hetjulega baráttu.  ...

Lesa meira »

Vignir með jafntefli í dag

Vignir Vatnar Stefánsson gerði jafntefli við enska skákmanninn, Anthony Y Zhang, í annarri umferð Heimsmeistaramóts ungmenna sem fram fór í dag.  Góð úrslit fyrir Vigni þar sem andstæðingur hans er um 250 stigum hærri en hann.  Vignir hefur því 1,5 vinning að loknum tveimur umferðum og fær að öllum líkindum aftur stigahærri andstæðing í þriðju umferð sem hefst á morgun ...

Lesa meira »

Fjórir með fullt hús á Vetrarmóti öðlinga

Önnur umferð fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld og voru úrslit nokkuð eftir bókinni en helst má nefna að Þorvarður F. Ólafsson og Siguringi Sigurjónsson gerðu jafntefli en um 250 elo stigum munar á þeim félögum.  Önnur úrslit á efstu borðum voru þau að Júlíus Friðjónsson sigraði Kjartan Ingvarsson, Gylfi Þórhallsson sigraði Bjarna Sæmundsson og þá lagði Sverrir Örn Björnsson Vigni Bjarnason. ...

Lesa meira »

Vignir Vatnar byrjar með sigri

Hinn ungi og efnilegi liðsmaður Taflfélags Reykjavíkur, Vignir Vatnar Stefánsson, tekur þátt fyrir Íslands hönd í Heimsmeistaramóti ungmenna sem hófst í dag í Maribor, Slóveníu.  Vignir, sem er á tíunda aldursári, er á meðal tæplega 200 keppenda í opnum flokki tíu ára og yngri.  Mótið er gríðarlega fjölmennt og telur alls tæplega 1.600 keppendur sem koma frá u.þ.b. eitthundrað löndum ...

Lesa meira »

Skákæfingar T.R. á fullri ferð!

Þrátt fyrir vonskuveður á laugardaginn var, 3. nóvember, mætti hátt á fjórða tug barna og unglinga á skákæfingu í félagsheimili T.R. Að þessu sinni var sameiginleg æfing hjá afrekshóp T.R. og yngri hópnum. Það var skemmtilegt tækifæri fyrir þau yngri að reyna sig á móti eldri og reyndari skákkrökkunum. Salurinn er um þessar mundir uppraðaður fyrir Vetrarmót öðlinga, þannig að ...

Lesa meira »

Framundan hjá Taflfélagi Reykjavíkur

Þegar vetur konungur virðist genginn í garð er ekki úr vegi að líta á hvað er framundan í mótahaldi félagsins.  Vetrarmót öðlinga er nýhafið og fer önnur umferð fram næstkomandi miðvikudagskvöld en að venju er teflt í húsnæði T.R. að Faxafeni 12 og eru áhorfendur velkomnir.  Heitt á könnunni!   2. og 3. desember fara fram Jólaskákmót T.R. og Skóla- ...

Lesa meira »