Jólamót T.R. og Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur



Keppnisstaður:  Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12.

Yngri flokkur (1. – 7. bekkur).

Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda A, B, C o.s.frv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir.  Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara.

Keppni í yngri flokki verður sunnudaginn  2. desember kl. 14:00.

Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi.

Umhugsunartími: 15 mín. á skák. Þátttökurétt hafa börn úr grunnskólum Reykjavíkur í

1.-7. bekk.  Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni.

 

Keppnisstaður:  Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12.

Eldri flokkur (8. – 10. bekkur).

Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda A, B, C o.sfrv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir.  Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara.

Keppni í eldri flokki verður mánudaginn 3. desember kl. 17:00.

Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi.

Umhugsunartími: 15. mín. á skák. Þátttökurétt hafa unglingar úr grunnskólum Reykjavíkur í 8.-10. bekk. Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni.