Demo Blog With Map

Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld klukkan 19:30

rvkmotgrsksv-620x330

Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta ...

Lesa meira »

Boðsmót TR hefst á föstudaginn!

345106567_641068031246471_7787960832088861433_n (1)

Boðsmót TR verður haldið dagana 10.-12. maí næstkomandi. Þrátt fyrir nafngiftina er mótið opið öllum! Núverandi boðsmótsmeistari er Hilmir Freyr Heimisson. Mótið var haldið frá 1968 til 2007 og endurvakið 2022. Fyrirkomulag mótsins: Föstudagurinn 10. maí klukkan 19:30 1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5 Laugardagurinn 11.  maí klukkan 11: 5. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30 Laugardagurinn 11.  maí klukkan 17: 6. umferð, kappskák með ...

Lesa meira »

Meistaramót Truxva verður 20. maí!

Ingvar Wu, Jóhann, Vignir og Hilmir, verðlaunahafar á mótinu 2023.

Meistaramót Truxva verður haldið mánudagskvöldið 20. maí, annan í hvítasunnu, í skáksal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið er nú haldið í áttunda sinn og er opið öllum skákmönnum. Taflið hefst stundvíslega klukkan 18:30. (ath. klukkutíma fyr en vanalega með hraðskákmót í TR) Tefldar verða 11 eða 13 umferðir með tímamörkunum 3m+2s. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Verðlaun: 1.sæti 25.000 kr. 2.sæti 15.000 kr. 3.sæti 10.000 kr. U2000 Bókaverðlaun ...

Lesa meira »

Aðalfundur TR verður miðvikudaginn 15. maí

logo-2

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur verður haldinn í félagsheimilinu Faxafeni 12, miðvikudaginn 15. maí og hefst hann kl. 19.30. Dagskrá: Almenn aðalfundarstörf Önnur mál Stjórnin

Lesa meira »

Lenka öðlingameistari 2024! Bragi vann hraðskákina

odl_1

Skákþing Öðlinga, eða einfaldlega Öðlingamótið, fór fram í TR frá 14. febrúar til 3. apríl. Mótið er fyrir alla skákmenn sem eru 40 ára eða eldri. Mótið var heldur fámennara en oft áður, 22 skráðir til leiks, en að sjálfsögðu afar góðmennt – reyndar bókstaflega afar góðmennt enda margir þátttakenda afar.  Til að byrja með einkenndist mótið af fantaformi Kristjáns ...

Lesa meira »

Sumarsyrpa TR! Upplýsingar og dagskrá

forsíðumynd bikarsyrpa IV 2024

Sumarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur göngu sína sumarið 2024. Eru mótin með sama fyrirkomulagi og Bikarsyrpurnar, kappskákmót fyrir börn með minna en 1800 skákstig. Mótin fara fram þriðju helgi hvers sumarmánaðar, júní, júlí og ágúst. Bikarsyrpurnar hafa verið haldnar í 10 ár, en þetta er í fyrsta sinn sem mót af því tagi eru haldin á sumrin í TR.  Mótin verða:  ...

Lesa meira »

Viðeyjarmótið fer fram sunnudaginn 7. júlí!

Teflt úti

Taflfélag Reykjavíkur heldur skákmót í Viðeyjarstofu í samstarfi við Eldingu og Borgarsögusafn sunnudaginn 7. júlí kl. 13. Mótið er opið öllum áhugasömum og þátttaka ókeypis en greiða þarf í ferjuna. Þetta verður þriðja sinn sem mótið verður haldið. Frétt mótsins 2021   Frétt mótsins 2022 Frétt mótsins 2023  Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur á mann og 2 sekúndur á leik) og mótið ...

Lesa meira »

Fimmtudagsmót hjá TR í kvöld klukkan 19:30

rvkmotgrsksv-620x330

Hraðskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru 10 skákir og tímamörkin eru 3 mínútur á skákina að viðbættum 2 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta ...

Lesa meira »

Bikarsyrpa T.R V (17-19 maí) 2023-24

forsíðumynd bikarsyrpa IV 2024

Helgina (17-19 maí) fer fram næsta mót í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er fimmta mótið af fimm sem haldið er á tímabilinu 2023-24. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur að Faxfeni 12 Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem ...

Lesa meira »

Ekkert þriðjudagsmót þann 30. apríl

fimmt_4

Það verður ekkert þriðjudagsmót þann 30. apríl. Við beinum fastagestum okkar á skákmót sem stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson heldur á Snooker & Pool Lágmúla þetta sama kvöld. Upplýsingar og skráning á mótið á Snooker & Pool

Lesa meira »

Dagskrá Haustmóts TR 2024

Taflfelag

Dagskrá Haustmóts TR liggur fyrir. Mótið mun hefjast miðvikudaginn 4. september og því mun ljúka sunnudaginn 22. september. Teflt verður á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum. Nánari upplýsingar og skráning birt á netinu þegar nær dregur. Stjórn TR

Lesa meira »

Rimaskóli sigursæll á Reykjavíkurmóti grunnskóla 2024!

Rimaskóli vann í flokki 4.-7. bekkjar! Mynd: Helgi Árnason.

  Reykjavíkurmót grunnskóla 2024 fór fram dagana 3. og 4. apríl síðastliðinn. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla og frístundasviðs Reykjavíkur (SFS) og Taflfélags Reykjavíkur. Keppt var í þremur flokkum, 1.-3. bekk, 4.-7. bekk og 8.-10. bekk. Fyrri daginn fór fram keppni 1.-3. bekkjar og daginn eftir voru eldri flokkarnir haldnir hver af öðrum, sá seinni samhliða fimmtudagshraðskákmóti TR sem ...

Lesa meira »

Hraðskákmót öðlinga fer fram í kvöld!

rvkmotgrsksv-620x330

Hraðskákmót öðlinga 2024 fer fram miðvikudaginn 10. apríl, og hefst taflmennskan kl. 19.30. Mótið er opið fyrir alla 40 ára og eldri (f. 1984 og síðar). Tefldar verða 7 umferðir með 5+3 umhugsunartíma. Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga sem lýkur þann 3. apríl. Þátttökugjald er kr. 1,000 fyrir þá sem tóku ekki þátt ...

Lesa meira »

Theodór Eiríksson sigurvegari Bikarsyrpu IV, Emilía Embla efst stúlkna

forsíðumynd bikarsyrpa IV 2024

Helgina 5-7 apríl fór fram fjórða mótið í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Mótaröðin sem er að fagna tíu ára afmæli sínu er orðið eitt af fjölmennustu ungmennamótum landsins og hefur færst meir í vinsældir síðustu ár. Er þetta jafnframt eitt af fáum kappskákmótum sem eingöngu er ætlað þessum ákveðna aldurshóp.  Að þessu sinni voru 48 keppendur mættir til leiks og af ...

Lesa meira »

Reykjavíkurmót grunnskóla 2024 verður 3. og 4. apríl

Reykjavíkurmót-grunnskóla-2017-1024x376

Reykjavíkurmót grunnskólasveita 2024 hefst í húsnæði TR að Faxafeni 12 miðvikudaginn 3. apríl kl. 16.30 með keppni 1.-3. bekkjar. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt eins og undanfarin ár; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppni 4.-7. bekkjar og 8.-10. bekkjar fer fram daginn eftir, fimmtudaginn 4. apríl. ...

Lesa meira »

Bikarsyrpa IV (5-7 apríl) 2023-24

BikarsyrpanBanner_generic

Helgina (5-7 apríl) fer fram næsta mót í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er fjórða mótið af fimm sem haldið er á tímabilinu 2023-24. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur að Faxfeni 12 Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja ...

Lesa meira »

Þriggja ára samningur við Aleksandr Domalchuk-Jonasson

aleksandr

Aleksander Domalchuk-Jonassona hefur skrifað undir samning við félagið um stuðning til næstu þriggja ára til að gera honum kleift að ná markmiðum sínum í skák og að tefla fyrir hönd félagsins innan lands sem utan. Aleksandr hefur bætt sig mikið á stuttum tíma og varð til að mynda alþjóðlegur meistari ásamt því að ná stórmeistaraáfanga, á nýloknu Íslandsmóti skákfélaga. Stuðningurinn ...

Lesa meira »

Páskahraðskákmót TR fer fram á morgun!

paskaegg

Páskahraðskákmót TR fer fram laugardaginn 30. mars klukkan 13:00. Tefldar verða 11. umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Þáttökugjöld: 1000 krónur. 500 krónur fyrir 17 ára og yngri og ókeypis fyrir 17 ára og yngri í TR, og alla alþjóðlega- og stórmeistara. Skráning fer fram á netinu, en hægt er að skrá sig í gula kassanum á skak.is ...

Lesa meira »

Það verða skákæfingar á morgun!

lau-aef (2)

Æfingar falla ekki niður á morgun, laugardaginn 30. mars nema manngangskennsla. Byrjendaflokkur og framhaldsflokkur á sínum stað.  

Lesa meira »

Æskan sigrar á Stúlkna- og Drengjameistaramóti Reykjavíkur

Emilía og Pétur liggjandi

Pétur Úlfar og Emilía Embla Reykjavíkurmeistarar. Það voru hátt í 100 krakkar (97 í allt) sem söfnuðust saman í dag í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur og háðu skemmtilega orrustu á reitunum 64 á Stúlkna- og Drengjameistaramóti Reykjavíkur. Skipt var í fjóra flokka, þrjá yngri aldursflokka og einn opinn flokk. Miðað við þátttökuna er ekki ólíklegt að skipta þurfi í fleiri flokka ...

Lesa meira »