Sumarsyrpa TR! Upplýsingar og dagskrá



Sumarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur göngu sína sumarið 2024. Eru mótin með sama fyrirkomulagi og Bikarsyrpurnar, kappskákmót fyrir börn með minna en 1800 skákstig. Mótin fara fram þriðju helgi hvers sumarmánaðar, júní, júlí og ágúst. Bikarsyrpurnar hafa verið haldnar í 10 ár, en þetta er í fyrsta sinn sem mót af því tagi eru haldin á sumrin í TR. 

Mótin verða: 

14.-16. júní 

19.-21. júlí 

16.-18. ágúst

Mótin fara fram í Taflfélagi Reykjavíkur að Faxfeni 12. 

Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan (og nú Sumarsyrpan!) er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.

Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2008 eða síðar) sem ekki hafa náð 1800 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

Í mótunum eru tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.

Dagskrá mótanna þriggja í sumar

  1. umferð: kl. 17.30 (fös)
  2. umferð: kl. 10.00 (lau)
  3. umferð: kl. 13.00 (lau)
  4. umferð: kl. 16.00 (lau)
  5. umferð: kl. 10.00 (sun)
  6. umferð: kl. 13.00 (sun)
  7. umferð: kl. 16.00 (sun)

Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni 7. umferð hvers móts. 

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. 

Hugsunin á bakvið yfirsetu að ef maður kemst ekki í einhverja umferð í fyrri hluta móts (í þessi tilviki umferðir 1.-5)  þá er samt hægt að taka þátt í mótinu.

Merkja skal við fyrirhugaðar yfirsetur í neðangreindu skráningarformi. Annars skal tilkynna skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 15 mínútum eftir að viðkomandi umferð hefst.

Þátttökugjald í mótið er 2.000kr. Systkynaafsláttur er 50%.

Börn sem eru félagar í TR greiða ekki þátttökugjald.

Sigurvegari hvers móts sem og efsta stúlkan hljóta að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sæti og 3. sæti. Veglegur farandbikar verður veittur fyrir besta samanlagðan árangur í mótum sumarsins og þá gilda tvö bestu mótin af þremur. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir besta samanlagðan árangur (tvö mót) fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sæti gefur 5 einkatíma, 2. sæti gefur 3 einkatíma og 3. sæti gefur 2 einkatíma.

Skráning fer eingöngu fram í gegnum skráningarform sem birtast á heimasíðu TR, taflflega.is og á skak.is, þegar nær dregur mótunum. Hlökkum til að sjá ykkur!

Hægt er að hafa samband á netfanginu: taflfelag@taflfelag.is