Author Archives: Þórir

Jóhann Örn sigurvegari Jólahraðskákmótsins

Jóhann Örn Ingvason stóð uppi sem sigurvegari í árlegu Jólahraðskákmóti T.R. sem fór fram í gær.  Jóhann hlaut 11,5 vinning í skákunum fjórtán en tefldar voru 2x sjö umferðir.  Annar í mark með 11 vinninga var hinn ungi og efnilegi Vignir Vatnar Stefánsson og jöfn í 3.-4. sæti með 10,5 vinning voru Elsa María Kristínardóttir og Örn Leó Jóhannsson en ...

Lesa meira »

Jólahraðskákmót T.R. fer fram 27. desember

Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið föstudaginn 27. desember kl. 19.30. Tefldar verða 2×7 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma. Mótið fer fram í húsnæði T.R. að Faxafeni 12. Þátttökugjald er kr. 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Sigurvegari síðasta árs var Oliver Aron Jóhannesson.

Lesa meira »

Þátttaka T.R. í fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga

Kjartan Maack hefur sett saman góðan pistil um þátttöku félagsins í fyrri hluta Íslandsmótsins sem fór fram fyrr í vetur. Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga var haldinn helgina 10-13.október í Rimaskóla. Taflfélag Reykjavíkur sendi 5 sveitir til keppni sem að þessu sinni voru talsvert veikari en árið áður, ef undan eru skyldar unglingasveitir félagsins. Munaði þar mikið um fjarveru stórmeistaranna Friðriks ...

Lesa meira »

Skákir Vetrarmóts öðlinga

Kjartan Maack hefur slegið inn skákirnar úr Vetrarmóti öðlinga en þær má nálgast hér að neðan. Skákirnar Chess-Results Myndir

Lesa meira »

Góður árangur ungra liðsmanna T.R.

Síðastliðinn fimmtudag fór fram veglegt Jólamót Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs þar sem TR-ingar létu sig ekki vanta.  Árangur þeirra var sérlega góður en þeir Vignir Vatnar Stefánsson, Björn Hólm Birkisson og Bárður Örn Birkisson voru meðal sex efstu að móti loknu.  Vignir Vatnar varð annar með 7,5 vinning af níu, Björn Hólm varð þriðji með 6,5 vinning og tvíburabróðir ...

Lesa meira »

Halldór Pálsson Vetrarmeistari öðlinga

Gríðarlega spennandi Vetrarmóti öðlinga lauk síðastliðið miðvikudagskvöld þegar sjöunda og lokaumferðin fór fram í húsnæði Taflfélags Reykajvíkur að Faxafeni 12.  Áður en úrslita er getið er rétt að minnast á þær glæsilegu veigar sem Birna Halldórsdóttir bauð upp á og það endurgjaldslaust.  Birna er fyrir löngu orðin rómuð fyrir velgjörðir sínar í þágu Taflfélagsins og verður henni seint fullþakkað fyrir ...

Lesa meira »

Glæsileg jólaskákæfing fór fram í gær

Laugardaginn 7. desember var haldin síðasta skákæfingin á árinu 2013, sem jafnframt var hin eina og sanna Jólaskákæfing TR. Jólaskákæfingin hvert ár er alltaf skemmtilegur viðburður fyrir krakkana í TR, því þá er bæði hátíðleiki og leikur í gangi. Þetta er uppskeruhátíð haustannarinnar og krakkarnir fá viðurkenningu fyrir ástundun og árangur. Síðan er brugðið á leik í fjölskylduskákmóti, tónlistarflutningur á ...

Lesa meira »

Gauti Páll þriðji í Skákþingi Garðabæjar

Hinn fjórtán ára efnilegi TR-ingur, Gauti Páll Jónsson, gerði sér lítið fyrir og hafnaði í 3. sæti í Skákþingi Garðabæjar sem lauk á dögunum.  Gauti, sem hefur 1589 Elo stig (1565 við upphaf mótsins), var 14. í stigaröðinni af 29 keppendum og hlaut 5 vinninga af 7 mögulegum.  Þetta er sannarlega góður árangur hjá Gauta sem tapaði aðeins einni skák ...

Lesa meira »

Halldór og Gylfi leiða Vetrarmót öðlinga

Halldór Pálsson og Gylfi Þór Þórhallsson eru efstir og jafnir með 5 vinninga í Vetrarmót öðlinga.  Í sjöttu og næstsíðustu umferð sem fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld vann Gylfi Harald Baldursson og Halldór lagði stigahæsta keppanda mótsins, Hrafn Loftsson.  Haraldur, Jon Olav Fivelstad og Magnús Pálmi Örnólfsson koma næstir með 4,5 vinning en fimm keppendur hafa 4 vinninga.  Það verður sannkölluð ...

Lesa meira »

Jólaskákmót TR og SFS 2013 – Rimaskóli sigursæll

Síðastliðinn mánudag lauk keppni á mjög vel heppnuðu Jólaskákmóti Taflfélags Reykjavíkur og Skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.  Keppnisrétt á mótinu hafa allir grunnskólar Reykjavíkur og gátu þeir sent 4. manna sveitir til keppni.  Þetta var í 31. sinn sem mótið fer fram en samkvæmt venju var keppt í tveimur aldursflokkum, 1.-7. og 8.-10. bekk.  Skólar gátu skráð bæði blönduð lið stráka ...

Lesa meira »

Jólaskákmót TR og SFS yngri flokkur – Umfjöllun

Jólaskákmót TR og Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur 2013 hófst á sunnudag með keppni í yngri flokki.  Þetta er í 31. sinn sem mótið er haldið og það fjölmennasta hingað til.  Alls mættu 36 sveitir til leiks í Skákhöll félagsins sem teljast verður frábær mæting sem ber því gróskumikla skákstarfi sem unnið er í skólum borgarinnar og úti í félögunum fagurt ...

Lesa meira »

Jólaskákmót TR og SFS 2013

Nú fer að líða að hinu árlega jólaskákmóti Taflfélags Reykjavíkur og Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.Þátttakendum hefur fjölgað síðastliðin ár og því verður fyrirkomulagi keppninnar breytt og í yngri flokki verður keppt í tveimur riðlum sunnudaginn  1. desember. Suður riðill hefur keppni kl. 10.30 . Norður riðill hefur keppni kl. 14.00 (sjá skiptingu hér að neðan) Tvær efstu sveitir í hvorum ...

Lesa meira »

Vetrarmót öðlinga: Mikil spenna – þrír efstir

Fjórða umferð í Vetrarmóti öðlinga fór fram í gærkvöldi.  Að henni lokinni eru Ríkharður Sveinsson, Haraldur Baldursson og Ögmundur Kristinsson efstir og jafnir með 3,5 vinning.  Ríkharður og Ögmundur gerðu jafntefli sín í milli og þá gerðu Haraldur og Hrafn Loftsson einnig jafntefli.  Hrafn hefur 3 vinninga ásamt sex öðrum keppendum svo það má búast við mikilli spennu í seinni ...

Lesa meira »

Taflfélag Reykjavíkur Íslandsmeistari unglingasveita

TR hirti öll gullin nema eitt Taflfélag Reykjavíkur endurheimti Íslandsmeistaratitil í flokki unglingasveita eftir nokkra bið, en A-lið félagsins vann sanngjarnan sigur á Íslandsmótinu sem fram fór í Garðabænum í gær.  Ekki nóg með það, heldur átti TR bestu B-, D-, E- og F-sveitina; einungis gullverðlaun C-sveita gengu félaginu úr greipum.   Taflfélag Reykjavíkur mætti með stærri hóp en nokkru ...

Lesa meira »

Skákir 2. umferðar Vetrarmóts öðlinga

Kjartan Maack hefur slegið inn skákirnar úr annari umferð Vetrarmóts öðlinga sem fór fram á miðvikudagskvöld.  Þriðja umferð fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld og hefst kl. 19.30. Úrslit, staða og pörun Skákir: 1   2 Vetrarmót öðlinga 2012 Vetrarmót öðlinga 2011

Lesa meira »

Sjö með fullt hús í Vetrarmóti öðlinga

Önnur umferð Vetrarmóts öðlinga fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Úrslit voru að þessu sinni nánast öll eftir bókinni og eru sjö keppendur með fullt hús vinninga. Þriðja umferð fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld og hefst kl. 19.30. Þá mætast á efstu borðum Ögmundur Kristinsson og Magnús Pálmi Örnólfsson, Siguringi Sigurjónsson og Ríkharður Sveinsson sem og Halldór Pálsson og ...

Lesa meira »

Pörun 2. umferðar Vetrarmóts öðlinga

Önnur umferð Vetrarmóts öðlinga fer fram annaðkvöld og hefst kl. 19.30.  Pörun liggur nú fyrir og má nálgast hana hér.  Þá mætast á efstu borðum Magnús Pálmi Örnólfsson og Bjarni Sæmundsson, Ríkharður Sveinsson og Vignir Bjarnason sem og Jon Olav Fivelstad og Halldór Pálsson. Úrslit, staða og pörun Skákir: 1 Vetrarmót öðlinga 2012 Vetrarmót öðlinga 2011

Lesa meira »

Vignir Vatnar Íslandsmeistari 13 ára og yngri

Um síðastliðna helgi fór fram á Akureyri Íslandsmót yngri flokka í skák þar sem keppt var í tveimur flokkum.  Í flokki unglinga 20 ára og yngri voru átta keppendur en í yngri flokki 15 ára og yngri, þar sem var keppt keppt um Íslandsmeistaratitla 15 ára og yngri sem og 13 ára og yngri, voru 29 keppendur skráðir til leiks. ...

Lesa meira »

Skákir Vetrarmóts öðlinga

Kjartan Maack hefur slegið inn skákirnar úr fyrstu umferð Vetrarmóts öðlinga sem fór fram á miðvikudagskvöld.  Önnur umferð fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld og hefst kl. 19.30. Úrslit, staða og pörun Skákir: 1 Vetrarmót öðlinga 2012 Vetrarmót öðlinga 2011

Lesa meira »

Fjölmennt Vetrarmót öðlinga hafið

Vetrarmót öðlinga hófst síðastliðið miðvikudagskvöld en mótið er nú haldið í þriðja sinn. 37 keppendur hófu leik og a.m.k. einn þátttakandi mun bætast við þannig að fjöldi keppenda er svipaður og þegar mótið var haldið fyrst. Það er athyglisvert að nú er einnig í gangi Skákþing Garðabæjar þar sem teflt er einu sinni í viku, líkt og í Vetrarmótinu. Þar eru tæplega 30 ...

Lesa meira »