Sex sterkir skákseggir tefldu á þriðjudagsmóti TR þann 2.apríl. Tefldar voru þrjár laufléttar skákir og var Guðni Stefán Pétursson efstur af þeim þremur sem höfðu tvo vinninga. Í næstu sætum voru Bragi Halldórsson og núverandi Íslandsmeistari í atskák, Jón Viktor Gunnarsson. Nú verður gert hlé á þriðjudagsmótunum í tvær vikur, á meðan Reykjavíkurskákmótið stendur yfir. Næsta Þriðjudagsmót verður haldið 23. ...
Lesa meira »Uncategorized
Allar skákæfingar dagana 5.-7.apríl falla niður
Húsnæði Taflfélags Reykjavíkur verður í útleigu dagana 5.-7.apríl vegna Íslandsmóts í bridge. Af þeim sökum falla allar skákæfingar niður sem fyrirhugaðar voru þá helgi (manngangskennsla, byrjendaæfing, stúlknaæfing, framhaldsæfing og afreksæfing).
Lesa meira »Kjartan Maack er Hraðskákmeistari öðlinga 2019
Það voru svo sannarlega engin venjuleg brögð í tafli þegar formaður Taflfélags Reykjavíkur, Kjartan Maack, kom við í höll sinni og lagði mann og annan á skákborðunum í Hraðskákmóti öðlinga sem þar fór fram. Kjartan hlaut 10 vinninga í skákunum ellefu en það var við hæfi að sá eini sem náði að snúa á Kjartan var nýbakaður Skákmeistari öðlinga, Haraldur ...
Lesa meira »Hraðskákmót öðlinga fer fram í kvöld
Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 3. apríl í félagsheimili TR að Faxafeni 12. Mótið hefst kl. 19.30 og er opið fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 3 mín + 2 sek á leik. Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga. Þátttökugjald er kr. 1.000 og er í því innifalið ilmandi nýtt kaffi. Greiða skal ...
Lesa meira »Haraldur Haraldsson er Skákmeistari öðlinga 2019
Haraldur Haraldsson (1969) sigraði á Öðlingamóti TR og er því Skákmeistari öðlinga 2019. Haraldur gerði jafntefli við Jóhann Ingvason (2175) í lokaumferðinni sem fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld og varð einn efstur með 5,5 vinning. Jafnir í 2.-3. sæti með 5 vinninga urðu Haraldur Baldursson (1944), sem sigraði Lenku Ptacnikovu (2187) í lokaumferðinni, og fyrrnefndur Jóhann en annað sætið fellur í ...
Lesa meira »Guðmundur Kjartansson með fullt hús á Þriðjudagsmóti TR
Síðastliðinn þriðjudag tefldu átta skákmenn á Þriðjudagsmóti TR. Þetta var annað mótið sem haldið er í þessari nýju atskákmótaröð. Líkt og við var að búast þá reyndist alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson andstæðingum sínum erfiður viðureignar. Guðmundur vann allar fjórar skákir sínar líkt og hann gerði á fyrsta mótinu. Fyrir vikið stefnir pilturinn hraðbyri að 2500 stiga múrnum í atskák. Björgvin ...
Lesa meira »Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 3. apríl
Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 3. apríl í félagsheimili TR að Faxafeni 12. Mótið hefst kl. 19.30 og er opið fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 3 mín + 2 sek á leik. Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga. Þátttökugjald er kr. 1.000 og er í því innifalið ilmandi nýtt kaffi. Greiða skal ...
Lesa meira »Haraldur Haraldsson trónir á toppnum fyrir lokaumferð Öðlingamótsins
Norðanmaðurinn knái, Haraldur Haraldsson, sem snúinn er suður til Reykjavíkur er einn efstur fyrir síðustu umferð Öðlingamóts TR með fimm vinninga af sex mögulegum. Hann vann nafna sinn Baldursson í uppgjöri efstu manna í sjöttu umerð sem tefld var miðvikudaginn 20. mars síðastliðinn. Þorvarður Ólafsson, sem einnig var með fjóra vinninga, gerði jafntefli við Lenku Ptacnikovu og á þriðja borði ...
Lesa meira »Guðmundur hlutskarpastur á fyrsta Þriðjudagsmóti TR
Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson sigraði með fullu húsi á fyrsta Þriðjudagsmóti TR sem fram fór í gær. Guðmundur tryggði sér sigurinn með því að vinna Jóhann Ragnarsson í lokaumferðinni í hörkuspennandi skák. Í öðru sæti varð Stephan Briem með 3,5 vinning eftir að hafa lagt bróður sinn að velli, Benedikt Briem, í lokaumferðinni með aðstoð heilladísanna. Fjórir skákmenn luku tafli með ...
Lesa meira »Taflfélag Reykjavíkur sigldi lygnan sjó í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga
Taflfélag Reykjavíkur stóð í ströngu er seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga var haldinn. Félagið átti tvær sveitir í efstu deild, eina í 3.deild og þrjár sveitir í 4.deild. Fyrir seinni hluta mótsins átti engin sveit félagsins raunhæfa möguleika á að vinna sína deild, og aðeins ein sveit var í fallhættu. Sveitirnar voru ívið sterkari en þær sem tefldu í fyrri hluta ...
Lesa meira »Æsispennandi toppbarátta í Öðlingamótinu
Enn er staðan jöfn og spennandi á Öðlingamóti TR. Síðastliðinn miðvikudag slíðruðu Haraldur Haraldsson og Þorvarður Ólafsson sverðin og eru því hvor um sig með fjóra vinninga af fimm mögulegum. Á öðru borði vann hins vegar hinn eitilharði Haraldur Baldursson sóknarmanninn Jóhann Ingvason með svörtu. Þannig kom hann sér í hóp með efstu mönnum. Önnur úrslit voru nokkurn veginn eins ...
Lesa meira »Þriðjudagsmót TR – Atskák fyrir 1900+
Taflfélag Reykjavíkur hyggst halda vikuleg atskákmót á þriðjudagskvöldum fyrir skákmenn með 1900 skákstig eða meira. Með þessu vill félagið koma til móts við þær fjölmörgu raddir í skáksamfélaginu sem óskað hafa eftir fleiri atskákmótum. Tefldar verða fjórar umferðir með umhugsunartímanum 15 mínútur á skák og bætast 5 sekúndur við eftir hvern leik (15m+5s). Mótin eru opin öllum sem uppfylla stigalágmarkið. Mótin ...
Lesa meira »Unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 17.mars
Unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 17. mars í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.14 og stendur til kl.18. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Þátttaka er ókeypis. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð ...
Lesa meira »Þrír efstir á Öðlingamótinu eftir fjórar umferðir
Eftir þrjár umferðir voru tveir skákforkar efstir og jafnir með þrjá vinninga af þremur mögulegum á Öðlingamóti TR. Það voru þeir Þorvarður Ólafsson og Jóhann Ingvason sem báðir unnu með svart. Áhugavert var að í þriðju umferð mættust bara einstaklingar með jafnmarga vinninga. Síðastliðið miðvikudagskvöld mættust í 4.umferð þeir Þorvarður og Jóhann og endaði sú skák með jafntefli. Á öðru ...
Lesa meira »Teflt yfir náttmál á Öðlingamóti TR
Skeggöld, skálmöld, skildir eru klofnir. Vindöld, vargöld, áður veröld steypist, mun engi maður öðrum þyrma (úr Völuspá). Þessi kveðskapur lýsir vel skákum annarrar umferðar Öðlingamóts TR. Þar kepptust á skákgarpar sem eiga það sameiginlegt að vera komnir á hinn fræga viskualdur, en þá tekur heilinn út mikinn þroska sem skilar sér í meiri skilningi á manntaflinu. Af skákunum 22 enduðu þær flestar eftir ...
Lesa meira »Að loknu 88.Skákþingi Reykjavíkur
Skákþing Reykjavíkur var fyrst haldið árið 1932. Þá fór með sigur úr býtum hinn sexfaldi Íslandsmeistari Ásmundur Ásgeirsson. Síðan þá hafa margir af fremstu skákmönnum þjóðarinnar hampað Reykjavíkurmeistaratitlinum, enginn þó oftar en stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson og alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson; alls sjö sinnum. Á meðal annarra sigurvegara eru stórmeistararnir Friðrik Ólafsson (1960, 1963, 1975), Margeir Pétursson (1980), Helgi Ólafsson (1976, ...
Lesa meira »Öðlingamótið hófst í gær
Flautað var til leiks í Skákmóti öðlinga 2019 í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur í gærkveld en mótið fór fyrst fram 1992 fyrir tilstuðlan Ólafs S. Ásgrímssonar sem átt hefur veg og vanda að mótahaldinu allar götur síðan. Í ár taka þátt 25 keppendur og er sigurvegari mótanna 2012 og 2013, Þorvarður F. Ólafsson (2199), þeirra stigahæstur en stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova ...
Lesa meira »Háteigsskóli og Laugalækjarskóli Reykjavíkurmeistarar grunnskóla
Reykjavíkurmót grunnskólasveita fór fram dagana 4.-5.febrúar í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Mótið hefur um árabil verið samvinnuverkefni Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Teflt var í þremur flokkum; 1.-3. bekk, 4.-7. bekk og 8.-10. bekk. Háteigsskóli vann tvöfalt í yngri flokkunum og í flokki 8.-10. bekkjar hreppti Laugalækjarskóli gullið. Það var fríður flokkur barna sem reið á vaðið í yngsta ...
Lesa meira »Skákmót öðlinga hefst í kvöld
Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 13. febrúar kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Sigurbjörn J. Björnsson. Dagskrá: 1. umferð miðvikudag 13. febrúar kl. 19.30 2. umferð miðvikudag 20. febrúar kl. 19.30 3. umferð miðvikudag 27. febrúar kl. ...
Lesa meira »Guðmundur Kjartansson er Hraðskákmeistari Reykjavíkur 2019
Guðmundur Kjartansson bætti enn einum titilinum í safnið er hann varð efstur á Hraðskákmóti Reykjavíkur. Þau úrslit urðu þó ekki ljós fyrr en í 11. og síðustu umferð því Guðmundur og Vignir Vatnar Stefánsson voru báðir á miklum spretti. Guðmundur hafði forystu fram að 6. umferð, eftir að Vignir gerði snemma jafntefli við Guðna Stefán Pétursson. Í 6. umferðinni bætti ...
Lesa meira »
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins