Þriðjudagsmót TR – Atskák fyrir 1900+



20180909_150243

Taflfélag Reykjavíkur hyggst halda vikuleg atskákmót á þriðjudagskvöldum fyrir skákmenn með 1900 skákstig eða meira. Með þessu vill félagið koma til móts við þær fjölmörgu raddir í skáksamfélaginu sem óskað hafa eftir fleiri atskákmótum.

Tefldar verða fjórar umferðir með umhugsunartímanum 15 mínútur á skák og bætast 5 sekúndur við eftir hvern leik (15m+5s). Mótin eru opin öllum sem uppfylla stigalágmarkið. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Aðgangur er ókeypis.

Fyrsta mótið verður haldið þriðjudaginn 19.mars og hefst taflið klukkan 19:30. Áætlað er að mótunum ljúki um kl.22. Teflt er í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.