Unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 17.mars



barnaungl

Unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 17. mars í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.14 og stendur til kl.18. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Þátttaka er ókeypis. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.

Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2003 eða síðar. Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í mótinu. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í öllum árgöngum í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum), elsti árgangurinn er 2003 og yngsti árgangurinn er 2013 og yngri. Nafnbótina Unglingameistari Reykjavíkur 2019 hlýtur sá keppandi sem verður hlutskarpastur þeirra sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.  Nafnbótina Stúlknameistari Reykjavíkur 2019 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.

Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Sæmundur Árnason og Freyja Birkisdóttir. Nánari upplýsingar um mótið í fyrra má finna hér.

Skráning í mótið fer fram rafrænt og má nálgast skráningarformið hér. Upplýsingar um þegar skráða keppendur má nálgast hér.

ATHUGIÐ breytta tímasetningu; mótið hefst kl.14.