Enn er staðan jöfn og spennandi á Öðlingamóti TR. Síðastliðinn miðvikudag slíðruðu Haraldur Haraldsson og Þorvarður Ólafsson sverðin og eru því hvor um sig með fjóra vinninga af fimm mögulegum. Á öðru borði vann hins vegar hinn eitilharði Haraldur Baldursson sóknarmanninn Jóhann Ingvason með svörtu. Þannig kom hann sér í hóp með efstu mönnum. Önnur úrslit voru nokkurn veginn eins ...
Lesa meira »Uncategorized
Þriðjudagsmót TR – Atskák fyrir 1900+
Taflfélag Reykjavíkur hyggst halda vikuleg atskákmót á þriðjudagskvöldum fyrir skákmenn með 1900 skákstig eða meira. Með þessu vill félagið koma til móts við þær fjölmörgu raddir í skáksamfélaginu sem óskað hafa eftir fleiri atskákmótum. Tefldar verða fjórar umferðir með umhugsunartímanum 15 mínútur á skák og bætast 5 sekúndur við eftir hvern leik (15m+5s). Mótin eru opin öllum sem uppfylla stigalágmarkið. Mótin ...
Lesa meira »Unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 17.mars
Unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 17. mars í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.14 og stendur til kl.18. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Þátttaka er ókeypis. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð ...
Lesa meira »Þrír efstir á Öðlingamótinu eftir fjórar umferðir
Eftir þrjár umferðir voru tveir skákforkar efstir og jafnir með þrjá vinninga af þremur mögulegum á Öðlingamóti TR. Það voru þeir Þorvarður Ólafsson og Jóhann Ingvason sem báðir unnu með svart. Áhugavert var að í þriðju umferð mættust bara einstaklingar með jafnmarga vinninga. Síðastliðið miðvikudagskvöld mættust í 4.umferð þeir Þorvarður og Jóhann og endaði sú skák með jafntefli. Á öðru ...
Lesa meira »Teflt yfir náttmál á Öðlingamóti TR
Skeggöld, skálmöld, skildir eru klofnir. Vindöld, vargöld, áður veröld steypist, mun engi maður öðrum þyrma (úr Völuspá). Þessi kveðskapur lýsir vel skákum annarrar umferðar Öðlingamóts TR. Þar kepptust á skákgarpar sem eiga það sameiginlegt að vera komnir á hinn fræga viskualdur, en þá tekur heilinn út mikinn þroska sem skilar sér í meiri skilningi á manntaflinu. Af skákunum 22 enduðu þær flestar eftir ...
Lesa meira »Að loknu 88.Skákþingi Reykjavíkur
Skákþing Reykjavíkur var fyrst haldið árið 1932. Þá fór með sigur úr býtum hinn sexfaldi Íslandsmeistari Ásmundur Ásgeirsson. Síðan þá hafa margir af fremstu skákmönnum þjóðarinnar hampað Reykjavíkurmeistaratitlinum, enginn þó oftar en stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson og alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson; alls sjö sinnum. Á meðal annarra sigurvegara eru stórmeistararnir Friðrik Ólafsson (1960, 1963, 1975), Margeir Pétursson (1980), Helgi Ólafsson (1976, ...
Lesa meira »Öðlingamótið hófst í gær
Flautað var til leiks í Skákmóti öðlinga 2019 í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur í gærkveld en mótið fór fyrst fram 1992 fyrir tilstuðlan Ólafs S. Ásgrímssonar sem átt hefur veg og vanda að mótahaldinu allar götur síðan. Í ár taka þátt 25 keppendur og er sigurvegari mótanna 2012 og 2013, Þorvarður F. Ólafsson (2199), þeirra stigahæstur en stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova ...
Lesa meira »Háteigsskóli og Laugalækjarskóli Reykjavíkurmeistarar grunnskóla
Reykjavíkurmót grunnskólasveita fór fram dagana 4.-5.febrúar í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Mótið hefur um árabil verið samvinnuverkefni Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Teflt var í þremur flokkum; 1.-3. bekk, 4.-7. bekk og 8.-10. bekk. Háteigsskóli vann tvöfalt í yngri flokkunum og í flokki 8.-10. bekkjar hreppti Laugalækjarskóli gullið. Það var fríður flokkur barna sem reið á vaðið í yngsta ...
Lesa meira »Skákmót öðlinga hefst í kvöld
Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 13. febrúar kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Sigurbjörn J. Björnsson. Dagskrá: 1. umferð miðvikudag 13. febrúar kl. 19.30 2. umferð miðvikudag 20. febrúar kl. 19.30 3. umferð miðvikudag 27. febrúar kl. ...
Lesa meira »Guðmundur Kjartansson er Hraðskákmeistari Reykjavíkur 2019
Guðmundur Kjartansson bætti enn einum titilinum í safnið er hann varð efstur á Hraðskákmóti Reykjavíkur. Þau úrslit urðu þó ekki ljós fyrr en í 11. og síðustu umferð því Guðmundur og Vignir Vatnar Stefánsson voru báðir á miklum spretti. Guðmundur hafði forystu fram að 6. umferð, eftir að Vignir gerði snemma jafntefli við Guðna Stefán Pétursson. Í 6. umferðinni bætti ...
Lesa meira »SÞR#9: Hjörvar Steinn Grétarsson er Skákmeistari Reykjavíkur 2019
Fyrr í dag tryggði Hjörvar Steinn Grétarsson sér nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur 2019 er hann lagði Þorvarð F. Ólafsson að velli í lokaumferð Skákþings Reykjavíkur. Hjörvar Steinn hlaut 8 vinninga í skákunum níu, hálfum vinning meira en Guðmundur Kjartansson sem hreppti 2.sætið með 7,5 vinning. Guðmundur vann Sigurbjörn Björnsson í hörkuskák í lokaumferðinni. Baráttan um 3.sætið var spennandi því þrír skákmenn ...
Lesa meira »Hraðskákmót Reykjavíkur haldið miðvikudaginn 6.febrúar
Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 miðvikudaginn 6.febrúar og hefst taflið kl.19:30. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er opið öllum. Þátttökugjald er 1.000kr. Frítt er í mótið fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning fer fram á skákstað ...
Lesa meira »SÞR#8: Hjörvar Steinn efstur fyrir lokaumferðina
Orrustur 8.umferðar Skákþings Reykjavíkur voru margar hverjar leiftrandi skemmtilegar. Í raun var atgangurinn á taflborðunum engu minni en í umferðinni á undan þó fjöldi jafntefla hafi verið fjórfalt fleiri. Toppbaráttan breyttist lítið að öðru leyti en að nokkrir keppendur hafa bæst í hóp þeirra sem eygja von um 3.sætið. Topporrusta 8.umferðar fór fram á 1.borði. Hjörvar Steinn Grétarsson (2560) stýrði ...
Lesa meira »SÞR#7: Blásið í herlúðra; Titilhafar á toppnum
Síðastliðinn sunnudag var 7.umferð Skákþings Reykjavíkur tefld og mættu keppendur til leiks með alvæpni. Vopnaðir teoríum og taktík settust þrekmiklir hugsuðir við taflborðin og blésu strax í herlúðra. Ekkert var gefið eftir. Engin miskunn. Föngum var ekki hlíft. Það eina sem vantaði var stríðsmálningin. Alls voru tefldar 29 skákir í 7.umferð og enduðu aðeins þrjár þeirra með jafntefli. Hróðugir sigurvegarar stóðu upp ...
Lesa meira »Skákmót öðlinga hefst miðvikudaginn 13. febrúar
Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 13. febrúar kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Sigurbjörn J. Björnsson. Dagskrá: 1. umferð miðvikudag 13. febrúar kl. 19.30 2. umferð miðvikudag 20. febrúar kl. 19.30 3. umferð miðvikudag 27. febrúar kl. ...
Lesa meira »SÞR#6: Hjörvar Steinn Grétarsson efstur
Það gekk á ýmsu á taflborðunum í Faxafeni 12 er sjötta umferð Skákþings Reykjavíkur var tefld. Sigrar efstu manna voru ekki allir sannfærandi en það er ekki spurt að því þegar vinningar eru taldir. Að lokinni sjöttu umferð er Hjörvar Steinn Grétarsson (2560) einn efstur með 5,5 vinning. Í humátt á eftir stórmeistaranum koma Guðmundur Kjartansson (2424) og Sigurbjörn Björnsson (2296) ...
Lesa meira »Framundan hjá TR
Hún er ansi þétt mótadagskráin næstu vikurnar og því er ekki úr vegi að líta á það sem framundan er. Skákþing Reykjavíkur Þremur umferðum er ólokið á Skákþinginu en því lýkur sunnudaginn 3. febrúar. Reykjavíkurmót grunnskólasveita mánudaginn 4. febrúar og þriðjudaginn 5. febrúar 4. febrúar 1.-3. bekkur, 5. febrúar 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Nánar hér. Hraðskákmót Reykjavíkur miðvikudaginn 6. ...
Lesa meira »Reykjavíkurmót grunnskólasveita fer fram 4.-5.febrúar
Reykjavíkurmót grunnskólasveita hefst í húsnæði TR að Faxafeni 12 mánudaginn 4. febrúar kl. 16.30 með keppni 1.-3. bekkjar. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt að þessu sinni; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppni 4.-7. bekkjar og 8.-10. bekkjar fer fram daginn eftir, þriðjudaginn 5. febrúar. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum ...
Lesa meira »SÞR#5: Allt á suðupunkti í toppbaráttu Skákþings Reykjavíkur
Mikil barátta einkenndi 5.umferð Skákþings Reykjavíkur sem tefld var síðastliðinn sunnudag. Í uppgjöri efstu manna hafði Davíð Kjartansson (2403) betur gegn Sigurbirni Björnssyni (2296) og Hjörvar Steinn Grétarsson (2560) og Vignir Vatnar Stefánsson (2248) klifu í toppsætið með góðum sigrum. Þá vann Guðmundur Kjartansson (2424) skák sína gegn Birni Hólm Birkissyni (2078) og er því aðeins hálfum vinningi á eftir ...
Lesa meira »SÞR#4: Sigurbjörn Björnsson einn efstur
Línur skýrðust í toppbaráttu Skákþings Reykjavíkur í gærkvöldi er 4.umferð var tefld. FM Sigurbjörn Björnsson (2296) gaf engin grið á efsta borði og situr nú einn á toppnum með fullt hús vinninga. Fjórir vaskir skákmenn fylgja honum eins og skugginn með 3,5 vinning. Sigurbjörn tefldi hraustlega gegn stórmeistara kvenna og stigahæstu skákkonu landsins, og sá Lenka Ptacnikova (2187) sig knúna ...
Lesa meira »