Blog Page

Stúlkna- og drengjameistaramót Reykjavíkur fer fram 10. mars

dsmot_tr_2023_19

Stúlkna- og drengjameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 10. mars í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Þátttökugjöld eru kr.1000 (í alla flokka).  Hægt er að greiða þátttökugjöld með millifærslu inn á reikning Taflfélags Reykjavíkur nr. 0101-26-640269, kt.640269-7669. Vinsamlegast sendið kvittun með nafni keppanda á taflfelag@taflfelag.is. Einnig verður hægt að greiða á staðnum. Skráningu í alla flokka lýkur kl. 17 laugardaginn 9. mars. Skráningarform er ...

Lesa meira »

Arnaldur Árni sigurvegari Bikarsyrpu III, Emilía Embla efst stúlkna

Verðlauna afhending

Helgina 16-18 febrúar fór fram þriðja Bikarsyrpu mótið á tímabilinu 2023-24. Þessa helgi voru mættir 51 keppendur sem er nýtt met fyrir mótaröðina sem hefur verið haldin í heilan áratug. Er það endurspeglun á öflugu barnastarfi hjá fleiri félögum. Má þar nefna KR og Hauka sem fjölmenntu að þessu sinni. Það sem gerir þessi mót alltaf skemmtileg er fjölbreytileiki keppenda ...

Lesa meira »

Bikarsyrpa III (2023-24) hefst á morgun!

BikarsyrpanBanner_generic

Helgina (16-18 febrúar) fer fram næsta mót í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er þriðja mótið af fimm sem haldið er á tímabilinu 2023-24. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur að Faxfeni 12 Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til ...

Lesa meira »

Skákmót öðlinga hefst á miðvikudaginn!

rvkmotgrsksv-620x330

Skákmót öðlinga 40 ára og eldri (fædd 1984 og fyr) hefst miðvikudaginn 14. febrúar kl. 18.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Eftir 40 leiki bætast við 15. mínútur. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Lenka Ptácníková. Dagskrá  1. umferð miðvikudag 14. febrúar kl. 18.30 2. umferð ...

Lesa meira »

Hraðskákmót Reykjavíkur 2024

329691299_527688552681665_1851690870618079097_n

Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 miðvikudaginn 7. febrúar og hefst taflið kl.19:30. Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik). Ef fjöldi keppenda fer yfir 40 verða telfdar 11 skákir. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er opið öllum. Þátttökugjald er 1.000kr. Frítt er í mótið fyrir félagsmenn TR sem ...

Lesa meira »

Breytingar á stjórn TR

rvkmotgrsksv-620x330

Eftir andlát Ríkharðs Sveinssonar formanns félagsins voru gerðar nokkrar breytingar á stjórn félagsins. Gauti Páll Jónsson, varaformaður, er starfandi formaður út starfsárið og Una Strand Viðarsdóttir varaformaður. Eiríkur K. Björnsson var fyrsti varamaður og kemur nú inn í aðalstjórn. Aðalstjórn fram að aðalfundi 2024 Gauti Páll Jónsson – Starfandi formaður Una Strand Viðarsdóttir – Varaformaður Magnús Kristinsson – Gjaldkeri Jon Olav ...

Lesa meira »

Skákþing Reykjavíkur 2024 hafið

pro-u8x3FdSc

Skákþing Reykjavíkur 2024 var keyrt í gang þann 7.janúar Að þessu sinni eru 59 keppendur skráðir til leiks. Við setningu mótsins voru keppendur fræddir um lífseigni Skákþings Reykjavíkur sem hefur verið haldið linnulaust síðan 1932. Eftir að formaður félagsins Gauti Páll lauk máli sínu kom það í hlut Helga Ólafssonar stórmeistara að leika fyrsta leiknum á efsta borði í skák Hilmis Frey ...

Lesa meira »

SKÁKÞING REYKJAVÍKUR HEFST Á MORGUN – SKRÁNINGU LÝKUR KL. 22 Í KVÖLD

sþr

Skákþing Reykjavíkur 2024 hefst sunnudaginn 7. janúar kl. 13.00. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Ef taka á yfirsetu í 1. umferð skal merkja við það á neðangreindu skráningarformi. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu. ...

Lesa meira »

Jólarhaðskákmót TR haldið fimmtudaginn 28. desember!

jolakerti

Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið fimmtudaginn 28. desember og hefst taflið klukkan 19:30. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3 mínútur á skák auk þess sem 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik (3+2). Teflt verður í húsnæði TR að Faxafeni 12. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Mótið kemur í stað hefðbundins fimmtudagsmóts. Þátttökugjald er 1.000.- (greiðist með reiðufé á staðnum eða ...

Lesa meira »

Andlát: Ríkharður Sveinsson

deildo_2023

Ríkharður Sveinsson, formaður Taflfélags Reykjavíkur er fallinn frá eftir stutt veikindi. Ríkharður var alltaf kjarninn í starfsemi TR, hvort sem hann var í stjórn þá stundina eða ekki. Hann brann fyrir skákina og TR, og félagið verður ekki samt án hans. Fyrir hönd TR Gauti Páll Jónsson, Magnús Kristinsson, Jon Olav Fivelstad, Daði Ómarsson, Una Strand Viðarsdóttir, Guðlaugur Gauti Þorgilsson, ...

Lesa meira »

Sigurjón Haraldsson og Alexander Oliver unnu U2000 og Y2000 mótin!

Alexander Oliver Mai

U2000 – TR 18. október – 29. nóvember 2023 Spennandi mót yfirstaðið – gamlar kempur og ungir stríðsmenn börðust um sigurinn. 39 keppendur, 7 umferðir. Það leit lengi út fyrir að hinn 12 ára gamli Sigurður Páll Guðnýjarson mundi vinna mótið. En svo mætti hann Hjálmari Sigurvaldasyni í næstsíðustu umferð og tefldi ekki sína bestu skák. Þar með urðu Hjálmar ...

Lesa meira »

Björn Hólm sigurvegari á Þriðjudagsmóti

IMG_3964

Þann tólfta desember fór fram atskákmót í faxafeninu. Að þessu sinni var nokkuð fámennt en mikil breidd á sama tíma. Eftir fimm umferðir stóð Björn Hólm Birkisson einn uppi sem sigurvegari. Sigurvegarinn leyfði engin grið og sigraði með fullu húsi að þessu sinni Í öðru sæti varð alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr með 4. vinninga og þurfti að lúta í lægra haldi ...

Lesa meira »

Jólaskákmót Grunnskólasveita Reykjavíkur – 2023

Jólaskákmót Reykjavíkur 2023

Sunnudaginn 3.desember fór fram Jólaskákmót Grunnskólasveita Reykjavíkur. Þetta mót sem er samstarfsverkefni Frístundasviðs Reykjavíkur og Taflfélags Reykjavíkur hefur verið haldið með einum eða öðrum hætti allt síðan 1983. Eins og síðustu ár var mótinu skipt í þrjá aldurs flokka og var teflt frá morgni til kvölds. Mikil aukning var á þátttöku frá árinu áður og voru í ár skráðar 42 ...

Lesa meira »

Þriðjudagsmót fellur niður 5. desember

rvkmotgrsksv-620x330

Minnt er á að þriðjudagsmót TR fellur niður 5. desember vegna Atskákmóts Reykjavíkur sem fer fram í kvöld og á morgun. Um atskákmót Reykjavíkur  

Lesa meira »

Atskákmót Reykjavíkur fer fram 4.-5. desember!

rvkmotgrsksv-620x330

Atskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsakynum TR, Faxafeni 12, 4.-5. desember næstkomandi. Tefldar verða níu skákir með tímamörkunum 15+5 (15 mínútur á skákina að viðbættum fimm sekúndum á hvern leik) á tveimur kvöldum. Fyrstu fimm umferðirnar verða mánudagskvöldið 4. desember klukkan 19:30 og síðustu fjórar verða þriðjudagskvöldið 5. desember klukkan 19:30. Seinni hluti mótsins, þriðjudagskvöldið, kemur í stað venjulegs Þriðjudagsmóts. ...

Lesa meira »

Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 3. desember

370063923_779347944204459_2554551710351010151_n

Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkur verður haldið í húsnæði TR að Faxafeni 12 sunnudaginn 3. desember. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Tefldar verða 6 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur fyrir hverja skák og bætast 3 sekúndur við eftir hvern leik (5+3). Allir grunnskólar ...

Lesa meira »

Hraðskákmót alla fimmtudaga í TR

fimmt_5

Haldin eru hraðskákmót í TR alla fimmtudaga. Tefldar eru 10 skákir og tímamörkin eru 3 mínútur á skákina að viðbættum 2 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg ...

Lesa meira »