Björn Hólm sigurvegari á Þriðjudagsmóti



20231212_215023999_iOS

Þann tólfta desember fór fram atskákmót í faxafeninu. Að þessu sinni var nokkuð fámennt en mikil breidd á sama tíma. Eftir fimm umferðir stóð Björn Hólm Birkisson einn uppi sem sigurvegari.

Sigurvegarinn leyfði engin grið og sigraði með fullu húsi að þessu sinni

Í öðru sæti varð alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr með 4. vinninga og þurfti að lúta í lægra haldi gegn félaga sínum Birni.

í 3-4 sæti urðu Daði Ómarsson og Ghasemi Mohammadhossein með 3.5 vinning en Daði var hærri á stigum.

Stigaverðalaun hlaut Þorsteinn Magnússon með 3 vinninga.

🥇Björn Hólm Birkisson 5/5

🥈Hilmir Freyr Heimisson 4.

🥉Daði Ómarsson 3.5  (15) Ghasemi Mohammadhossein (10)

Allar upplýsingar um mótið má sjá á chess-results.

 



About Daði Ómarsson

Skák kennari og dómari hjá Taflfélagi Reykjavíkur.