Fide meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2356), sló algjörlega í gegn á Skoska meistaramótinu sem lauk í dag. Í níundu og síðustu umferðinni gerði hann jafntefli við enska stórmeistarann, Mark Hebden (2468), en það nægði honum til að landa sínum fyrsta áfanga að stórmeistaratitli. Skákin var mjög tvísýn og sveiflaðist um tíma fram og til baka í mjög flókinni stöðu. Að lokum ...
Lesa meira »Author Archives: Þórir
Daði tapaði og Atli gerði jafntefli í 2. umf Politiken
Atli Antonsson (1720) gerði jafntefli við Danann, Torben Rosholm Pedersen (1987), en Daði Ómarsson (2091) tapaði fyrir pólska Fide meistaranum, Krzysztof Bulski (2392), í annarri umferð Politiken Cup sem lauk nú rétt í þessu. Bragi Þorfinnsson (2377), Bjarni Jens Kristinsson (1985) og Ólafur Gísli Jónsson (1899) unnu allir sínar viðureignir. Þriðja umferð fer fram í dag og hefst kl. 14 ...
Lesa meira »Politiken Cup hófst í dag
Í dag hófst hið stóra og árlega mót, Politicen Cup, í Danmörku. Að þessu sinni eru 307 skákmenn skráðir í aðalmótið en þar af eru fimm Íslendingar og á meðal þeirra eru tveir úr Taflfélagi Reykjavíkur; Daði Ómarsson (2091) sem er einn efnilegasti skákmaður landsins og Atli Antonsson (1720), sem snýr nú aftur að skákborðinu eftir nokkurra ára hlé. Aðrir ...
Lesa meira »Guðmundur sigraði í 8. umferð og nálgast stórmeistaraáfanga
Fide meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2356), fer hamförum á opna skoska meistaramótinu sem fram fer þessa dagana. Í áttundu umferð, sem fram fór í dag, sigraði hann þriðja stórmeistarann á mótinu og að þessu sinn var það hinn skoski, Colin McNab (2474). Guðmundur hefur að auki gert jafntefli við tvo aðra stórmeistara. Með sigrinum í dag skaust Guðmundur upp í 4.-5. ...
Lesa meira »Hannes í 3.-9. sæti á opnu móti í Malaga
Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2580), hafnaði í 3.-9. sæti með 6,5 vinning á opnu skákmóti sem lauk í dag í Malaga á Spáni. Í níundu og síðustu umferð sem fram fór í dag sigraði hann spænska alþjóðlega meistarann, David Nieto Larino (2462). Árangur Hannesar samsvarar 2532 skákstigum og tapar hann tveimur stigum. Sigurvegarar mótsins með 7 vinninga voru serbneski stórmeistarinn, ...
Lesa meira »Guðmundur gerði jafntefli við stigahæsta keppandann
Guðmundur Kjartansson (2356) gerði í dag jafntefli við skoska stórmeistarann, Jonathan Rowson (2591), í sjöundu umferð Skoska meistaramótsins en Rowson er stigahæsti keppandi mótsins. Guðmundur stýrði svörtu mönnunum í tiltölulega rólegri skák þar sem tefldur var enskur leikur og fljótt urðu uppskipti á léttu mönnunum. Þegar í endataflið var komið, þar sem hvor hafði báða hrókana og drottningu, virtist Guðmundur ...
Lesa meira »Guðmundur með jafntefli í 6. umferð, Aron tapaði
Guðmundur Kjartansson (2356) gerði í dag jafntefli við skoska stórmeistarann Keti Arakhamia-Grant (2555) í sjöttu umferð skoska meistaramótsins sem fram fer í Edinborg. Þegar út í endataflið var komið þar sem hvor var með drottningu og hrók ásamt þrem peðum leit út fyrir að Guðmundur hefði einhverja vinningsmöguleika. Svo fór því ekki því Skotinn náði fram þráskák og jafntefli varð ...
Lesa meira »Aftur sigrar Guðmundur indverskan stórmeistara
Guðmundur Kjartansson (2356) fer hamförum á Skoska meistaramótinu sem fram fer í Edinborg en í fjórðu umferð sigraði hann indverska stórmeistarann Magesh Chandran Panchanath (2493) í mjög skemmtilegri skák. Guðmundur stýrði hvítu mönnunum og tefldi hvasst gegn Indverjanum, fórnaði manni í 19. leik og náði stórsókn í kjölfarið sem varð til þess að Indverjinn gafst upp eftir 34 leiki. Guðmundur ...
Lesa meira »Glæsilegur sigur hjá Guðmundi gegn stórmeistara í 3. umferð
Guðmundur Kjartansson (2356) sýndi styrk sinn í dag þegar hann sigraði indverska stórmeistarann S. Arun Prasad (2556) í þriðju umferð Skoska meistaramótsins. Guðmundur, sem stýrði svörtu mönnunum, virtist vera með skákina í höndum sér alveg frá byrjun og náði góðri sókn gegn Indverjanum sem laut í gras eftir 41 leik. Aron Ingi Óskarsson (1876) tapaði fyrir skoska skákmanninum Ian McDonald ...
Lesa meira »Guðmundur vann í 2. umferð en Aron tapaði
Guðmundur Kjartansson (2356) sigraði skoska skákmanninn Graeme Kafka (2077) í 2. umferð Skoska meistaramótsins sem fram fór í dag. Aron Ingi Óskarsson (1876) tapaði hinsvegar fyrir Englendingnum Dominic Foord (2069). Guðmundur er með fullt hús, tvo vinninga, en Aron Ingi er ekki kominn á blað. Ekki liggur fyrir pörun þriðju umferðar sem fer fram á morgun. Heimasíða mótsins Skákirnar í ...
Lesa meira »Guðmundur og Aron tefla á skoska meistaramótinu
Enn heldur Guðmundur Kjartansson (2356) áfram þátttöku sinni á erlendum skákmótum og tekur nú þátt í þriðja og síðasta móti sínu í þessum túr en hann hóf leik í dag á Skoska meistaramótinu. Ásamt honum tekur annar TR-ingur þátt, Aron Ingi Óskarsson (1876). Í fyrstu umferð sem fram fór í dag mætti Guðmundur þýska skákmanninum Fan Zhang (2058) og bar ...
Lesa meira »Big Slick pistill Guðmundar
Guðmundur Kjartansson hefur tekið saman pistil um þátttöku sína á nýafstöðnu Big Slick skákmóti í London. Big Slick Nú er annað mótið í þriggja móta skáktúr mínum lokið og skoska meistaramótið framundan þar sem ég tek þátt ásamt Aroni Inga Óskarssyni. Big Slick mótið fór fram í London þar sem ég er staddur nú og er þetta í fyrsta skipti ...
Lesa meira »Guðmundur tapaði í lokaumferðinni
Guðmundur Kjartansson (2388) tapaði fyrir enska skákmanninum, Peter S. Poobalasingam (2240), í níundu og síðustu umferð Big Slick mótsins sem fram fór í London. Guðmundur hlaut 2,5 vinning og hafnaði í níunda sæti. Árangur hans samsvarar 2222 skákstigum og tapar hann um 30 stigum. Sigurvegarar mótsins með 6,5 vinning voru enski stórmeistarinn Keith C. Arkell (2517) og rússneski stórmeistarinn Alexander ...
Lesa meira »Enn gerir Guðmundur jafntefli
Fimmta jafnteflið í röð hjá Guðmundi Kjartanssyni (2388) á Big Slick mótinu er staðreynd eftir að hann og portúgalski stórmeistarinn, Luis Galego (2454), skildu með skiptan hlut í áttundu umferð sem fram fór í dag. Guðmundur hefur 2 vinninga og er í níunda sæti fyrir lokaumferðina sem fram fer á morgun en þá mætir hann stigalægsta keppanda flokksins, enska skákmanninum, ...
Lesa meira »Jafntefli hjá Guðmundi í 7. umferð
Guðmundur Kjartansson (2388) gerði sitt fjórða jafntefli í röð á Big Slick mótinu í London, nú í sjöundu umferð gegn enska alþjóðlega meistaranum, Simon Ansell (2394). Guðmundur er í 9. sæti með 2 vinninga þegar tvær umferðir eru eftir. Á morgun mætir hann portúgalska stórmeistaranum, Luis Galego (2454). Guðmundur teflir í lokuðum og nokkuð sterkum stórmeistaraflokki þar sem stigahæsti keppandinn ...
Lesa meira »Guðmundur með jafntefli í 5. og 6. umferð
Guðmundur Kjartansson (2388) er aðeins að rétta sinn kút á Big Slick mótinu sem fram fer í samnefndum klúbbi í London. Eftir jafntefli í fjórðu umferð gerði hann jafntefli við rússneska skákmanninn, Alexei Slavin (2308), í fimmtu umferð og sömuleiðis jafntefli við enska stórmeistarann, Daniel W. Gormally í þeirri sjöttu. Í dag mætir Guðmundur enska alþjóðlega meistaranum, Simon Ansell (2394).
Lesa meira »Guðmundur kominn á blað í London
Guðmundur Kjartansson (2388) gerði jafntefli við enska fide meistarann, Robert Eames (2312), í fjórðu umferð Big Slick skákmótsins sem fram fer í London. Guðmundur hefur hálfan vinning að loknum fjórum umferðum. Nú er bara að vona að fyrsti punktur Guðmundar verði til þess að hann komist á skrið í kjölfarið en á morgun mætir hann rússneska skákmanninum, Alexei Slavin (2308), ...
Lesa meira »Guðmundur tapaði í 3. umferð
Guðmundur Kjartansson (2388) tapaði fyrir enska stórmeistaranum, Keith Arkell (2517), í þriðju umferð Big Slick mótsins sem fram fór í dag. Guðmundur, sem enn er ekki kominn á blað, mætir á morgun enska fide meistaranum, Robert Eames (2312). Guðmundur teflir í lokuðum og nokkuð sterkum stórmeistaraflokki þar sem stigahæsti keppandinn er með 2517 skákstig. Tíu keppendur eru í flokknum og ...
Lesa meira »Guðmundur teflir á Big Slick skákmótinu
Guðmundur Kjartansson (2388) heldur áfram markmiði sínu á að rjúfa 2400 stiga múrinn til að öðlast alþjóðlegan meistaratitil en þriðja og síðasta áfanganum náði hann á First Saturday mótinu sem lauk fyrir skömmu. Nú tekur Guðmundur þátt í móti sem enski stórmeistarinn, Simon Williams, stendur fyrir í London. Mótið dregur nafn sitt af pókerklúbbi þar sem skákirnar fara fram og ...
Lesa meira »Pistill frá Guðmundi Kjartanssyni
Guðmundur Kjartansson, verðandi alþjóðlegur meistari, hefur sent frá sér pistil til birtingar á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur: Skáksumarið 2009 Í upphafi sumars ákvað ég að skipuleggja þriggja móta ferð, með það að að marki að ná síðasta alþjóðlega áfanganum, komast yfir 2400 stiga „múrinn“ og þannig jafnframt tryggja mér alþjóðameistaratitil. Fyrsta mótið, First Saturday í Búdapest þar sem ég tók þátt ...
Lesa meira »