Daði tapaði og Atli gerði jafntefli í 2. umf Politiken



Atli Antonsson (1720) gerði jafntefli við Danann, Torben Rosholm Pedersen (1987), en Daði Ómarsson (2091) tapaði fyrir pólska Fide meistaranum, Krzysztof Bulski (2392), í annarri umferð Politiken Cup sem lauk nú rétt í þessu.

Bragi Þorfinnsson (2377), Bjarni Jens Kristinsson (1985) og Ólafur Gísli Jónsson (1899) unnu allir sínar viðureignir.

Þriðja umferð fer fram í dag og hefst kl. 14 að íslenskum tíma en þá mætir Daði Dananum, Peter Thomsen (1875), og Atli teflir við Danann, Ib V. N. Jensen (1986).

Að þessu sinni eru 307 skákmenn skráðir í aðalmót Politiken Cup en þar af eru fimm Íslendingar og á meðal þeirra eru tveir úr Taflfélagi Reykjavíkur; Daði Ómarsson (2091) sem er einn efnilegasti skákmaður landsins og Atli Antonsson (1720), sem snýr nú aftur að skákborðinu eftir nokkurra ára hlé.  Aðrir Íslendingar á mótinu eru alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377) úr Taflfélagi Bolungarvíkur, Bjarni Jens Kristinsson (1985) úr Helli og Ólafur Gísli Jónsson (1899) úr KR.

Stigahæstur keppenda er rússneski stórmeistarinn, Vladimir Malakhov (2707)  en margir þekktir skákmenn taka þátt, s.s. danski stórmeistarinn, Peter Heine Nielsen (2680), hollenski stórmeistarinn, Sergei Tiviakov (2674) og rússneski stórmeistarinn, Alexey Dreev (2660).

Heimasíða mótsins