Author Archives: Þórir

Laugardagsæfingar hefjast á ný eftir sumarfrí

Hinar margrómuðu laugardagsæfingar Taflfélags Reykjavíkur hefjast á ný eftir sumarfrí laugardaginn 30. ágúst. Í vetur hefur göngu sína nýr flokkur, byrjendaflokkur, sem er fyrir yngstu iðkendurna sem eru að stíga sín fyrstu skref á reitunum 64. Sá flokkur byrjar æfingar laugardaginn 13. september. Allir hressir skákkrakkar eru hvattir til að mæta á laugardagsæfinguna 30. ágúst kl.14, líka þeir sem munu ...

Lesa meira »

Jón Viktor genginn í raðir Taflfélags Reykjavíkur

Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson er genginn til liðs við Taflfélag Reykjavíkur. Hann hefur undanfarin ár verið liðsmaður Taflfélags Bolungarvíkur en snýr nú á heimaslóðir í Faxafenið. Jón Viktor sem hefur einn áfanga að stórmeistaratitli hefur unnið marga glæsta sigra við skákborðið. Hann varð Íslandsmeistari í skák árið 2000 og var í sigurliði Íslands á Ólympíumóti undir 16 ára á ...

Lesa meira »

Íslandsmót skákfélaga í Fischer Random hraðskák 29.8

Þá er komið að því sem allir skákmenn hafa verið að bíða eftir, fyrsta skemmtikvöldi starfsársins hjá T.R. Ýmsar skemmtilegar tillögur hafa komið um móthald fyrir skemmtikvöldin í vetur og það verður byrjað með trukki. Fyrsta Íslandsmót taflfélaga í Fischer random hraðskák mun fara fram næstkomandi föstudagskvöld! Öll taflfélög eru hvött til að taka þátt og er frjálst að senda ...

Lesa meira »

TR vann í Fischersetri

Taflfélag Reykjavíkur sótti heim Skákfélag Selfoss og nágrennis (SSON) í 1.umferð Hraðskákkeppni taflfélaga. Teflt var í hinu glæsilega Fischersetri en þar er félagsaðstaða SSON. Skemmst er frá því að segja að TR hafði öruggan sigur í viðureigninni með 65 vinningum gegn 7 vinningum heimamanna. TR er því komið áfram í 2.umferð keppninnar og mæta þar Vinaskákfélaginu. Bestum árangri SSON náði ...

Lesa meira »

Unglingasveit TR komin áfram í 2.umferð

Unglingalið Taflfélags Reykjavíkur vann öruggan sigur á UMSB í 1.umferð hraðskákkeppni taflfélaganna. Teflt var í skákhöllinni í Faxafeni 12. Lokatölur urðu 43,5-28,5 eftir að ungmennin höfðu leitt 22-14 í hálfleik. Gauti Páll Jónsson stóð sig best TR-inga og skammt á eftir komu þeir Vignir Vatnar og Bárður Örn. Sá síðastnefndi fór hamförum lengst af en missti aðeins flugið í lokin. ...

Lesa meira »

Gróskumikið starf T.R. á komandi vetri

Mótahald Taflfélags Reykjavíkur á 115. starfsári þess hófst með pomp og prakt á sunnudag þegar fimm skákmenn deildu efsta sætinu á fjölmennu Stórmóti félagsins í samstarfi við Árbæjarsafn. Á mánudag fór síðan fram hið árlega Borgarskákmót sem Taflfélag Reykjavíkur stóð að í samstarfi við hið nýja skákfélag Hugin. 61 keppandi tók þátt og deildu alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson og Ólafur B. ...

Lesa meira »

Fimm efstir á Stórmótinu

Segja má að skákvertíðin hefjist með Stórmóti TR og Árbæjarsafns, en mótið fór fram í dag, annan sunnudag í ágúst eins og yfirleitt. Mæting fór fram úr björtustu vonum, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess hversu margir fastagestir eru uppteknir við að verja hróður landans í konungdæminu sem landnámsmenn vorir flúðu á sínum tíma. 37 keppendur mættu til leiks ...

Lesa meira »

Stórmót TR og Árbæjarsafns hefst í dag kl.14

Stórmót Taflfélags Reykjavíkur og Árbæjarsafns fer fram í dag, sunnudag, og er þetta í tíunda sinn sem mótið er haldið. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl. 14. Tefldar verða sjö umferðir með umhugsunartímanum 7 mín. á skák. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr. Þátttökugjöld eru kr. 1.300 fyrir 18 ára ...

Lesa meira »

Borgarskákmótið fer fram næsta mánudag

Borgarskákmótið fer fram næstkomandi mánudag, 11.ágúst, og hefst taflið klukkan 16. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og er nú haldið í 29.sinn. Taflfélag Reykjavíkur sem staðið hefur að mótinu frá upphafi og Skákfélagið Huginn halda mótið. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma á mann. Mótið er öllum opið og þátttaka er ókeypis. Gera má ráð ...

Lesa meira »

Stórmót TR og Árbæjarsafns fer fram næsta sunnudag

Stórmót Taflfélags Reykjavíkur og Árbæjarsafns fer fram í tíunda sinn sunnudaginn 10. ágúst. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl. 14. Tefldar verða sjö umferðir með umhugsunartímanum 7 mín. á skák. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í Stórmótinu, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr. Þátttökugjöld í Stórmótinu eru kr. 1.300 fyrir 18 ára og eldri, en ...

Lesa meira »

Björn Jónsson endurkjörinn formaður TR

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur var haldinn fyrir skömmu í salarkynnum félagsins og var mæting góð að vanda. Björn Jónsson var endurkjörinn formaður TR með lófaklappi sem þykir til marks um blómlegt starf félagsins á síðasta starfsári undir skeleggri forystu Björns. Tveir nýjir stjórnarmenn hlutu brautargengi á fundinum, þeir Gauti Páll Jónsson og Birkir Bárðarson. Þeir koma í stað Þorsteins Stefánssonar og ...

Lesa meira »

Hannes Hlífar í Taflfélag Reykjavíkur

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson er genginn til liðs við Taflfélag Reykjavíkur eftir nokkurra ára fjarveru.  Hannes Hlífar þarf ekki að kynna fyrir skákáhugamönnum en hann hefur um árabil verið einn af sterkustu og sigursælustu skákmönnum þjóðarinnar og er sem stendur fjórði stigahæsti skákmaður landsins með 2540 Elo-stig.   Hannes sýndi snemma mikla skákhæfileika og var á unga aldri orðinn mjög ...

Lesa meira »

Guðmundur Kjartansson Íslandsmeistari í skák

Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson vann glæstan sigur á Íslandsmótinu í skák sem lauk á dögunum.  Með sigrinum tryggði Guðmundur sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil og er hann sannarlega vel að honum kominn eftir mikla og góða ástundun að undanförnu.  Guðmundur, sem var sjöundi í stigaröð keppenda, leiddi mótið nánast frá byrjun, tapaði ekkki skák og var með árangur sem samsvarar 2624 ...

Lesa meira »

114. starfsári Taflfélags Reykjavíkur lokið

Senn lýkur enn einu gjöfulu skákári hjá Taflfélagi Reykjavíkur en aðalfundur félagsins verður haldinn í byrjun júní.  Nýr formaður félagsins, Björn Jónsson, tók við góðu búi af forvera sínum, Sigurlaugu Regínu Friðþjófsdóttur, sem leiddi félagið árin 2009-2013, jafnlengi og Óttar Felix Hauksson, forveri hennar. Starfsárið einkenndist af áframhaldandi uppgangi barna- og unglingastarfsins, flóru nýrra skákmóta og góðu samstarfi stjórnarmanna félagsins ...

Lesa meira »

Aðalfundur T.R. fer fram 2. júní

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 2. júní 2014 kl. 20 í húsnæði félagsins að Faxafeni 12. Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf.   Stjórn T.R.  

Lesa meira »

WOW air mótinu lokið

Hinu nýja Vormóti Taflfélags Reykjavíkur lauk síðastliðið mánudagskvöld þegar sjöunda og síðasta umferðin var tefld við hinar bestu aðstæður í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.  Mótið var sérlega glæsilegt og vel skipað en það var haldið í samstarfi við WOW air sem er einn af öflugustu bakhjörlum félagsins. Hugmyndina að Vormótinu átti formaður TR, Björn Jónsson, en því er ...

Lesa meira »

Verðlaunaafhending WOW air mótsins fer fram í kvöld

WOW air mótinu – Vormóti Taflfélags Reykjavíkur lauk í gærkvöldi með öruggum sigri stórmeistarans Hjörvars Steins Grétarssonar sem hlaut 6,5 vinning. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson hafnaði í öðru sæti með 5 vinninga og jafnir í 3.-4. sæti með 4,5 vinning voru stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson og alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson.Í B flokki sigraði Magnús Pálmi Örnólfsson með 5,5 vinning en Kjartan Maack, ...

Lesa meira »

Forsetinn Hraðskákmeistari öðlinga

Nýendurkjörinn forseti Skáksambands Íslands, Gunnar Björnsson, var í miklum ham á Hraðskákmóti öðlinga sem fór fram í gærkvöldi og vann alla sjö andstæðinga sína. Forsetinn sigraði örugglega á mótinu og er því Hraðskákmeistari öðlinga 2014. Þorsteinn Þorsteinsson, Stefán Þór Sigurjónsson og Kristinn J. Sigurþórsson komu næstir með 5 vinninga en Gunnar Freyr Rúnarsson og Þorvarður F. Ólafsson hlutu 4,5 vinning. Í lok mótsins ...

Lesa meira »

Óstöðvandi Hjörvar Steinn sigurvegari WOW air mótsins

Nýjasti stórmeistari Íslendinga, Hjörvar Steinn Grétarsson, er sigurvegari WOW air mótsins – Vormóts Taflfélags Reykjavíkur 2014.  Hjörvar tryggði sér sigurinn í gærkvöldi þegar hann lagði alþjóðlega meistarann Guðmund Kjartansson í sjöttu og næstsíðustu umferðinni og er því enn með fullt hús vinninga.  Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þórhallsson koma næstir með 4 vinninga ásamt hinum unga og efnilega Degi ...

Lesa meira »

Hraðskákmót öðlinga fer fram á miðvikudag

Hraðskákmót öðlinga fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Mótið hefst kl. 19.30 og er opið fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mín. umhugsunartíma.  Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga sem lauk s.l. miðvikudagskvöld með sigri alþjóðlega meistarans Sævars Bjarnasonar. Þátttökugjald er kr. 500 og er ...

Lesa meira »