Hraðskákmót öðlinga fer fram á miðvikudag



Hraðskákmót öðlinga fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Mótið hefst kl. 19.30 og er opið fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mín. umhugsunartíma.  Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga sem lauk s.l. miðvikudagskvöld með sigri alþjóðlega meistarans Sævars Bjarnasonar. Þátttökugjald er kr. 500 og er í því innifalið kaffi og góðgæti. Skákmenn 40+ eru hvattir til að fjölmenna!

Núverandi Hraðskákmeistari öðlinga er Róbert Lagerman.

  • Skákmót öðlinga 2014
  • Hraðskákmót öðlinga 2013