Íslandsmót skákfélaga í Fischer Random hraðskák 29.8



Þá er komið að því sem allir skákmenn hafa verið að bíða eftir, fyrsta skemmtikvöldi starfsársins hjá T.R. Ýmsar skemmtilegar tillögur hafa komið um móthald fyrir skemmtikvöldin í vetur og það verður byrjað með trukki. Fyrsta Íslandsmót taflfélaga í Fischer random hraðskák mun fara fram næstkomandi föstudagskvöld!

Öll taflfélög eru hvött til að taka þátt og er frjálst að senda eins margar sveitir til leiks og þau kjósa. Samkvæmt venju verður reglulega gert hlé á taflmennskunni til hægt sé að bregða sér á Billjardbarinn og væta kverkarnar.

Fyrirkomulagið verður eftirfarandi:

  1. Tímamörk eru 3 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma á hvern keppanda.
  2. Fjöldi skákmanna í hverri sveit eru fjórir og skal styrkleikaraðað eftir bestu samvisku. Sveitir skulu merktar A, B etc eftir styrkleika. Leyfilegt er að vera með tvo varamenn fyrir hverja sveit, sem koma þá inn á borð samkvæmt styrkleika.
  3. Swiss, round robin eða double round robin eftir fjölda sveita. Stefnt að því að tefla allavegana 12 umferðir.
  4. Leyfilegt er að fá einn lánsmann úr öðru félagi í sína sveit. Það hefur þó afleiðingar. Lán á stórmeistara kostar 3 vinninga, alþjóðlegur meistari kostar 2 vinninga, Fide meistari kostar 1 vinning og aðrir skákmenn kosta 1/2 vinning. Þessir vinningar verða dregnir frá í lok móts. Samþykki viðkomandi félags þarf að liggja fyrir til að lánið teljist löglegt.
  5. Sú sveit sem hlítur flesta vinninga sigrar og fær nafnbótina Íslandsmeistari taflfélaga í Fischer Random. Séu tvær eða fleiri sveitir jafnar að vinningum ber sú sveit sigur úr býtum sem hefur flesta “matchpoints”. Séu sveitir enn jafnar verður gripið til stigaútreiknings.
  6. Gerð verða tvö hlé til Billjardbarsferða meðan á mótinu stendur. Verðlaunaafhending mun fara fram á Billjardbarnum.
  7. Líkt og í íslandsmótinu í Fischer Random síðastliðið vor verða fjórar fyrstu stöðurnar gerðar opinberar degi fyrir mót.
  8. Verðlaun:
    1.sæti Bikar og 8000 króna úttekt á billjardbarnum í formi veitinga.
    2.sæti Bikar og 5000 króna úttekt á Billjardbarnum í formi veitinga.
    3.sæti Bikar og 2000 króna úttekt á Billiardbarnum í formi veitinga.
  9. Þátttökugjöld eru 500kr fyrir hvern skákmann.
  10. Aldurstakmark er 20 ár og rétt er að geta þess að áfengisbann ríkir í húsakynnum Taflfélagsins.

    Skráningu lýkur á miðnætti kvöldið fyrir keppni!
     
    Bjór á stórlækkuðu verði allt kvöldið! Hlökkum til að sjá ykkur!