Nóvember mánaðarhraðskákmót TR fer fram sunnudagskvöldið 13. nóvember klukkan 19:30 í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Mótin eru nú endurvakin eftir tasverðan dvala. Stefnt er að svona móti í hverjum mánuði. Mótin eru opin öllum. Ekki er þörf á að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3/2. 1000 króna þátttökugjald og 500 fyrir ...
Lesa meira »Author Archives: Gauti Páll Jónsson
Blikar Atskákmeistarar Taflfélaga 2022!
Skákdeild Breiðabliks unnu glæsilegan sigur á Atskákkeppni Taflfélaga 2022. Þetta er annað skiptið sem TR heldur þetta mót, og einnig í annað sinn sem Blikar vinna mótið. Eins og Halldór Grétar Einarsson liðsstjóri Breiðabliks benti réttilega á, þá er þetta raunverulega Íslandsmót, hér er lítið um erlenda málaliða eins og á Íslandsmóti skákfélaga. Átta taflfélög mættu til leiks og þar ...
Lesa meira »Þriðjudagsmót fellur niður í kvöld vegna Atskákkeppni Taflfélaga
Þriðjudagsmót fellur niður í kvöld vegna Atskákkeppni Taflfélaga. Næsta Þriðjudagsmót verður því þann 15. nóvember klukkan 19:30 í húsnæði TR, Faxafeni 12.
Lesa meira »Ólafur Thorsson með fullt hús á afar fjölmennu Þriðjudagsmóti
Ólafur Thorsson vann Þriðjudagsmótið 1. nóvember með fullu húsi. Skákirnar virtust vinnast nokkuð sannfærandi nema þá helst gegn Torfa Leóssyni, sem slysaðist til að falla á tíma peði yfir. En klukkan er ekki síður mikilvæg í atskák eins og í hraðskák, eins og sást vel á heimsmeistaramótinu í Fischer slembiskák. 37 keppendur mættu til leiks sem er meira en oft ...
Lesa meira »Æfing fullorðinna fellur niður í kvöld
Skákæfing fullorðinna fellur niður í kvöld vegna forfalla. Annars er dagskráin hér.
Lesa meira »Atskákkeppni Taflfélaga fer fram 7.-8. nóvember
Stuðst við tveggja kvölda dagskrá: Teflt er mánudagskvöldið 7. nóvember klukkan 19:30 og þriðjudagskvölið 8. nóvember klukkan 19:30. Þriðjudaginn 8. nóvember fellur hefðbundið þriðjudagsmót niður. Mótið fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Tefldar verða 9. umferðir eftir svissnesku kerfi, umferðir 1-5 á mánudeginum og 6-9 á þriðjudeginum. Teflt verður með tímamörkunum 10+5, 10 mínútur á mann á ...
Lesa meira »Jón Úlfljótsson með fullt hús á Þriðjudagsmóti!
Jón Úlfljótsson steig ekki feilspor á Þriðjudagsmóti TR þann 4. október síðastliðinn, og vann allar sínar skákir fimm að tölu. Græðir hann 17 stig fyrir það. Næstir í röðinni urðu þeir Brynjólfur Sigurjónsson, Egill Gautur Steingrímsson, Kristófer Orri Guðmundsson og Magnús Sigurðsson með fjóra vinninga. Mótið var vel sótt, 29 manns mættu til leiks þetta kvöldið, en mætingin hefur undanfarið ...
Lesa meira »U2000 móti hefst á morgun! Y2000 móti aflýst
Yfir 2000 mótinu hefur verið aflýst vegna dræmrar þátttöku. U2000 hins vegar í fullu fjöri! Þátttökurétt í U2000 mótinu hafa allir þeir sem hafa minna en 2000 Elo-stig. Miðað er við októberlista Fide 2022. Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartími 90 mínútur fyrir alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik. Leyfðar eru ...
Lesa meira »Mánaðahraðskákmót TR endurvakin!
Mánaðahraskákmót TR munu hefja aftur göngu sína á næstunni. Eitt hraðskákmót í mánuði. Taflmennskan hefst klukkan 19:30 á sunnudagskvöldum og tefldar verða 9 hraðskákir með tímamörkunum 3+2. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. 1000 krónur inn fyrir fullorðna og 500 fyrir 17. ára og yngri, þátttökugjald rennur að mestu leyti í verðlaun. Fyrsta mánaðarhraðskákmótið verður sunnudaginn 13. nóvember klukkan 19:30.
Lesa meira »Hraðskákmót TR fer fram 28. september klukkan 19:30
Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 miðvikudaginn 28. september kl. 19.30. Tefldar verða 11 umferðir eftir svissnesku kerfi og er umhugsunartíminn 4 mínútur auk þess sem 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik (4+2). Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga Þátttökugjald er 1.000kr fyrir 18 ára og eldri, en 500kr fyrir 17 ára og yngri – greiðist með reiðufé á staðnum. Félagsmenn TR ...
Lesa meira »Skákæfingar fullorðinna hefjast í kvöld!
Skákæfingar fyrir 16 ára og eldri Haldnir eru hálfsmánaðarlegir fyrirlestrar. Eftir um klukkutíma fyrirlestur er sett upp lítið hraðskákmót. Æfingarnar hefjast klukkan 19:30 og þeim lýkur um klukkan 21:30. Ingvar Þór Jóhannesson mun hafa yfirumsjón með æfingunum en einnig verða fengnir gestafyrirlesarar. Ekki er tekið við skráningum í þessar æfingar, heldur mun kosta 1000kr. á hvern fyrirlestur. Fyrirlestrarnir fara fram ...
Lesa meira »Arnar Milutin efstur á fyrsta útsenda Þriðjudagsmótinu!
Þriðjudagskvöldið 6. september síðastliðinn fór fram fyrsta Þriðjudagsmótið í beinni útsendingu! Ingvar Þór Jóhannesson fylgdi mótinu á youtube rás sinni, en teflt var upp á palli á beinleiðis borðunum þar, 6 borð, tólf manns. Arnari Milutin Heiðarssyni tókst að vinna mótið með fullu húsi, og vann á leið sinni á topinn meðal annars alþjóðlega meistarann Vigni Vatnar Stefánsson. Fjórir skákmenn ...
Lesa meira »Haustmót TR hefst á morgun – Skráningu í lokaða flokka lýkur klukkan 22 í kvöld!
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2022 hefst miðvikudaginn 7. september kl. 18:30. Mótið, sem var fyrst haldið árið 1934, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót Taflfélags Reykjavíkur. Mótið er flokkaskipt, öllum opið og verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga. Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Sævar Bjarnason. ...
Lesa meira »Fyrsta Live Þriðjudagsmótið á morgun!
Fyrsta Þriðjudagsmót sögunnar sem sýnt verður beint frá á netinu, verður á morgun! Efstu borðin verða bein útsendingarborð og mun Fide meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson sjá um að skýra skákirnar. Búast má við nokkuð sterku móti! Hlekkur á beinu útsendingum verður settur á skák.is og á Facebook síðuna íslenskir skákmenn. Almenn auglýsing þriðjudagsmótanna: Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru ...
Lesa meira »Dagskrá Þriðjudagsmóta í haust
Dagskrá Þriðjudagsmóta TR fram að áramótum verður svona: September 6. september, 13. september, 20. september, 27. september. Október 4. október, 11. október, 18. október, 25. október Nóvember 1. nóvember, 15. nóvember, 22. nóvember. Þriðjudaginn 8. nóvember fellur niður mót vegna Atskákkeppni Taflfélaga. Þriðjudaginn 29. nóvember fellur niður mót vegna Atskákmóts Reykjavíkur. Desember 13. desember, 20. desember. Þriðjudaginn 6. desember ...
Lesa meira »Gauti Páll og Kjartan Maack efstir á Þriðjudagsmóti
Mótsstjórinn Gauti Páll Jónsson, og fyrrum formaður TR Kjartan Maack, urðu efstir og jafnir á þriðjudagsmótinu þann 23. ágúst með 4.5 vinning af 5 eftir innbyrðis jafntefli í lokaumferðinni. Gauti Páll varð aðeins hærri á oddastigum þótt það munaði ekki miklu. Lokaskákin var spennandi og Gauti rétt slapp með fráskák í erfiðri vörn. 24 skákmenn mættu til leiks að þessu ...
Lesa meira »Stórmót Árbæjarsafns og TR haldið sunnudaginn 28. ágúst klukkan 14
Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 28. ágúst. Mótið gefur einstakt tækifæri til að takast á við skákgyðjuna í sögulegu umhverfi Árbæjarsafns. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl.14. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik (4+2). Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr. Mótið verður ...
Lesa meira »Borgarskákmótið haldið fimmtudaginn 18. ágúst klukkan 15
Borgarskákmótið fer fram fimmtudaginn 18. ágúst, og hefst það kl. 15:00. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur Taflfélag Reykjavíkur að mótinu. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst í ...
Lesa meira »Dagskrá Þriðjudagsmóta TR í sumar
Í júní og júlí verða Þriðjudagsmótin aðra hvora viku. Dagskráin: júní, 21. júní júlí, 19. júlí …og síðan vikulega frá og með ágúst Almennar upplýsingar um mótin: Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í ...
Lesa meira »Þriðjudagsmótin vikulega í ágúst
Vegna góðrar aðsóknar verða Þriðjudagsmót TR vikuleg í ágústmánuði, ekki hálfsmánaðarlega eins og auglýst hefur verið. Stjórn TR
Lesa meira »