Mánaðarhraðskákmót TR í kvöld!



Desember-mánaðarhraðskákmót TR fer fram sunnudagskvöldið 4. desember klukkan 19:30 í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Stefnt er að svona móti í hverjum mánuði. Mótin eru opin öllum. Ekki er þörf á að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn.

Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3/2.

1000 króna þátttökugjald og 500 fyrir 17 ára og yngri. Ókeypis þátttökugjöld fyrir 17 ára og yngri í TR.

Veitt verða verðlaun fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig.

Verðlaun verða svona: 70% af greiddum þátttökugjöldum renna í verðlaunasjóð og skiptist sú upphæð jafnt á milli sigurvegara mótsins, og þess sem nær bestum árangri miðað við stig (rating performance)