U2000 móti hefst á morgun! Y2000 móti aflýst



Yfir 2000 mótinu hefur verið aflýst vegna dræmrar þátttöku.

U2000 hins vegar í fullu fjöri!

Þátttökurétt í U2000 mótinu hafa allir þeir sem hafa minna en 2000 Elo-stig. Miðað er við októberlista Fide 2022. Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartími 90 mínútur fyrir alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik. Leyfðar eru tvær yfirsetur í umferðum 1-5 sem skal tilkynna skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan en 1/2 vinningur fæst fyrir yfirsetu. Teflt er einu sinni í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 18.30, í Skákhöll félagsins að Faxafeni 12. Bæði mótin fara fram samtímis.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Dagskrá

  1. umferð: 12. október kl. 18.30
  2. umferð: 19. október kl. 18.30
  3. umferð: 26. október kl.18.30
  4. umferð: 2. nóvember kl. 18.30
  5. umferð: 9. nóvember kl. 18.30
  6. umferð: 16. nóvember kl. 18.30
  7. umferð: 23. nóvember kl. 18.30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Tímamörk: 90 mín á alla skákina + 30 sek viðbót eftir hvern leik. Enginn aukatími eftir 40 leiki.

Verðlaun: 1. sæti kr. 30.000, 2. sæti kr. 20.000, 3. sæti kr. 10.000. Hort-kerfi gildir.

Röð mótsstiga (tiebreaks):  1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Fleiri sigrar

Þátttökugjöld: 18 ára og eldri kr. 5.000, kr. 3.000 fyrir félagsmenn í TR. 17 ára og yngri kr. 2.000, frítt fyrir félagsmenn í TR.

Skákstjórn: Jon Olav Fivelstad og Daði Ómarsson

Skráningarform í Undir 2000 mótið

Þegar skráðir í Undir 2000 mótið