Unglingameistaramót TR fer fram á morgun!



Unglingameistaramót Taflfélags Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót T.R., fer fram sunnudaginn 20. nóvember í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og áætlað er að mótinu ljúki kl. 17.

Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Þátttaka er ókeypis.

Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2007 eða síðar. Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Ef þátttakendur í stúlknaflokki eru færri en 7 munu allir þátttakendur tefla saman í opnum flokki. Verði teflt í einum flokki getur sami keppandi aðeins unnið einn titil.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum auk þess sem efsti TR-ingurinn hlýtur titilinn Unglingameistari T.R. 2022.  Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í stúlknaflokki auk þess sem efsti TR-ingurinn hlýtur titilinn Stúlknameistari T.R. 2022.

Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í öllum árgöngum í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum), elsti árgangurinn er 2007 og yngsti árgangurinn er 2017 og yngri.

Núverandi Unglingameistari TR er Ingvar Wu Skarphéðinsson. Núverandi Stúlknameistari TR er Iðunn Helgadóttir.

Nánari upplýsingar um mótið 2021 má nálgast hér í þessari frétt.

Skráning í mótið fer fram á hefðbundnu rafrænu skráningarformi. Skákstjórar í mótinu verða þau Ulker Gasanova og Torfi Leósson.

Skráningaform 

Þegar skráðir keppendur