Mánaðarhraðskákmót TR fer fram í kvöld!



Nóvember mánaðarhraðskákmót TR fer fram sunnudagskvöldið 13. nóvember klukkan 19:30 í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Mótin eru nú endurvakin eftir tasverðan dvala. Stefnt er að svona móti í hverjum mánuði. Mótin eru opin öllum. Ekki er þörf á að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn.

Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3/2.

1000 króna þátttökugjald og 500 fyrir 17 ára og yngri. Ókeypis þátttökugjöld fyrir 17 ára og yngri í TR.

Veitt verða verðlaun fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig.

Einnig verður gegnumgangandi stigakeppni í gangi, en það verður útfært betur þegar nær dregur.