Uncategorized

Jón L. Árnason genginn til liðs við Taflfélag Reykjavíkur

JonLArnason

Stórmeistarinn Jón L. Árnason er genginn til liðs við Taflfélag Reykjavíkur. Jón þarf ekki að kynna fyrir skákáhugamönnum en hann varð fyrsti Heimsmeistari Íslendinga í yngri flokkum en það afrek vann hann í Cagnes sur mer við frönsku rivíeruna haustið 1977. Jón varð síðar stórmeistari og hluti af fjórmenningaklíkunni frægu. Jón hefur minna teflt undanfarin ár en staðið sig vel ...

Lesa meira »

Anh Hai Tran sigurvegari Sumarsyrpu III, Katrín Ósk efst stúlkna. Emil Fenger Sumarsyrpumeistari 2025

20250810_101715

Helgina 8-10 ágúst fór fram þriðja og jafnframt lokamót í sumarmótaröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er annað árið sem Talfélagið heldur þessa sumarmótaröð sem hefur og er komið til að vera. Mótin halda áfram að vera einn sá besti vettvangur fyrir krakka að kynnast skákskriftum ásamt því að fá sín fyrstu skákstig. Að þessu sinni voru 24 keppendur skráðir til leiks ...

Lesa meira »

Sumarsyrpa T.R III (8-10 ágúst)

BikarsyrpanBanner_generic

Helgina (8-10.ágúst) fer fram þriðja mót í Sumarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er þriðja mótið af 3 sem haldið er þetta sumar. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur Faxfeni 12. Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla ...

Lesa meira »

Helgi Áss bestur á Meistaramóti Truxva!

Kristófer, Arnar, Helgi, Gauti, Theodór.

Meðan Helgi Áss Grétarsson var ennþá Íslandsmeistari freistaði hann þess að næla sér í einn eftirsóknarverðan og skemmtilegan mótssigur – að vinna Meistaramót Truxva! Það tókst þann 2. júní síðastliðinn. Seint koma sumar fréttir en koma þó! Mótið var nautsterkt og vel sótt að vanda. 36 skráðir, takk fyrir. Fyrirfram mátti áætla að Helgi Áss og Arnar E. Gunnarsson yrðu ...

Lesa meira »

Sunnudagsmót um helgina!

Taflfelag_RV_Logo

Haldin verða hraðskákmót í hádeginu á sunnudögum einu sinni í mánuði ef vel gengur!  Tefldar verða 7. umferðir með tímamörkunum 5+3. Þá eru 5 mínútur á mann og 3 sekúndur bætast við hvern leik. Áætla má að mótin verði um tvær klukkustundir, standi frá 12:00-14:00. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er ...

Lesa meira »

Símon sigurvegari á Viðeyjarskákmótinu

VideyWinners

Það var þokukenndur en fallegur sunnudagur þegar keppendur skelltu sér í ferjuna til Viðeyjar til að taka þátt í fimmta Viðeyjarskákmótinu sem Taflfélag Reykjavíkur heldur í Viðeyjarstofu í samstarfi við Eldingu og Borgarsögusafn. Það var viðeigandi að þetta skemmtilega mót færi fram á Alþjóðlega skákdeginum, 20. júlí. Upphaflega var Björn Þorfinnsson stigahæstur skráðra keppenda. Hann varð hinsvegar á sviplegan hátt að hætta við ...

Lesa meira »

Emil Fenger sigurvegari Sumarsyrpu II Katrín Ósk efst stúlkna

20250713_161427

Helgina 11-13 júlí fór fram önnur Sumarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur. Þrátt fyrir að mótið færi fram í miðjum júlí voru 38 keppendur skráðir til leiks. Töluvert aukning var á keppendum með skákstig frá fyrra móti sem fór fram í júní. Fyrir lokadag mótsins voru það Jóel Helmer og Katrín Ósk sem leiddu mótið bæði með fullt hús. Í 5.umferð mættust þau ...

Lesa meira »

Viðeyjarmótið 2025 verður 20. júlí

Teflt úti

Taflfélag Reykjavíkur heldur skákmót í Viðeyjarstofu í samstarfi við Eldingu og Borgarsögusafn sunnudaginn 20. júlí kl. 13. Mótið er opið öllum áhugasömum og þátttaka ókeypis en greiða þarf í ferjuna. Þetta verður fimmta sinn sem mótið verður haldið. Frétt mótsins 2021   Frétt mótsins 2022 Frétt mótsins 2023  Frétt mótsins 2024 Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur á mann og 2 sekúndur á ...

Lesa meira »

Sumarsyrpa T.R. II (11-13 júlí)

BikarsyrpanBanner_generic

Helgina (11-13.júlí) fer fram annað mót í Sumarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er annað mótið af 3 sem haldið er þetta sumar. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur Faxfeni 12. Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla ...

Lesa meira »

Ekkert Sunnudagsmót 29. júní

Taflfelag

Sunnudagsmótið sem var á dagskrá sunnudaginn 29. júní fellur niður að þessu sinni. Á sama degi fer fram mót á vegum VigniVatnar.is sem við hvetjum skákfólk til að taka þátt í auk þess sem Sumarsyrpa verður í gangi á sama tíma. Næsta sunnudagsmót verður auglýst síðar.

Lesa meira »

Þjóðhátíðar-þriðjudagsmót í kvöld!

Taflfelag

Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta ...

Lesa meira »

Sumarsyrpa T.R. (27-29 júní)

BikarsyrpanBanner_generic

Helgina (27 júní -29.júní) fer fram fyrsta mót í Sumarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er fyrsta mótið af 3 sem haldið er þetta sumar. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur Faxfeni 12. Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim ...

Lesa meira »

Pétur hlutskarpastur á Friðrikssyrpu V

BIkarYfirmynd

Fimmta mótið í Friðrikssyrpunni, bikarsyrpu TR lauk um helgina. Jafnframt lauk syrpunni í vetur og heildarmeistari var krýndur. Pétur Ernir Úlfarsson vann þessu fimmtu syrpu með fullu húsi og með því tryggði hann sér líka sigur í heildarkeppninni. Pétur var í miklu stuði eins og áður sagði með 7 vinninga af 7 en næstur honum á stigum og jöfn komu ...

Lesa meira »

Meistaramót Truxva í kvöld klukkan 18:30! Enn hægt að skrá sig!

truxvi6

Meistaramót Truxva verður haldið mánudagskvöldið 2. júní, í Friðrikssal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið er nú haldið í níunda sinn og er opið öllum skákmönnum. Taflið hefst stundvíslega klukkan 18:30. (Athugið – klukkutíma fyr en vanalega á kvöldhraðskákmótum í TR) Tefldar verða 11 eða 13 umferðir (kosið á skákstað) með tímamörkunum 3m+2s. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Verðlaun: 1.sæti 25.000 kr. 2.sæti 15.000 kr. 3.sæti 10.000 kr. ...

Lesa meira »

Friðrikssyrpa T.R. V (30 maí – 1.júní)

BikarsyrpanBanner_generic

Helgina (30 maí -1.júní) fer fram loka mót í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur – Friðrikssyrpunni. Þetta er fimmta mótið af fimm sem haldið er á tímabilinu 2024-25. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur Faxfeni 12. Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim ...

Lesa meira »

Átakalaus aðalfundur Taflfélagsins – Sigurlaug og Torfi heiðursfélagar

SigurlaugOgTorfi

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur fór fram í gærkvöldi, þann 26. maí, í húsakynnum félagsins að Faxafeni 12 – nánar tiltekið í Friðrikssal, heimavelli Taflfélagsins. Fundinn sátu vel á annan tug félagsmanna og fór hann fram í góðum anda, þar sem bæði venjubundin aðalfundarstörf og líflegar umræður einkenndu kvöldið. Lítilsháttar breytingar urðu á stjórn félagsins. Guðlaugur Gauti Þorgilsson lét af störfum í ...

Lesa meira »

Aðalfundur Taflfélagsins í kvöld!

Taflfelag

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur verður haldinn í félagsheimilinu Faxafeni 12, mánudaginn 26. maí og hefst hann kl. 19.30. Dagskrá: Almenn aðalfundarstörf Önnur mál Stjórnin

Lesa meira »

Sunnudagshraðskák í TR í dag klukkan 12

þriðjudagur

Haldin verða hraðskákmót í hádeginu á sunnudögum einu sinni í mánuði nú í vor og sumar. Ef vel gengur verður haldið áfram með mótin í haust. Tefldar verða 7. umferðir með tímamörkunum 5+3. Þá eru 5 mínútur á mann og 3 sekúndur bætast við hvern leik. Áætla má að mótin verði um tvær klukkustundir, standi frá 12:00-14:00. Teflt er í ...

Lesa meira »

Boðsmót TR um næstu helgi

Taflfelag

Boðsmót TR fer fram helgina 9.–11. maí í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Eins og venjan er, hefst mótið á föstudegi með fjórum umferðum af atskák og síðan eru tefldar þrjár kappskákir um helgina. Keppnisfyrirkomulag: Föstudagur 9. maí: 4 umferðir atskák (15+5) Laugardagur 10. maí og sunnudagur 11. maí: 3 umferðir klassískar skákir (90 mín + 30 sek/leik) Boðsmótið er ...

Lesa meira »

Jóel Helmer Tóbíasson sigurvegari Bikarsyrpu IV Emilía Klara Tómasdóttir efst stúlkna

20250427_130652

Helgina 25-27 apríl fór fram fjórða mótið í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Mótið var að þessu sinni í minna lagi sem skýrist af miklu mótahaldi sem fór fram þess helgi og sýnir hversu mikið er í gangi í íslensku skáklífi þessa dagana. Mótið fór að mestu leitinni eftir bókinni en nokkuð var um óvænt úrslit eins og venjulega. Eftir 4.umferðir voru ...

Lesa meira »