Taflfélag Reykjavíkur og Skákdeild Fjölnis munu nú hefja að nýju fimmtudagsmótin, sem vinsæl voru hér forðum í Taflfélaginu. Fyrsta mótið verður haldið næstkomandi fimmtudag, 27. september, kl. 19:30 í Faxafeninu. Hvert mót verður hluti af mótaröð, Grand Prix 2007-2008, en í vetrarlok mun sá, sem stendur sig best heilt yfir litið, mælt eftir Stone-Stone kerfinu, hljóta vegleg verðlaun: Ferð á ...
Lesa meira »Uncategorized
C-flokkur Boðsmótsins hófst í dag
Tólf áhugasamir skákmenn höfðu samband við Taflfélag Reykjavíkur og langaði til að tefla. Úr varð stofnun C-flokks Boðsmóts T.R. en fyrsta umferð fór einmitt fram í kvöld. Reyndar settu fleiri áhugasamir skákmenn sig í samband við T.R. eftir að farið var af stað með C-flokkinn. Er því verið að safna í 4 umferða D-flokk sem hefst næstkomandi sunnudag. Áhugasömum er ...
Lesa meira »Titilveiðarar gerðu jafntefli
Enn er möguleiki á að áfangi að alþjóðlegum meistaratitli náist á Boðsmóti Taflfélags Reykjavíkur. Þeir tveir sem gætu náð þeim áfanga eru Fide meistararnir Esben Lund og Guðmundur Kjartansson, en báðir þurfa að fá 2 vinninga úr síðustu tveimur skákunum sínum. Svo skemmtilega vildi til að Esben og Guðmundur mættust í dag og skildu jafnir eftir baráttuskák. Jafntefli varð einnig ...
Lesa meira »Jón Viktor eykur forskotið
Jón Viktor Gunnarsson jók forskot sitt á Boðsmóti TR um hálfan vinning í 6. umferð í dag. Jón sigraði Andrzej Misiuga, en á sama tíma gerði Esben Lund einungis jafntefli. Jón er nú með hálfs vinnings forskot á Esben Lund og Guðmund Kjartansson, en hinir tveir síðarnefndu þurfa að fá 2,5 vinning úr síðustu þremur skákunum til að ná áfanga ...
Lesa meira »Magnús Örn í Helli
Magnús Örn Úlfarsson (2400) er genginn í Taflfélagið Helli. T.R. óskar Magnúsi velfarnaðar hjá nýju félagi.
Lesa meira »Kristján Örn og Halldór í T.R.
Kristján Örn Elíasson (1825) og Halldór Garðarsson (1895) eru gengnir í T.R. Þeir voru síðast í T.R., en hafa verið utan félaga um skamma hríð. T.R. býður þá félaga velkomna heim, en þeir munu koma öflugir til leiks í komandi baráttu, eins og þeirra er von og vísa.
Lesa meira »Frímann Benediktsson í T.R.
Frímann Benediktsson (1795) hefur skipt í Taflfélag Reykjavíkur frá Skákfélagi Reykjanesbæjar og mun tefla með félaginu á Íslandsmóti skákfélaga. Enginn vafi leikur á, að hann mun styrkja félagið verulega, enda hefur það misst nokkra félaga upp á síðkastið og veitir ekki af góðum liðsstyrk. T.R. býður Frímann velkominn í félagið.
Lesa meira »Jón Viktor efstur á Boðsmótinu
Jón Viktor Gunnarsson, alþjóðameistari úr T.R., er efstur á Boðsmótinu a-flokki eftir 5 umferðir. Hann sigraði í kvöld Guðmund Kjartansson, sem var efstur ásamt honum fyrir skákina. Úrslit urðu annars sem hér segir: Round 5 on 2007/09/21 at 17:00 Bo. No. Name Result Name No. 1 3 Omarsson Dadi 0 – 1 Klimciauskas ...
Lesa meira »Jón Viktor og svartur halda sigurgöngu áfram
Jón Viktor Gunnarsson vann Guðmund Kjartansson í 5. umferð Boðsmótsins. Jón Viktor er þar með kominn með 4,5 vinning. Í humátt er Esben Lund með 4 vinninga, en hann vann Ingvar Þór Jóhannesson í 81 leikja skák. Með 3,5 vinning eru svo Guðmundur Kjartansson og Domantas Klimciauskas, en þessir þrír síðastnefndu eiga möguleika á áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Til þess ...
Lesa meira »Skákir 4. umferðar aðgengilegar
Allar skákir Boðsmótsins frá 1.-4. umferð eru nú aðgengilegar hér: taflfelag.is/
Lesa meira »Íslandsmeistarar T.R. mæta Helli í úrslitum
Íslandsmeistarar T.R. munu mæta silfursveit Hellis í úrslitum Hraðskákkeppni taflfélaga, eftir að Hellismenn sigruðu sveit Hauka í undanúrslitum. Áður höfðu Íslandsmeistarar T.R., sem unnu Helli með fáheyrðum yfirburðum í úrslitum á síðasta ári, lagt Akureyringa í fyrri viðureign undanúrslitanna. Ekki er komin dagsetning á úrslitaviðureign Íslandsmeistaranna og silfurliðsins frá síðasta ári, en vísast verður hún haldin fyrir Evrópumót félagsliða, sem ...
Lesa meira »Jón Viktor og Guðmundur efstir á Boðsmótinu
Jón Viktor Gunnarsson og Guðmundur Kjartansson eru efstir á Boðsmótinu a-flokki eftir skákir kvöldsins. Jón Viktor sigraði Kaunas með hvítu, en Guðmundur rúllaði yfir Braga Þorfinnsson, með svörtu í Caro-kann vörn, í aðeins 16 leikjum á einkar snaggaralegan hátt. Um önnur úrslit sjá töflu: Úrslit 4. umferðar: 1 10 Klimciauskas Domantas 1 – 0 Misiuga Andrzej 7 ...
Lesa meira »Björn Jónsson í T.R.
Björn Jónsson (1960) hefur gengið í T.R. frá Skáksambandi Austurlands, skv. frétt á Skák.is. T.R. býður Björn velkominn í félagið og fagnar liðsstyrk þessa öfluga meistara fyrir komandi átök við skákborðið.
Lesa meira »Hvítur réttir úr kútnum á Boðsmótinu
Jæja, þrír sigrar unnust á hvítt í þriðju umferð Boðsmótsins, en fram til þessa höfðu svörtu mennirnir þótt vænlegri til sigurs. Það voru aðeins íslensku alþjóðameistararnir Jón Viktor Gunnarsson og Bragi Þorfinnsson sem fengu hálfan punkt hvor á svörtu mennina, eins og sjá má af töflunni hér að neðan. Bo. No. Name Result Name ...
Lesa meira »Fyrsti sigur hvíts á Boðsmótinu
Hann lét bíða eftir sér, fyrsti sigur hvíts á alþjóðlega Boðsmótinu, en eftir að Esben Lund hafði knésett Matthías Pétursson með svörtu mönnunum í annarri umferð og unnið þar með sjötta sigur svarts í röð, tókst Jóni Viktori að leggja Daða Ómarsson með hvítu í endatafli. Hvítur stendur samt enn höllum fæti, því Ingvar Þór Jóhannesson lagði Braga Þorfinnsson með ...
Lesa meira »Geir Ólafsson í T.R.
Geir Ólafsson, einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar, er genginn í Taflfélag Reykjavíkur. T.R.ingar bjóða hann velkominn í raðir félagsins og vænta þess, að hann eigi eftir að vinna ekki síðri afrek við skákborðið en við hljóðnemann.
Lesa meira »Skákir 1. umferðar komnar inn
Skákir 1. umferðar Boðsmótsins eru komnar á vefinn. Til að nálgast skákirnar skal slá hér Við minnum á, að 2. umferð Boðsmótsins fer fram á morgun, þriðjudag, kl. 17.00 í Faxafeni 12.
Lesa meira »T.R. sigraði Akureyringa í Hraðskákkeppni taflfélaga
T.R. ingar stóðu í ströngu víðar en í Boðsmótinu, en í kvöld fóru einnig fram undanúrslit í Hraðskákkeppni taflfélaga. Vösk sveit Akureyinga kom í heimsókn og eftir nokkrar mínútur féll vefstjórinn fyrir Rúnari Sigurpálssyni. En lengra komust norðanmenn ekki. Taflfélagsmenn sigruðu með 52 vinningum gegn 20 vinningum Akureyringa. Í hálfleik var staðan 25 1/2 – 10 1/2. Umf. 1 4 ...
Lesa meira »Svartur dagur í 1. umferð
Hið alþjóðlega Boðsmót Taflfélags Reykjavíkur hófst með því að svartur vann í öllum skákum. Tveir stigahæstu menn mótsins mættust í skák Esben Lund gegn Jóni Viktori og hafði Jón sigur. Stigahærri menn unnu sigur í öllum skákum, nema í skák Ingvars Þórs Jóhannessonar gegn Andrzej Misiuga, en þar hafði sá pólski sigur. Sjá nánar á taflfelag.is/ Hægt er að nálgast ...
Lesa meira »1. umferð í Boðsmótinu
1. umferð í A-flokki Alþjóðaboðsmótsins fer fram í dag. Þar leiða eftirfarandi saman hesta sína: Í kvöld var dregið um töfluröð og í 1. umferð mætast (Í A-flokki) Matthías Pétursson – Domantis KlimciauskasEsben Lund – Jón Viktor GunnarssonDaði Ómarsson – Bragi ÞorfinnssonIngvar Þ. Jóhannesson – Andrzej MisiugaKestutis Kaunas – Guðmundur Kjartansson Mynd: Esben Lund frá Danmörku teflir við Jón ...
Lesa meira »
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins