Grand-Prix fimmtudagsmót í Faxafeninu



Taflfélag Reykjavíkur og Skákdeild Fjölnis munu nú hefja að nýju fimmtudagsmótin, sem vinsæl voru hér forðum í Taflfélaginu.

Fyrsta mótið verður haldið næstkomandi fimmtudag, 27. september, kl. 19:30 í Faxafeninu.

Hvert mót verður hluti af mótaröð, Grand Prix 2007-2008, en í vetrarlok mun sá, sem stendur sig best heilt yfir litið, mælt eftir Stone-Stone kerfinu, hljóta vegleg verðlaun: Ferð á Politiken Cup skákmótið í Danmörku næsta sumar.

Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir fullorðna, en ókeypis fyrir börn og unglinga 15 ára og yngri.

Á hverju móti verða veitt verðlaun, sem verður nánar getið um síðar. Nefna má, að ýmis fyrirtæki koma þar að málum.

Fimmtudagsmótin verða svo auglýst nánar þegar nær líður.