Laugardaginn fyrir páska var skákæfing að venju í húsnæði T.R. í Faxafeninu. Það var ekkert gefið eftir og krakkarnir 15 sem mættu tefldu 6 umferðir. Einn nýr strákur bættist í hópinn. Eins og áður hefur verið sagt er aldrei of seint að koma í fyrsta skipti á skákæfingu. Þó svo að komið sé undir vor og skákæfingunum fari fækkandi, þá ...
Lesa meira »Author Archives: Þórir
Fimmtudagsmót í kvöld
Hin hefðbundnu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur halda áfram í kvöld. Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10. Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening. Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri. Jafnframt er ...
Lesa meira »Myndir frá laugardagsæfingunni 4. apríl
Nú eru komnar myndir frá síðustu laugardagsæfingu inn í myndagallerí TR heimasíðunnar. Æfingin var með páskaþema og eru fólk hvatt til að kíkja á myndirnar sem teknar voru af Jóhanni H. Ragnarssyni.
Lesa meira »Skemmtilegt á laugardagsæfingu með páskaívafi
Páskafrí í grunnskólunum en ekki hjá Taflfélagi Reykjavíkur! Síðastliðinn laugardag mættu 22 hressir krakkar á skákæfingu. Og ekki versnaði það þegar þau fengu að vita að næstkomandi laugardag (11. apríl) yrði líka skákæfing! Allavega. Þetta var ljómandi góð æfing. Tveir drengir komu í fyrsta skipti og voru strax skráðir í æfingamótið, enda ekki eftir neinu að bíða. Þar sem nú er ...
Lesa meira »Fimmtudagsmót í kvöld
Hin hefðbundnu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur halda áfram í kvöld. Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10. Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening. Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Lesa meira »Birkir Karl kjördæmismeistari Reykjaness
Birkir Karl Sigurðsson (1535) sigraði í gær í yngri flokki kjördæmismóts Reykjaneskjördæmis en hann hlaut 6,5 vinning. Í öðru sæti með 6 vinninga hafnaði annar meðlimur Taflfélags Reykjavíkur, Friðrik Þjálfi Stefánsson (1565), og taka þeir því báðir þátt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer á Akureyri 30. apríl til 3. maí. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir (1605) hafnaði í fjórða sæti ...
Lesa meira »Sverrir Þorgeirsson sigraði á fimmtudagsmóti
Sverrir Þorgeirsson sigraði á fimmtudagsmóti TR með 7 vinninga úr 9 umferðum. Í 2.-3. sæti urðu Helgi Brynjarsson og Halldór Pálsson með 6,5 vinning. Keppendur voru fjórtán að þessu sinni og tefldu þeir 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Lokastaðan: 1 Sverrir Þorgeirsson, 7 32.0 40.0 30.0 2-3 Helgi Brynjarsson, 6.5 35.5 45.0 30.5 Halldór Pálsson, 6.5 ...
Lesa meira »Fimmtudagsmót í kvöld – aukaverðlaun í boði!
Hin hefðbundnu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur halda áfram í kvöld en því miður féll mótið niður síðastliðinn fimmtudag. Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10. Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening. Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en ...
Lesa meira »Laugardagsæfingin 28. mars
 17 börn voru á skákæfingunni s.l. laugardag. Seinni hluta vetrar hafa nokkur 6 ára börn byrjað á laugardagsæfingunum og hafa þau staðið sig með mikilli prýði. Það hefur verið tekið eftir því á æfingunum að þau yngstu hafa verið afskaplega prúð við skákborðið og líka á milli skáka. Það er mjög ánægjulegt, því skákstaður er jú staður þar sem einbeitingin á að ...
Lesa meira »Hannes hafnaði í 1.-4. sæti á Rvk open!
Hannes Hlífar Stefánsson (2563) lauk þátttöku á Reykjavíkurmótinu með sigri og tryggði sér þar með efsta sætið með 7 vinninga ásamt Héðni Steingrímssyni (2547), sem einnig vann í síðustu umferðinni, Yuriy Kryvoruchko (2604) og Mihail Marin (2556). Eftir stigaútreikning telst Héðinn sigurvegari mótsins og Hannes hafnar í því þriðja. Glæsilegur árangur hjá Hannesi, sem tapaði ekki skák í mótinu, og ...
Lesa meira »Hannes í 3.-8. sæti fyrir lokaumferðina, Þröstur vinnur á.
Stigahæsti skákmaður Taflfélags Reykjavíkur sem og landsins alls, Hannes Hlífar Stefánsson (2563), sigraði Frakkann, Igor-Alexandre Nataf (2533), í áttundu og næstsíðustu umferð Reykjavíkurmótsins en umferðinni var að ljúka. Hannes er því kominn upp í 3.-8. sæti með 6 vinninga líkt og landi hans, Héðinn Steingrímsson (2547) sem einnig vann í dag, en þeir eru efstir íslensku þátttakendanna. Þröstur Þórhallsson (2442) ...
Lesa meira »Sjöunda umferð Rvk open
Hannes Hlífar Stefánsson (2563) gerði jafntefli við stigahæsta keppanda Reykjavíkurmótsins, Alexander Areschchenko (2673), í sjöundu umferð sem fram fór í gær. Hannes er efstur Íslendinga ásamt Héðni Steingrímssyni (2547) í 6.-15. sæti með 5 vinninga. Næstur TR-inga er Þröstur Þórhallsson (2442) með 4,5 vinning eftir sigur í gær. Líkt og Þröstur sigruðu Kristján Örn Elíasson (1940) og Páll Andrason (1564) ...
Lesa meira »Fimmtudagsmót féll niður
Fimmtudagsmót TR sem vera átti síðastliðið fimmtudagskvöld féll niður. Vegna óviðráðanlegra orsaka láðist að gefa út tilkynningu þess efnis. Stjórn Taflfélags Reykjavíkur biðst velvirðingar á því. Mótunum verður framhaldið næsta fimmtudagskvöld, 2. apríl kl. 19.30.
Lesa meira »Hannes í hópi efstu manna á Rvk open
Þegar sex umferðum er lokið á Reykjavíkurmótinu er Hannes Hlífar Stefánsson (2563) í 5.-12. sæti með 4,5 vinning eftir góðan sigur á ítalska alþjóðlega meistaranum, Denis Rombaldoni (2418), í sjöttu umferð sem fram fór í gær. Hannes mætir stigahæsta keppanda mótsins, Alexander Areshchenko (2673), í sjöundu umferð. Hannes var eini á meðal TR meðlima sem sigraði í sjöttu umferðinni en ...
Lesa meira »Hannes enn efstur TR-inga á Rvk open
Fimmta umferð Reykjavíkurmótsins fór fram í gær. Hannes Hlífar Stefánsson (2563) gerði jafntefli við þýska alþjóðlega meistarann Dennis Breder (2427) og er í 12.-26. sæti með 3,5 vinning. Stefán Kristjánsson (2472) tapaði fyrir stigahæsta keppanda mótsins, úkraínska stórmeistaranum Alexander Areshchenko (2673). Páll Andrason (1564), Víkingur Fjalar Eiríksson (1882), Björn Jónsson (2012), Frímann Benediktsson (1939) og Kristján Örn Elíasson (1940) töpuðu ...
Lesa meira »Hannes og Stefán efstir TR-inga á Rvk open
Hannes Hlífar Stefánsson (2563) gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Nils Grandelius (2464) í fjórðu umferð Reykjavíkurmótsins sem fram fór í dag. Stefán Kristjánsson (2472), Björn Jónsson (2012) og Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir (1775) unnu einnig sínar skákir. Víkingur Fjalar Eiríksson (1882), Kristján Örn Elíasson (1940) og Frímann Benediktsson (1939) gerðu allir jafntefli við mun stigahærri andstæðinga en bæði Kristján og Frímann hafa ...
Lesa meira »Hannes í 6.-18. sæti á Rvk open
Hannes Hlífar Stefánsson (2563) er efstur TR-inga í 6.-18 sæti með 2,5 vinning að lokinni þriðju umferð Reykjavíkurmótsins sem fram fór í dag. Hannes sigraði Bolvíkinginn, Guðmund Gíslason (2351). Stefán Kristjánsson (2472), Guðmundur Kjartansson (2365), Víkingur Fjalar Eiríksson (1882) og Kristján Örn Elíasson (1940) unnu einnig en Kristján lagði Guðmund Halldórsson (2248). Frímann Benediktsson (1939) fylgdi eftir góðum sigri í ...
Lesa meira »Þröstur, Stefán og Frímann unnu í 2. umf. Rvk open
SM Þröstur Þórhallsson (2442), AM Stefán Kristjánsson (2472) og Frímann Benediktsson (1939) sigruðu sína andstæðinga í annari umferð Reykjavíkurskákmótsins. Þröstur og Stefán lögðu stigalægri andstæðinga en Frímann sigraði Ólaf Þórsson (2199). Hannes Hlífar og Kristján Örn gerðu jafntefli en aðrir TR-ingar töpuðu. Sextán skákmenn eru efstir og jafnir með með fullt hús og þar á meðal er Þröstur. Þriðja umferð ...
Lesa meira »Frumraun í skráningu skáka á laugardagsæfingu
Þegar tefldar eru hraðskákir eða styttri skákir gerist margt og mikið á skákborðinu og stundum man maður ekki stundinni lengur hvað maður var að tefla! Þó getur verið að maður muni einstaka sinnum eftir flottu máti eða þegar maður missti drottninguna í “miklu betri stöðu”! Þegar tefldar eru lengri skákir, eins og t.d. á Haustmóti T.R., Skákþingi Reykjavíkur eða á ...
Lesa meira »Tólf TR-ingar taka þátt í Rvk open
Tólf meðlimir Taflfélags Reykjavíkur eru meðal þátttakenda á Reykjavíkurskákmótinu sem hófst í dag. Alls eru 110 keppendur skráðir til leiks og er Úkraínski stórmeistarinn, Alexander Areshchenko (2673), þeirra stighæstur en stigahæstur Íslendinga er stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2563). Hér má sjá lista yfir þá TR-inga sem taka þátt en í fyrstu umferð sigruðu Hannes, Þröstur og Guðmundur en aðrir töpuðu, ...
Lesa meira »