Sjöunda umferð Rvk open



Hannes Hlífar Stefánsson (2563) gerði jafntefli við stigahæsta keppanda Reykjavíkurmótsins, Alexander Areschchenko (2673), í sjöundu umferð sem fram fór í gær. Hannes er efstur Íslendinga ásamt Héðni Steingrímssyni (2547) í 6.-15. sæti með 5 vinninga.  Næstur TR-inga er Þröstur Þórhallsson (2442) með 4,5 vinning eftir sigur í gær.

Líkt og Þröstur sigruðu Kristján Örn Elíasson (1940) og Páll Andrason (1564) sínar viðureignir en jafntefli gerðu, ásamt Hannesi, Stefán Kristjánsson (2472), Frímann Benediktsson (1939) og Björn Jónsson (2012).  Guðmundur Kjartansson (2365), Víkingur Fjalar Eiríksson (1882), Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir (1775) og Birkir Karl Sigurðsson (1355) töpuðu sínum viðureignum.

 

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag og hefst kl. 16 en teflt er í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins og heimasíðu Skáksambands Íslands.

 

11 skákmenn úr Taflfélagi Reykjavíkur taka þátt í mótinu:

  • SM Hannes Hlífar Stefánsson (2563)
  • AM Stefán Kristjánsson (2472)
  • SM Þröstur Þórhallsson (2442)
  • FM Guðmundur Kjartansson (2365)
  • Björn Jónsson (2012)
  • Kristján Örn Elíasson (1940)
  • Frímann Benediktsson (1939)
  • Víkingur Fjalar Eiríksson (1882)
  • Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir (1775)
  • Páll Andrason (1564)
  • Birkir Karl Sigurðsson (1355)