Lenka tvöfaldur sigurvegari á Öðlingamótunum



Stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova, gerði sér lítið fyrir og vann tvöfalt á Öðlingamótunum sem lauk í síðasta mánuði. Hún varð efst í aðalmótinu með 6 vinn. af sjö mögulegum, gerði eitt jafntefli við stigahæsta skákmann mótsins, Davíð Kjartansson og tók eina yfirsetu. Þá vann hún Hraðskákmót öðlinga sem fór fram að loknu aðalmótinu með fullu húsi, 7 vinn. af 7 mögulegum.

Aðalkeppnin:

  1. Lenka Ptacnikova 6 vinn.
  2. Jóhann Ragnarsson 5½ vinn.
  3. Davíð Kjartansson 5½ vinn.
  4.  Ögmundur Kristinsson 5 vinn.

Nánari úrslit á chess-results.com

Hraðskákmótið:

  1. Lenka Ptacnikova 7 vinn.
  2. Bragi Halldórsson 5
  3. Jóhann Jónsson 4½ vinn.

Nánari úrslit á chess-results.com

 

IMG_5681

Verðlaunahafar á Öðlingamótunum, frá vinstri: Jóhann Jónsson, Bragi Halldórsson, Jóhann Ragnarsson og Lenka Ptacnikova.

 

Skákstjórar í Öðlingamótinu að þessu sinni voru Daði Ómarsson og Ríkharður Sveinsson