Skemmtilegt á laugardagsæfingu með páskaívafi



Páskafrí í grunnskólunum en ekki hjá Taflfélagi Reykjavíkur! Síðastliðinn laugardag mættu 22 hressir krakkar á skákæfingu. Og ekki versnaði það þegar þau fengu að vita að næstkomandi laugardag (11. apríl) yrði líka skákæfing! Allavega. Þetta var ljómandi góð æfing. Tveir drengir komu í fyrsta skipti og voru strax skráðir í æfingamótið, enda ekki eftir neinu að bíða.

 

Þar sem nú er komið fram í apríl er rétt að minna á, að laugardagsæfingarnar halda áfram fram til 2. maí. Helgina þar á eftir fer svo fram Unglingameistaramót Reykjavíkur (laugardaginn 9. maí) og Stúlknameistaramót Reykjavíkur (sunnudaginn 10. maí) og þá eru allir krakkarnir velkomnir að taka þátt. Þessi mót verða auglýst nánar þegar nær dregur.

 

En nú aftur að skákæfingunni 4. apríl. Tefldar voru 5 umferðir með 7. mín. umhugsunartíma. Jóhann H. Ragnarsson, eiginmaður Sigurlaugar umsjónarmanns á þessari æfingu, tók nokkrar myndir af krökkunum að tafli og munu þær birtast í Myndagallerí á heimsíðu Taflfélags Reykjavíkur innan skamms. Þar eru einnig að finna myndir af laugardagsæfingum frá því fyrr í vetur. Í lok æfingarinnar var smá “páskaglaðningur”. Dregin voru út 3 páskaegg og þau sem hnepptu þau voru: Halldóra, Hörður Sindri og Madison. Allir hinir krakkarnir fengu síðan eitt lítið páskaegg (“lófaegg”) hvert með sér heim.

 

Úrslit urðu sem hér segir:

1. Mías Ólafarson 5 v. af 5.

2.-4. Gauti Páll Jónsson, Þorsteinn Freygarðsson, Jakob Alexander Petersen 4 v.

5. -8. Kveldúlfur Kjartansson, Sólrún Elín Freygarðsdóttir, Erik Daníel Jóhannesson, Sigurður Alex Pétursson 3 v.

 

Þau sem einnig tóku þátt og fá mætingarstig eru: Madison Jóhannesdóttir, Halldóra Freygarðsdóttir, Ólafur Örn Olafsson, Hörður Sindri Guðmundsson, Mariam Dalía Ómarsdóttir, Páll Ísak Ægisson, Ísak Indriði Unnarsson, Gunnar Helgason, Muhammad Zaman, Sólon Nói Sindrason, Sæmundur Guðmundsson, María Ösp Ómarsdóttir, Christian Már Einarsson, Ayub Zaman.

 

Eins og áður hefur verið sagt frá, fá krakkarnir stig fyrir ástundun og árangur á laugardagsæfingunum. Stigin standa núna eftir 13 laugardagsæfingar (talið frá áramótum):

1. Gauti Páll Jónsson 25 stig

2. Þorsteinn Freygarðsson 21 stig

3. Jakob Alexander Petersen 20 stig

4. Mías Ólafarson  18 stig

5. Einar Björgvin Sighvatsson 16 stig

6. Hörður Sindri Guðmundsson 14 stig

7.-8. Sólrún Elín Freygarðsdóttir, Erik Daníel Jóhannesson 12 stig

9.-13. Smári Arnarson, Halldóra Freygarðsdóttir, Ólafur Örn Olafsson, Páll Ísak Ægisson, Gunnar Helgason 11 stig

14. Sigurður Alex Pétursson 10 stig

15.-16. Samar-e-Zahida, Kristján Nói Benjamínsson 9 stig

17.-18. Figgi Truong, María Zahida 8 stig

19.-22. Tjörvi Týr Gíslason, Kristófer Þór Pétursson, Vignir Vatnar Stefánsson, Atli Freyr Gylfason 7 stig

23.-28. Jóhann Markús Chun, Kristján Gabríel Þórhallsson, Kveldúlfur Kjartansson, Ísak Indriði Unnarsson,  Muhammad Zaman, Ayub Zaman 6 stig

29.-30. Elvar P. Kjartansson,  Mariam Dalía Ómarsdóttir 5 stig.

31.- 35. Elmar Oliver Finnsson, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Ragnheiður Ósk Ingvarsdóttir, María Ösp Ómarsdóttir, Christian Már Einarsson 4 stig.

36.-38. Tinna Chloe Kjartansdóttir, Svavar Egilsson, Madison Jóhannesdóttir  3 stig.
39.-47. Guðmundur Óli Ólafarson, Máni Elvar Traustason, Atli Finnsson, Bragi Þór Eggertsson, Hróðný Rún Hölludóttir, Finnbogi Tryggvason, Haukur Arnórsson, Gylfi Már Harðarson, Axel Pálsson 2 stig.
48.-66. Ásdís Ægisdóttir, Dagný Dögg Helgadóttir, Edda Hulda Ólafardóttir, Frosti, Jón Bjartur Þorsteinsson, Jón Eðvarð Viðarsson, Kristján Arnfinnsson, Marinó Ívarsson, Sveinn Orri Helgason, Egill Orri Árnason, Þorgrímur Erik Þ. Rodriguez, Bjarki Harðarson, Elías Magnússson, Pétur Sæmundsson, Halldór Ísak Ólafsson, Styrmir Ólafsson, Tryggvi Gautur Eyjólfsson, Sólon Nói Sindrason, Sæmundur Guðmundsson 1 stig.

 

 

 

Umsjónarmaður var Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir

 

Verið velkomin næsta laugardag kl. 14-16. Húsið opnar kl. 13.45.