Jóhann Hjartarson hlutskarpastur á Stórmóti Árbæjarsafns og TR



Stórmeistarar og aðrir minni leiddu saman hesta sína á Stórmóti Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur í dag. Að venju komu keppendur úr ýmsum áttum og voru á ýmsum aldri. Sigurstranglegastir fyrirfram voru óneitanlega stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson og Jóhann Hjartarson, enda fór það svo að Jóhann hafði sigur með 7 vinningum úr 8 skákum.

Sigurinn var sannfærandi og leyfði Jóhann aðeins tvö jafntefli. Hjörvar Steinn náði sér hinsvegar ekki á strik í dag og tvö töp um miðbik mótsins öftruðu honum frá því að etja kappi við Jóhann, sem hefði sannarlega verið skemmtileg viðureign. Hjörvar endaði í skiptu öðru sæti ásamt Braga Halldórssyni með 6 vinninga.

Eftirtektarverð var framganga þriggja keppenda, þeirra Braga, Ögmundar Kristinssonar og Gauta Páls Jónssonar. Bragi og Ögmundur sýndu að gamlir jaxlar geta bitið; Bragi sigraði Hjörvar Stein og Ögmundur gerði jafntefli við Jóhann. Gauti Páll var hinn keppandinn sem náði jafntefli gegn Jóhanni og var fyrir síðustu umferð sá eini sem átti möguleika á að ná honum að vinningum, en lenti þá á stórmeistaravegg Hjörvars. Vignir Vatnar átti kaflaskipt mót: 4 vinningar úr fyrstu 4 umferðunum, en svo aðeins 1 úr síðustu 4. Gengi annarra keppenda var upp og ofan, sumra meira upp og annarra meira ofan.

IMG_1774

Verðlaunahafar á Stórmóti Árbæjarsafns og TR 2018; Jóhann, Hjörvar Steinn og Bragi.

Lokastöðu og úrslit í einstaka viðureignum má nálgast á Chess-results.