Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið sunnudaginn 11.febrúar



Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 11.febrúar og hefst taflið kl.13:00.

Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 4+2 (4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er opið öllum.

Þátttökugjald er 1.000kr. Frítt er í mótið fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning fer fram á skákstað og lýkur henni kl.12:50.

Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir Skákþing Reykjavíkur.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk þess sem krýndur verður Hraðskákmeistari Reykjavíkur. Verði keppendur jafnir að vinningum verður skorið úr um sætaröð með stigaútreikningi (tie-break). Röð stigaútreiknings: 1.Innbyrðis úrslit 2.Bucholz (-1) 3.Bucholz (median) 4.Sonneborn-Berger.

Ríkjandi hraðskákmeistari Reykjavíkur er Dagur Ragnarsson. Sigurvegari mótsins í fyrra varð hins vegar Vestfjarðarvíkingurinn Guðmundur Gíslason sem vann það þrekvirki að vinna með fullu húsi! Undanfarin 11 ár hafa sex skákmeistarar borið titilinn Hraðskákmeistari Reykjavíkur, þar af einn stórmeistari og fjórir FIDE-meistarar:

2017: Dagur Ragnarsson 2016: Róbert Lagerman 2015: Dagur Ragnarsson 2014: Róbert Lagerman 2013: Oliver Aron Jóhannesson 2012: Davíð Kjartansson 2011: Hjörvar Steinn Grétarsson 2010: Torfi Leósson 2009: Hjörvar Steinn Grétarsson 2008: Davíð Kjartansson 2007: Davíð Kjartansson.

20170205_155311

Verðlaunahafar á Hraðskákmóti Reykjavíkur 2017 (f.v): Bárður Örn Birkisson, Guðmundur Gíslason og Dagur Ragnarsson.