Þriðja mót Brim mótaraðarinnar verður haldið helgina 23.-25. apríl næstkomandi, í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Athugið að skráningu lýkur þegar 49 hafa skráð sig vegna fjöldatakmarkana.
Fyrirkomulag mótsins:
Föstudagurinn 23. apríl klukkan 19:30
1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5
Laugardagurinn 24. apríl klukkan 11: 5. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30
Laugardagurinn 24. apríl klukkan 17: 6. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30
Sunnudagurinn 25. apríl klukkan 11: 7.umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30.
Eftir mótið verður haldið 9. umferða hraðskákmót með tímamörkunum 3+2. Miðað verður við að það hefjist klukkan 16 á sunnudeginum. Sigurvegari hraðskákmótsins fær aukastig í stigakeppninni.
Þáttökugjöld: 4000kr.
2000kr. fyrir 17 ára og yngri
Ókeypis fyrir GM/IM og TR-inga 17 ára og yngri
Verðlaunafé í mótinu:
- 15.000
- 10.000
- 8000
Verðlaunasjóður fyrir samanlagðan árangur í mótunum sex:
Heildarkeppnin:
- 125.000kr.
- 75.000kr.
- 50.000kr.
Efsta skákkonan: 33.000kr.
Efstur U1900 skákstigum, júní listinn 2020: 33.000kr.
Efstur 17 ára og yngri: 33.000
Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Oddastig (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart.
Stigakeppnin virkar þannig að stig eru veitt fyrir efstu 10. sætin. 1 stig fyrir 10. sæti, 2. stig fyrir 9. sæti og svo framvegis. Í 1. sæti í hverju móti verða hins vegar 12 stig veitt. Aukastig fyrir sigur í hraðskákmótinu eftir aðalmótið. Stigakeppnir með sama sniði verða einnig notaðar til að reikna út aukaverðlaunin. Fjögur bestu mót hvers þáttakanda gilda í stigakeppninni
Fréttir síðustu móta:
Mót 2 (TR 26.-28. febrúar 2021)
Staða efstu manna í stigakeppninni að afloknum tveimur mótum:
- Davíð Kjartansson 21 stig
- Vigni Vatnar Stefánsson 20 stig
- Lenka Ptacnkikova 14 stig
- Alexander Oliver Mai 10 stig
Almenn Kynning á Mótaröðinni:
Taflfélag Reykjavíkur kynnir með stolti, í samstarfi með þremur félögum, Skákfélagi Akureyrar, Skákfélagi Selfoss og nágrennis og Skákfélaginu Hugin, BRIM Skákmótaröðina 2020!
Haldin verða sex helgarskákmót, þrjú í TR, eitt á Norðurlandi, eitt á Selfossi og eitt á Húsavík. Á föstudegi verða tefldar fjórar atskákir, á laugardegi tvær kappskákir og á sunnudegi ein kappskák.
Brim er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar ásamt Skáksambandi Íslands. Keppt verður um glæsileg verðlaun; 350.000 króna verðlaunasjóður er fyrir bestan samanlagðan árangur. Það verður stigakeppni þar sem fjögur bestu mót hvers skákmanns gilda.