Taflfélag Reykjavíkur öflugast í Hraðskákkeppni taflfélaga



Taflfélag Reykjavíkur stóð uppi sem sigurvegari í Hraðskákkeppni taflfélaga sem fram fór síðastliðinn sunnudag. A-sveit félagsins hlaut 61 vinning, heilum 8,5 vinning á undan næstu sveit sem var Skákfélag Akureyrar með 52,5 vinning. Í 3.sæti varð Skákfélagið Huginn með 52 vinninga, en athygli vakti hve marga sterka skákmenn vantaði í lið þeirra. Taflfélag Reykjavíkur hafði ekki eingöngu á að skipa sterkustu skáksveitinni heldur sendi félagið einnig flestar skáksveitir í mótið, alls þrjár.

Omar Salama hlaut flesta vinninga TR-inga en hann fékk 13,5 vinning í 14 skákum á 6.borði í A-sveitinni. Sannarlega glæsileg frammistaða. Þá var mjög ánægjulegt að sjá gamla brýnið Margeir Pétursson við skákborðið í þessu móti en hann halaði inn 10,5 vinning.

20171119_163240

Árangur A-sveitarinnar var sem hér segir:

  • Guðmundur Kjartansson 7,5v.
  • Arnar Gunnarsson 8,5v.
  • Margeir Pétursson 10,5v.
  • Bragi Þorfinnsson 8,5v.
  • Raymond Kaufman 12,5v.
  • Omar Salama 13,5v.

B-sveit félagsins var skipuð sterkustu unglingum félagsins og hlaut hún 44,5 vinninga í 7.sæti. Þar bar hæst sterkt frammistaða Vignis Vatnars Stefánssonar á 1.borði en nældi í 8 vinninga og hækkar um 24 hraðskákstig. Árangur B-sveitarinnar:

  • Vignir Vatnar Stefánsson 8v.
  • Bárður Örn Birkisson 7v.
  • Björn Hólm Birkisson 5v.
  • Gauti Páll Jónsson 5,5v.
  • Hilmir Freyr Heimisson 7v.
  • Aron Þór Mai 6v.

C-sveit TR var blanda af reynsluboltum og ungum og efnilegum og hlaut sveitin 40,5 vinning í 8.sæti. Þar fóru fremst Alexander Oliver Mai og Jakob Alexander Petersen með 7 vinninga og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir með 6,5 vinning. Þau hækka um 44-51 hraðskákstig. Árangur C-sveitarinnar:

  • Björgvin Víglundsson 5v.
  • Kjartan Maack 5v.
  • Alexander Oliver Mai 7v.
  • Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir 6,5v.
  • Róbert Luu 4v.
  • Jakob Alexander Petersen 7v.

 

Upplýsingar um lokastöðu og einstaklingsúrslit má finna á Chess-Results.

Frétt skak.is um mótið.