Jólakveðja frá Taflfélagi Reykjavíkur



Taflfélag Reykjavíkur óskar skákmönnum nær og fjær gleðilegra jóla, og farsældar á nýju ári. Það er óskandi að skákmótahald geti hafist á venjulegan hátt sem fyrst.

Sunnudags- og þriðjudagsmótin fara nú í örlítið jólafrí, en síðasta skákmót ársins hjá Taflfélaginu verður Jólahraðskákmót TR, á chess.com, þriðjudagskvöldið 29. desember næstkomandi klukkan 19:30.

Á nýju ári er stefnt að því að koma verkefninu Skákskóla TR í gang, þar sem boðið verður upp á reglulega fyrirlestra gegnum zoom, og verður það auglýst betur á nýju ári.

Hlökkum til að sjá ykkur!