U-2000 mótið hefst í kvöld
U-2000 mót Taflfélags Reykjavíkur hefst miðvikudaginn 16. október. Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa minna en 2000 Elo-stig. Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartími 90 mínútur fyrir alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik. Leyfðar eru tvær yfirsetur í umferðum 1-5 sem skal tilkynna skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan en 1/2 vinningur fæst fyrir yfirsetu. ...
Lesa meira »