Hin hefðbundnu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur halda áfram í kvöld. Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10. Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening. Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Lesa meira »Uncategorized
Fórnarskákir á laugardagsæfingu
Fórnir, framhjáhlaup og pattstöður voru á dagskrá á laugardagsæfingunni 8. nóvember. Sævar Bjarnason, skákþjálfari T.R. fékk óskipta athygli við stóra, gamla skáksýningarborðið okkar þegar hann sýndi skrýtna skák sem tefld var í Vín fyrir 135 árum síðan! Þar fórnaði svartur meira að segja drottningunni en uppskar að lokum jafntefli eftir þráskák. Víst er að nokkrar skákir hjá krökkunum enduðu einmitt ...
Lesa meira »Davíð efstur þegar tvær umferðir eru eftir
Sjöunda umferð Haustmótsins var tefld í kvöld. Í a-flokki lagði Davíð Kjartansson Sævar Bjarnason og heldur því efsta sætinu með 5,5 vinning. Í b-flokki er Bjarni Jens Kristinsson efstur sem fyrr með 5,5 vinning, vinningi meira en næstu menn. Ólafur Gísli Jónsson hefur náð forystu í c-flokki eftir sigur í dag á meðan Páll Sigurðsson beið lægri hlut gegn sínum ...
Lesa meira »Davíð efstur á Haustmótinu
Davíð Kjartansson hefur tekið forystu á Haustmóti TR eftir sigur á Hrafni Loftssyni í sjöttu umferð sem tefld var í gærkveldi. Davíð hefur 4,5 vinning en næstur kemur Hrafn með 4 vinninga en þrír skákmenn eru jafnir í 3.-5. sæti með 3 vinninga. Í b-flokki heldur Bjarni Jens Kristinsson áfram góðu gengi og lagði Kristján Örn Elíasson og heldur því ...
Lesa meira »Torfi sigraði á fimmtudagsmóti
Torfi Leósson sigraði nokkuð örugglega á fimmtudagsmóti kvöldsins en hann hlaut 8 vinninga af 9, 1,5 vinningi meira en Jon Olav og Ingi Tandri sem komu næstir með 6,5 vinning. Úrslit: 1. Torfi Leósson 8 v 2-3. Jon Olav Fivelstad, Ingi Tandri Traustason 6.5 4. Dagur Andri Friðgeirsson 6 5. Helgi Brynjarsson 5.5 6-7. Kristján Örn Elíasson, Páll Andrason 5 ...
Lesa meira »Enn leiðir Hrafn á Haustmótinu
Þegar fimm umferðir hafa farið fram á Haustmóti TR er núverandi skákmeistari TR, Hrafn Loftsson efstur í a-flokki með 4 vinninga eftir sigur á Þór Valtýssyni. Hinn ungi Atli Freyr Kristjánsson hefur staðið sig mjög vel og deilir öðru til þriðja sæti með Davíð Kjartanssyni. Í b-flokki eru leikar heldur að jafnast en stigalægsti maður flokksins, Bjarni Jens Kristinsson, leiðir ...
Lesa meira »Fimmtudagsmót í kvöld
Hin hefðbundnu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur halda áfram í kvöld. Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10. Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening. Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri. Sérstök aukaverðlaun ...
Lesa meira »Fjölmennt á laugardagsæfingu
Mjög góð mæting var á laugardagsæfingunni 1. nóvember. 18 krakkar mættu galvösk og pældu meðal annars í peðsendatöflum með Sævari Bjarnasyni, skákþjálfara T.R. Síðan var slegið upp 5 umferða móti. Úrslit urðu eftirfarandi: 1. Vilhjálmur Þórhallssson 5v. 2-3. Þorsteinn Freygarðsson og Aron Daníel Arnalds 4v. 4-5. Mias Ólafarson og Kveldúlfur Kjartansson 3 ½ v. Þau sem tóku einnig þátt ...
Lesa meira »Þrír leiða í a-flokki – Helgi með fullt hús í b-flokki
Þriðja umferð Haustmóts TR fór fram í kvöld. Öllum skákum a-flokks lauk með jafntefli nema einni þar sem Jón Árni Halldórsson lagði Þór Valtýsson. Í b-flokki heldur Helgi Brynjarsson áfram góðu gengi og er enn efstur með fullt hús eftir sigur á Sigurjóni Haraldssyni. Ólafur Gísli Jónsson leiðir í c-flokki, Barði Einarsson leiðir d-flokk og í e-flokki eru Hjálmar Sigurvaldason ...
Lesa meira »Barna- og unglingaæfing á laugardag
Að venju verður barna- og unglingaæfing TR á morgun laugardag. Æfingin hefst kl. 14 og ásamt taflmenssku verður alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason með kennslu. Æfingin fer fram í húsnæði TR að Faxafeni 12 og er aðgangur ókeypis.
Lesa meira »Helgi óstöðvandi á fimmtudagsmóti
Helgi Brynjarsson fór hamförum á fimmtudagsmóti TR sem fram fór í gærkvöld. Lagði hann alla sína níu andstæðinga og þar á meðal hraðskákmeistara TR, Kristján Örn Elíasson, sem átti ekkert svar gegn honum frekar en aðrir. Annar varð Kristján Örn með 7,5 vinning og Geir Guðbrandsson kom skemmtilega á óvart með 7 vinninga í þriðja sæti. Úrslit: 1. Helgi Brynjarsson ...
Lesa meira »Fimmtudagsmót í kvöld
Hin hefðbundnu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur halda áfram í kvöld. Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10. Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening. Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Lesa meira »Önnur umferð Haustmótsins fór fram í gærkveldi
Úrslit og stöðu má nálgast á Chess-Results
Lesa meira »2. umferð Haustmótsins fer fram í kvöld
2. umferð Haustmóts TR hefst í kvöld kl. 19.30 en þá mætast: A-flokkur 1 10 Fridjonsson Julius Loftsson Hrafn 6 2 7 IM Bjarnason Saevar Bjornsson Sverrir Orn 5 3 8 Leosson Torfi Halldorsson Jon Arni 4 4 9 Valtysson Thor Ragnarsson Johann 3 5 1 FM Kjartansson David ...
Lesa meira »Heimaskítsmát tekið fyrir á laugardagsæfingu
Það var góður hópur krakka sem mætti á laugardagsæfinguna síðustu. Þema dagsins var veiki reiturinn á f7 og f2, eða sá reitur sem kóngurinn valdar einn í byrjun skákar. Mát á þessum reitum var nokkuð “vinsælt” á þessari æfingu, svo Sævar Bjarnason, alþjóðlegur meistari og skákþjálfari, varði tíma í að sýna fram á að hægt er að koma í veg ...
Lesa meira »Myndir frá 1. umferð Haustmótsins
Glæsilegar myndir frá 1. umferð Haustmótsins má nú finna í myndagalleríinu hér að ofan. Það var Björn Jónsson sem tók myndirnar.
Lesa meira »Metþátttaka á Haustmótinu
Haustmót TR hófst í dag en þátttakendur eru um 60 talsins sem líklega er einhver mesta þáttaka í áratug eða svo. Fjórir lokaðir flokkar eru ásamt opnum e-flokk og urðu úrslit 1. umferðar eftirfarandi: A-flokkur Bo. No. Name Result Name No. 1 1 FM Kjartansson David 1 – 0 Fridjonsson Julius 10 2 2 Kristjansson Atli ...
Lesa meira »Töfluröð A-flokks
Töfluröð A-flokks Haustmótsins var dregin í Skákhöll TR nú í kvöld: 1. Davíð Kjartansson2. Atli Freyr Kristjánsson 3. Jóhann H. Ragnarsson4. Jón Árni Halldórsson 5. Sverrir Örn Björnsson 6. Hrafn Loftsson 7. IM Sævar Bjarnason 8. Torfi Leósson 9. Þór Valtýsson 10. Júlíus L. Friðjónsson Pörun 1. umferðar: 1. Davíð Kjartansson – Júlíus L. Friðjónsson2. Atli Freyr Kristjánsson – Þór ...
Lesa meira »Barna- og unglingaæfing
Að venju verður barna- og unglingaæfing TR á morgun laugardag. Æfingin hefst kl. 14 þar sem sett verður upp mót ásamt því að alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason verður með kennslu. Æfingin fer fram í húsnæði TR að Faxafeni 12 og er aðgangur ókeypis.
Lesa meira »Kristján Örn sigraði á fimmtudagsmóti
Hraðskákmeistari TR, Kristján Örn Elíasson, sigraði á fimmtudagsmóti gærkvöldsins með 8 vinninga af 9 mögulegum en gera má ráð fyrir að framvegis verði tefldar 9 umferðir sem hefur lagst mjög vel í skákmenn. Í öðru sæti með 7,5 vinning var bandarískur lagastúdent, Scott Caplan, sem er staddur hér á landi í fríi og langaði að nota tækifærið og etja kappi við skákþyrsta ...
Lesa meira »
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins